Fréttablaðið - 21.02.2014, Side 28

Fréttablaðið - 21.02.2014, Side 28
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Hönnun. Snyrtibuddan. Steinunn Vala Sig fúsdóttir. Fataskápurinn og Kron Kron. Matur og Fatahönnun. Spjörunum Úr og Bloggarinn. 6 • LÍFIÐ 21. FEBRÚAR 2014 Þ að gerðist bara einn daginn að ég sá hlutina í nýju ljósi, eins og það rofaði til í huga mér og mig langaði allt í einu bara að vera heima og prjóna lopapeysur frekar en vinna áfram sem verkfræðingur. Ég hafði lagt allan minn metnað í verkfræðina í þeim tilgangi að læra eitthvað praktískt og merki- legt og tók líka þátt í ungliðapóli- tíkinni með það í huga að verða menntamálaráðherra einn dag- inn,“ segir Steinunn Vala Sigfús- dóttir hlæjandi þegar talið berst að aðdraganda Hring eftir hring ævintýrsins. Hún stóð á tíma- mótum í lífi sínu, ófrísk að þriðja barni og þráði ekkert heitar en að synda á móti straumnum. Steinunn Vala fékk leyfi frá vinnunni á arkitektastofunni sem hún starfaði á og ákvað að sækja um í myndlist í Listaháskólanum til að ýta undir sköpunargáfuna og láta gamlan listakonudraum rætast. „Í undirbúningsnámi fyrir inntöku í Listaháskólann var rík áhersla lögð á að horfa inn á við og ég áttaði mig á því að ég hef verið að búa til skartgripi allt mitt líf. Ég hafði alltaf búið til fylgihluti til að poppa lúnu og margnotuðu flíkurnar mínar upp því ég var alltaf svo blönk. Eitt af verkefnunum mínum gekk út á að sýna að hægt væri að gera skart úr öllu í kringum þig, sama hvað það er. Upphaflegi hringurinn minn var því búinn til úr afgöng- um, ef svo má að orði komast.“ Hringurinn vakti strax athygli Hver er sagan á bak við fyrsta hringinn? „Allt þetta ævintýri mitt hefur verið tekið í litlum skrefum. Ég bjó til einn hring úr leir og gekk með hann sjálf. Alls staðar sýndi fólk áhuga á að eignast slíkan hring og ég fann því fljótt að þetta gæti orðið dýrmætt verk- efni. Það var frekar snemma sem ég setti mér það langtímamark- mið að búa til vörumerki með stefnuna á að stækka og fá hönn- uði til að starfa í fyrirtækinu. Það er lykilatriði að fá fjárfesta en þeir vilja fjárfesta í einhverju sem er raunhæft og eftirsóknar- vert. Ég get ímyndað mér að fæst- ir hönnuðir viti í byrjun hvernig fjárfestar eru aðgengilegir. Verk- fræðinámið hefur því nýst mér einstaklega vel. Ég hugsa þetta í eins konar ferli og reikna allt út á hagkvæman hátt. Núna erum við að safna okkur tengslaneti og reynslu. Með reynslu tekurðu betri ákvarðanir, heldur utan um framleiðendur, fjárfestana, lag- erinn og sölustaði. Á Íslandi eru rosalega margir að gera flotta hluti og það er frjáls hönnun sem er tekið eftir erlendis. Margir gefast þó upp á rekstrinum sem fylgir því að vera með eigið vöru- merki því það tekur langan tíma að ná uppskeru. „Hvaðan kemur nafnið Hring eftir hring? „Ég hef alltaf átt erfitt með nöfn, dúkkan mín hét Dúkkan hennar Steinu. Hesturinn minn fékk aldrei nafn heldur og hét bara Hesturinn hennar Steinu. Þegar mig vantaði nafn á fyrir- tækið þá leitaði ég til mágkonu minnar sem kom með hugmynd- ina. Mér þótti nafnið henta vel enda vísar það til þess að hlutirn- ir hafa tilhneigingu til að fara í hringi og mér fannst ég sjálf hafa farið í hring þegar ég gerði fyrsta hringinn. Og svo var ég líka að gera hring eftir hring eftir hring.“ Ef þú lítur til baka, hefðir þú þá jafnvel frekar átt að feta lista- brautina upphaflega í stað þess að fara í verkfræðina? „Ég sá ekkert praktískt við að læra hönnun eða myndlist þegar ég stóð frammi fyrir valinu á há- skólanámi, sem þó var í raun það sem mig langaði mest til. Mér þótti ólíklegt að það gæti geng- ið upp hjá mér að lifa af sem lista- maður og sjá fyrir fjölskyldu í leiðinni en sem betur fer hef ég áttað mig á því að raunveruleik- inn er annar. Verkfræðin held- ur mörgum leiðum opnum varð- andi framhaldsnám og eins sá ég fyrir mér að ég gæti tengt hana við húsahönnun seinna meir. Ég sé ekki eftir náminu mínu. Ekki í eina mínútu. Ég lærði margt í verkfræðinni sem nýtist mér núna við uppbyggingu Hring eftir hring og rekstur fyrirtækisins. En það dýrmætasta sem ég lærði þar var að takast á við það sem manni þykir erfitt og stundum óyfirstíg- anlegt, vinna verkið og leysa það að lokum. Það er besta sjálfsstyrk- ing sem ég þekki, að gefast ekki upp þó þú vitir ekki hver lausnin er í raun, fyrr en eftir á. Því yfir- leitt er það auðveldara en maður heldur og það vekur hjá manni sigurtilfinningu og gefur manni þá vissu að maður sé sterkur og sjálfstæður einstaklingur.“ Hugsjón Steinunnar Völu varð- andi Hring eftir hring er skýr rétt eins og markmiðin hennar. „Ég hugsa þetta sem ævistarf. Allt sem við gerum hjá Hring eftir hring er gert með það fyrir augum að fyrirtækið verði sjálf- bært, að það verði þekkt á al- þjóðamarkaði sem gott og vandað hönnunarfyrirtæki sem búi yfir góðri þekkingu á framleiðslu, dreifingu og sölu hönnunarvara. Þannig getum við boðið fleiri hönnuðum góð atvinnutækifæri og stuðning við að koma hug- myndum sínum og vörum á fram- færi. Mikið af tíma mínum fer í að mynda, rækta og efla tengsl við mikilvæga samstarfsaðila er- lendis. Tengslanetið er mjög mik- ilvægt. Bloggarar, blaðamenn, ritstjórar, eigendur hönnunar- verslana, umboðsmenn, kynning- arfulltrúar, framleiðendur, aðrir hönnuðir, sýningarstjórar, ljós- myndarar og prófessorar hjá há- skólum – allt þetta fólk er mikil- vægt í þessu ferli. Allt skartið er byggt á einhvers konar handverki Segðu örlítið frá samstarfi þínu við handverksfólk víða um land. „Ég hef alltaf viljað geta útveg- að góð störf fyrir fólk, bæði hér í borginni og úti á landi, og er mjög upptekin af handverksfólki. Ætli ég hafi ekki einnig orðið örlít- ið pirruð af leirnum sem ég vann með og langaði að vinna með fag- fólki sem byggi yfir sérþekkingu og tækjabúnaði þannig að erfið- ara væri að herma eftir vörun- um. Þegar ég ákvað að gera nýja línu sem nefnist Teboðið leitaði ég til tannsmiða en þeir vinna ótrú- lega nákvæmnisvinnu sem gaman er að kynnast. Leirlistakona gerir fiskana og hina postulínshlutina fyrir mig og einnig vinn ég með Mugga húsgagnasmið sem gerir tréslaufurnar. Gullsmiður smíðar fyrir okkur hringana í Teboðslín- unni. Handverk tel ég afar mik- ilvægt að haldist á lífi, rétt eins og mikilvægt er að við þekkj- um tungumálið okkar, kunnum að lesa og skrifa og vitum hvað- an mjólkin og kjötið kemur, því að þó tæknin hjálpi okkur og opni margar dyr þá er handverkið grunnurinn. Ég hef mikla ástríðu fyrir handverki og hef sjálf unun af því að vinna með höndunum.“ Eftirlíkingar geta verið skraut- fjöður í hattinn Skartið þitt hefur notið mikilla vinsælda og þá virðast eftirlíking- ar fylgja í kjölfarið. Hvað finnst þér um það? „Það er ekki alslæmt að gerðar séu eftirlíkingar af vörum þínum. Það jákvæða er að með eftirlíking- unum fylgir viðurkenning á því að þú hafir búið til eftirsóknarverða vöru. Stundum hefur það verið notað sem skrautfjöður í minn hatt þegar ég hef verið kynnt fyrir erlendum aðilum í fyrsta sinn: „Þetta er Steinunn Vala skart- gripahönnuður. Það er ótrúlegt hversu margir hafa reynt að gera eftirlíkingar af skartinu hennar á Íslandi.“ En vissulega eru mörg vandræði sem fylgja eftirlíking- 20% Meiri árangur BEETELITE örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Betra blóðflæði, 30% æðaútvíkkun, 30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur, aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka og úthald, hraðar bata eftir æfingar. Bættir árangur íþróttafólks alt að 16-20% Örvar upptöku annara vítamína, fæðubótarefna. U m b o ð : w w w .v it ex .is Hvað gerir SILDENAFIL The release of nitric oxide molecules causes erection. Rauðrófukristall 100% lífrænt og því fullkomlega öruggt 1 skot 30 mín. fyrir æfingar blandað í 150 ml af vatni. Endist 6 tíma í líkamanum. Bætt blóðflæði 30 mín. eftir inntöku. Fæst í World Class, apótekum og heilsubúðum Nitric Oxide Nóbelsverðlaun 1998 - Sameind ársins 1992 Stingur keppinautana af. 1. bréf af NeoShot = 1 líter af rauðrófusafa STEINUNN VALA LANGAÐI BARA AÐ VERA HEIMA OG PRJÓNA Í dag rekur Steinunn Vala Sigfúsdóttir handverks- og framleiðslufyrirtækið Hring eftir hring. Fyrir nokkrum árum tók hún mikilvæga ákvörðun um að fylgja hjartanu og segist vera lánsöm að starfa við það sem hún hefur unun af. Lífi ð ræddi við hana um fyrirtækið sem er í stöðugri þróun, íslenskt handverk, eftirlíkingar og annasamt líf með stóra fjölskyldu. NAFN: Steinunn Vala Sigfúsdóttir ALDUR: 34 ára síðan 8. janúar sl. STARF: Ég er skartgripahönnuður hjá Hring eftir hring en mestur tími fer reyndar í allt annað en hönnunina, hann fer í að halda utan um, byggja upp og reka fyrirtækið. HJÚSKAPARSTAÐA: gift Stefáni Eiríks Stefánssyni. BÖRN: Snorri Þór, 8 ára, Friðrik Trausti, 7 ára, og Nikulás Flosi, 4 ára.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.