Fréttablaðið - 21.02.2014, Qupperneq 28
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Hönnun. Snyrtibuddan. Steinunn Vala Sig fúsdóttir. Fataskápurinn og Kron Kron. Matur og Fatahönnun. Spjörunum Úr og Bloggarinn.
6 • LÍFIÐ 21. FEBRÚAR 2014
Þ
að gerðist bara einn daginn
að ég sá hlutina í nýju ljósi,
eins og það rofaði til í huga
mér og mig langaði allt í
einu bara að vera heima
og prjóna lopapeysur frekar en
vinna áfram sem verkfræðingur.
Ég hafði lagt allan minn metnað
í verkfræðina í þeim tilgangi að
læra eitthvað praktískt og merki-
legt og tók líka þátt í ungliðapóli-
tíkinni með það í huga að verða
menntamálaráðherra einn dag-
inn,“ segir Steinunn Vala Sigfús-
dóttir hlæjandi þegar talið berst
að aðdraganda Hring eftir hring
ævintýrsins. Hún stóð á tíma-
mótum í lífi sínu, ófrísk að þriðja
barni og þráði ekkert heitar en að
synda á móti straumnum.
Steinunn Vala fékk leyfi frá
vinnunni á arkitektastofunni sem
hún starfaði á og ákvað að sækja
um í myndlist í Listaháskólanum
til að ýta undir sköpunargáfuna
og láta gamlan listakonudraum
rætast. „Í undirbúningsnámi
fyrir inntöku í Listaháskólann
var rík áhersla lögð á að horfa
inn á við og ég áttaði mig á því að
ég hef verið að búa til skartgripi
allt mitt líf. Ég hafði alltaf búið
til fylgihluti til að poppa lúnu og
margnotuðu flíkurnar mínar upp
því ég var alltaf svo blönk. Eitt af
verkefnunum mínum gekk út á að
sýna að hægt væri að gera skart
úr öllu í kringum þig, sama hvað
það er. Upphaflegi hringurinn
minn var því búinn til úr afgöng-
um, ef svo má að orði komast.“
Hringurinn vakti strax athygli
Hver er sagan á bak við fyrsta
hringinn?
„Allt þetta ævintýri mitt hefur
verið tekið í litlum skrefum. Ég
bjó til einn hring úr leir og gekk
með hann sjálf. Alls staðar sýndi
fólk áhuga á að eignast slíkan
hring og ég fann því fljótt að
þetta gæti orðið dýrmætt verk-
efni. Það var frekar snemma sem
ég setti mér það langtímamark-
mið að búa til vörumerki með
stefnuna á að stækka og fá hönn-
uði til að starfa í fyrirtækinu.
Það er lykilatriði að fá fjárfesta
en þeir vilja fjárfesta í einhverju
sem er raunhæft og eftirsóknar-
vert. Ég get ímyndað mér að fæst-
ir hönnuðir viti í byrjun hvernig
fjárfestar eru aðgengilegir. Verk-
fræðinámið hefur því nýst mér
einstaklega vel. Ég hugsa þetta í
eins konar ferli og reikna allt út
á hagkvæman hátt. Núna erum
við að safna okkur tengslaneti
og reynslu. Með reynslu tekurðu
betri ákvarðanir, heldur utan um
framleiðendur, fjárfestana, lag-
erinn og sölustaði. Á Íslandi eru
rosalega margir að gera flotta
hluti og það er frjáls hönnun sem
er tekið eftir erlendis. Margir
gefast þó upp á rekstrinum sem
fylgir því að vera með eigið vöru-
merki því það tekur langan tíma
að ná uppskeru.
„Hvaðan kemur nafnið Hring
eftir hring?
„Ég hef alltaf átt erfitt með
nöfn, dúkkan mín hét Dúkkan
hennar Steinu. Hesturinn minn
fékk aldrei nafn heldur og hét
bara Hesturinn hennar Steinu.
Þegar mig vantaði nafn á fyrir-
tækið þá leitaði ég til mágkonu
minnar sem kom með hugmynd-
ina. Mér þótti nafnið henta vel
enda vísar það til þess að hlutirn-
ir hafa tilhneigingu til að fara í
hringi og mér fannst ég sjálf hafa
farið í hring þegar ég gerði fyrsta
hringinn. Og svo var ég líka að
gera hring eftir hring eftir hring.“
Ef þú lítur til baka, hefðir þú
þá jafnvel frekar átt að feta lista-
brautina upphaflega í stað þess
að fara í verkfræðina?
„Ég sá ekkert praktískt við að
læra hönnun eða myndlist þegar
ég stóð frammi fyrir valinu á há-
skólanámi, sem þó var í raun það
sem mig langaði mest til. Mér
þótti ólíklegt að það gæti geng-
ið upp hjá mér að lifa af sem lista-
maður og sjá fyrir fjölskyldu í
leiðinni en sem betur fer hef ég
áttað mig á því að raunveruleik-
inn er annar. Verkfræðin held-
ur mörgum leiðum opnum varð-
andi framhaldsnám og eins sá ég
fyrir mér að ég gæti tengt hana
við húsahönnun seinna meir. Ég
sé ekki eftir náminu mínu. Ekki
í eina mínútu. Ég lærði margt
í verkfræðinni sem nýtist mér
núna við uppbyggingu Hring eftir
hring og rekstur fyrirtækisins. En
það dýrmætasta sem ég lærði þar
var að takast á við það sem manni
þykir erfitt og stundum óyfirstíg-
anlegt, vinna verkið og leysa það
að lokum. Það er besta sjálfsstyrk-
ing sem ég þekki, að gefast ekki
upp þó þú vitir ekki hver lausnin
er í raun, fyrr en eftir á. Því yfir-
leitt er það auðveldara en maður
heldur og það vekur hjá manni
sigurtilfinningu og gefur manni
þá vissu að maður sé sterkur og
sjálfstæður einstaklingur.“
Hugsjón Steinunnar Völu varð-
andi Hring eftir hring er skýr
rétt eins og markmiðin hennar.
„Ég hugsa þetta sem ævistarf.
Allt sem við gerum hjá Hring
eftir hring er gert með það fyrir
augum að fyrirtækið verði sjálf-
bært, að það verði þekkt á al-
þjóðamarkaði sem gott og vandað
hönnunarfyrirtæki sem búi yfir
góðri þekkingu á framleiðslu,
dreifingu og sölu hönnunarvara.
Þannig getum við boðið fleiri
hönnuðum góð atvinnutækifæri
og stuðning við að koma hug-
myndum sínum og vörum á fram-
færi. Mikið af tíma mínum fer í
að mynda, rækta og efla tengsl
við mikilvæga samstarfsaðila er-
lendis. Tengslanetið er mjög mik-
ilvægt. Bloggarar, blaðamenn,
ritstjórar, eigendur hönnunar-
verslana, umboðsmenn, kynning-
arfulltrúar, framleiðendur, aðrir
hönnuðir, sýningarstjórar, ljós-
myndarar og prófessorar hjá há-
skólum – allt þetta fólk er mikil-
vægt í þessu ferli.
Allt skartið er byggt á einhvers
konar handverki
Segðu örlítið frá samstarfi þínu
við handverksfólk víða um land.
„Ég hef alltaf viljað geta útveg-
að góð störf fyrir fólk, bæði hér í
borginni og úti á landi, og er mjög
upptekin af handverksfólki. Ætli
ég hafi ekki einnig orðið örlít-
ið pirruð af leirnum sem ég vann
með og langaði að vinna með fag-
fólki sem byggi yfir sérþekkingu
og tækjabúnaði þannig að erfið-
ara væri að herma eftir vörun-
um. Þegar ég ákvað að gera nýja
línu sem nefnist Teboðið leitaði ég
til tannsmiða en þeir vinna ótrú-
lega nákvæmnisvinnu sem gaman
er að kynnast. Leirlistakona gerir
fiskana og hina postulínshlutina
fyrir mig og einnig vinn ég með
Mugga húsgagnasmið sem gerir
tréslaufurnar. Gullsmiður smíðar
fyrir okkur hringana í Teboðslín-
unni. Handverk tel ég afar mik-
ilvægt að haldist á lífi, rétt eins
og mikilvægt er að við þekkj-
um tungumálið okkar, kunnum
að lesa og skrifa og vitum hvað-
an mjólkin og kjötið kemur, því
að þó tæknin hjálpi okkur og opni
margar dyr þá er handverkið
grunnurinn. Ég hef mikla ástríðu
fyrir handverki og hef sjálf unun
af því að vinna með höndunum.“
Eftirlíkingar geta verið skraut-
fjöður í hattinn
Skartið þitt hefur notið mikilla
vinsælda og þá virðast eftirlíking-
ar fylgja í kjölfarið. Hvað finnst
þér um það?
„Það er ekki alslæmt að gerðar
séu eftirlíkingar af vörum þínum.
Það jákvæða er að með eftirlíking-
unum fylgir viðurkenning á því að
þú hafir búið til eftirsóknarverða
vöru. Stundum hefur það verið
notað sem skrautfjöður í minn
hatt þegar ég hef verið kynnt fyrir
erlendum aðilum í fyrsta sinn:
„Þetta er Steinunn Vala skart-
gripahönnuður. Það er ótrúlegt
hversu margir hafa reynt að gera
eftirlíkingar af skartinu hennar
á Íslandi.“ En vissulega eru mörg
vandræði sem fylgja eftirlíking-
20% Meiri árangur
BEETELITE
örvar Nitric Oxide framleiðslu strax.
Betra blóðflæði, 30% æðaútvíkkun, 30% meiri súrefnisupptaka,
réttur blóðsykur, aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka og
úthald, hraðar bata eftir æfingar.
Bættir árangur íþróttafólks alt að 16-20%
Örvar upptöku annara vítamína, fæðubótarefna.
U
m
b
o
ð
: w
w
w
.v
it
ex
.is
Hvað gerir SILDENAFIL The release of nitric oxide molecules causes erection.
Rauðrófukristall
100% lífrænt og því fullkomlega öruggt
1 skot 30 mín. fyrir æfingar
blandað í 150 ml af vatni.
Endist 6 tíma í líkamanum.
Bætt blóðflæði 30 mín.
eftir inntöku.
Fæst í World Class,
apótekum og heilsubúðum
Nitric Oxide
Nóbelsverðlaun 1998 - Sameind ársins 1992
Stingur
keppinautana af.
1. bréf af NeoShot
= 1 líter af
rauðrófusafa
STEINUNN VALA LANGAÐI BARA
AÐ VERA HEIMA OG PRJÓNA
Í dag rekur Steinunn Vala Sigfúsdóttir handverks- og framleiðslufyrirtækið Hring eftir hring.
Fyrir nokkrum árum tók hún mikilvæga ákvörðun um að fylgja hjartanu og segist vera lánsöm að starfa við það sem hún hefur unun af.
Lífi ð ræddi við hana um fyrirtækið sem er í stöðugri þróun, íslenskt handverk, eftirlíkingar og annasamt líf með stóra fjölskyldu.
NAFN:
Steinunn Vala Sigfúsdóttir
ALDUR:
34 ára síðan 8. janúar sl.
STARF:
Ég er skartgripahönnuður hjá
Hring eftir hring en mestur tími
fer reyndar í allt annað en
hönnunina, hann fer í að halda
utan um, byggja upp og reka
fyrirtækið.
HJÚSKAPARSTAÐA:
gift Stefáni Eiríks Stefánssyni.
BÖRN:
Snorri Þór, 8 ára, Friðrik
Trausti, 7 ára, og Nikulás
Flosi, 4 ára.