Fréttablaðið - 21.02.2014, Síða 20

Fréttablaðið - 21.02.2014, Síða 20
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLFRÍÐUR STEINUNN ÁSMUNDSDÓTTIR (DISTA) Skúlagötu 20, 101 Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 15. febrúar 2014. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 13.00. Tryggvi Gunnarsson Ragnhildur Ragnarsdóttir Halldór Gunnarsson Selma Björk Grétarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, sambýlismaður, bróðir og mágur, PÉTUR PÉTURSSON Háagerði 71, lést á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi 29. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjördís Ágústsdóttir Jóna Björk Jónsdóttir Anna Sigríður Pétursdóttir Guðmundur Ágúst Pétursson Hulda Björg Sigurðardóttir Sturla Pétursson Rósa Þorvaldsdóttir Bryndís Pétursdóttir ZOPHANÍAS MAGNÚS MÁRUSSON Meltröð 4, Kópavogi, lést á Sunnuhlíð þriðjudaginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 26. febrúar kl. 11.00. Börn, tengdabörn og barnbörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR GUNNAR STEFÁNSSON Hrafnistu í Reykjavík, áður Bugðulæk 15, lést á Hrafnistu fimmtudaginn 13. febrúar sl. Útförin fer fram föstudaginn 21. febrúar kl. 15 frá Hallgrímskirkju í Reykjavík. Sigrún, Guðrún, Bryndís og Siggi, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sambýlismaður, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, RAGNAR SIGURGEIRSSON Skúlagötu 20, Reykjavík, lést á bráðamóttöku Landspítalans þriðjudaginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 13.00. Lilja Tómasdóttir Þorlákur Guðmundsson Álfhildur Hjördís Jónsdóttir Helena Ragnarsdóttir Hjalti Þór Ragnarsson Kristrún Hauksdóttir Andri Ragnarsson Rósa Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn, bræður og systur. Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA BJÖRG HELGADÓTTIR (NINNA) frá Hóli, Hauganesi, lést á heimili sínu, Hornbrekku á Ólafsfirði, föstudaginn 14. febrúar síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00. Jarðsett verður í Stærri-Árskógskirkjugarði. Magnús S. Jóhannsson Sigþóra Sigurjónsdóttir Svava Björg Jóhannsdóttir Björn Kjartansson Aðalheiður H. Jóhannsdóttir Þorleifur R. Sigvaldason Sæunn S. Jóhannsdóttir Rúnar Steingrímsson Bergþóra Jóhannsdóttir Jón Valur Sverrisson Kristín S. Jóhannsdóttir Kristinn Snæbjörnsson barnabörn og langömmubörn. Elskuleg systir mín, mágkona og frænka, BIRNA HELGADÓTTIR frá Leirhöfn, lést 12. febrúar á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum. Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 24. febrúar kl. 13.00. Hildur Helgadóttir Sigurður Þórarinsson Dýrleif Andrésdóttir Pétur Einarsson og systkinabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, GUÐMUNDUR RÚNAR GUÐMUNDSSON Úthlíð 37, Hafnarfirði, lést á heimili sínu þann 18. febrúar sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Vilborg Sverrisdóttir Ragnar Guðmundsson Svanhildur Anna Magnúsdóttir Guðmundur Rúnar Guðmundsson og barnabörn. 100 ára afmæli Hólm Dýrfjörð Hólm Dýrfjörð verður 100 ára í dag, 21. febrúar. Af því tilefni tekur hann á móti ætting jum og vinum á morgun, laugardaginn 22. febrúar, kl. 3, í safnaðarheimili Áskirkju, Vesturbrún 30, Reykjavík. Hólm fæddist þann 21. febrúar árið 1914 í Nauteyrarhreppi. Hann ólst upp skammt frá Ísafirði fyrstu árin og síðan á Ísafirði. Hann fluttist á unglingsaldri til Siglufjarðar. Hólm og kona hans, Sigurrós Sigmundsdóttir (d. 23.02. 1999), áttu miklu barnaláni að fagna og eru afkomendur þeirra orðnir 87 talsins. Þökkum öllum hjartanlega sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GÍSLA BERGSVEINS ÓLAFS LÁRUSSONAR Ársölum 1. Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu LSH og Friðbirni Sigurðssyni krabbameinslækni fyrir ómetanlegan stuðning, umhyggju og kærleika. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Þórarinsdóttir Þórarinn Gíslason Karen Dagmar Guðmundsdóttir Jóna Bryndís Gísladóttir Vilhjálmur Sveinn Björnsson Sigrún Gísladóttir Bjarni Þór Hjaltason barnabörn og barnabarnabörn. Í dag verður boðið upp á námskeið fyrir börn á aldrinum átta til tólf ára í Hugmyndasmiðjunni á Kjarvalsstöð- um. Listakonan Berglind Jóna Hlynsdótt- ir býður krökkum að taka þátt í heim- spekismiðju í tengslum við sýningu á verkum eftir finnska listamanninn Harro. „Markmið námskeiðsins er að vekja spurningar um sjónræna áreitið í kringum okkur og hvetja til sjálfstæðr- ar hugsunar,“ segir í fréttatilkynningu. Listamaðurinn Harro hefur tekið vöru- merki þekktra fyrirtækja og snúið út úr þeim á skoplegan hátt. Á sýn- ingu Harros er sjónum aðallega beint að popplistaverkum hans frá árun- um 1968 til 1972, en þau ollu uppnámi þegar þau voru fyrst sýnd í Finnlandi. Í verkunum byggir hann meðal annars á finnska fánanum, á vörumerkjum alþjóðlegra fyrirtækja og svínum svo eitthvað sé nefnt. Farið verður í stutta leiðsögn um sýningu Harros og fjallað um valin verk og að lokum verður smiðja þar sem þátttakendur fá að gera sínar eigin tilraunir. Berglind Jóna Hlynsdóttir hefur í verkum sínum unnið með pólitískar táknmyndir og hugmyndina um vöru- merki með undirliggjandi samfélags- rýni. Foreldrum er velkomið að taka þátt. Námskeiðið stendur frá kl. 13-16, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. olof@frettabladid.is Harro leikur að lógóum Heimspekismiðja unga fólksins verður haldin á Kjarvalsstöðum í dag frá 13 til 16. HEIMSPEKISMIÐJA FYRIR BÖRN Berglind Jóna stýrir smiðjunni í tengslum við sýningu Harros á Kjarvalsstöðum. VÍSIR/HÖRÐUR Malcolm X, fæddur Malcolm Little, var aðgerðasinni, prestur og talsmaður þjóð- félags múslima. Hann barðist ötullega fyrir réttindum blökkumanna í Bandaríkj- unum á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Hann var myrtur í New York þann 21. febrúar 1965. Malcolm X hafði slitið sig frá samtök- unum „Nation of Islam“ skömmu fyrir dauða sinn og eftir það óttaðist Malcolm um líf sitt og fjölskyldu sinnar. Ástæðan fyrir ágreiningnum milli Malcolms X og samtakanna var sú að Malcolm hafði gert lítið úr morðinu á Kennedy forseta. Eftir að hann sleit sig frá samtökunum óttuðust yfirmenn „Nation of Islam“ að Malcolm tæki marga með sér úr sam- tökunum. Malcolm og fjölskylda hans urðu ítrekað fyrir árásum og til dæmis var kveikt í húsi fjölskyldunnar. Daginn sem hann var myrtur átti hann að flytja ræðu í Audubon Ballroom í New York. Rétt eftir að búið var að kynna Malcolm til leiks ruddust þrír menn inn í salinn og hófu skotárás. Malcolm var skotinn sextán sinnum og lést sam- stundis. Hann var jarðsettur í New York og mættu um 30.000 þúsund manns til að votta honum virðingu sína. Malcolms X verður lengi minnst sem baráttumanns fyrir rétt- indum blökkumanna. 21. FEBRÚAR 1965 Malcolm X myrtur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.