Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.02.2014, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 21.02.2014, Qupperneq 29
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 21. FEBRÚAR 2014 • 7 Sú tilhugsun, að fleiri fái að njóta, drífur mig áfram. Fólk sem hefur unun af því að vinna með hönd- unum, eins og ég sjálf. um. Þær villa um fyrir neytend- um. Oftast eru gæði eftirlíking- anna léleg, enda forsenda þess að það sé þess virði að búa til eftirlík- ingu sú að hún kosti minna en upp- runalega varan. Það er mikil kúnst að búa til góða og vandaða vöru sem búin er til af fólki við mann- sæmandi aðstæður og þolir álagn- ingu hönnuðarins, vörumerkis- ins, framleiðandans, sölustaðar- ins og ríkisins. Allir þessir þættir eru mikilvægir og nauðsynlegir. Við viljum hafa búðir, ekki satt? Við viljum ganga að því vísu að við getum skipt vöru, fengið nýja og heyrt söguna á bak við vöruna. Við viljum geta eignast annan stól við borðstofuborðið sem er af sömu gerð og hinir. Allt kostar það sitt. Við viljum líka að hönnuðir hanni hluti fyrir okkur. Fólk sem hefur menntun, þjálfun og reynslu af að búa til hluti sem endast, eru um- hverfisvænir, hagkvæmir, falleg- ir með góða notkunarmöguleika. Við viljum líka hafa vörumerki eða fyrirtæki sem halda utan um allt saman því án þeirra værum við ein, hver í sínu horni að halda uppi mörgum diskum í einu – það er ekki góð nýting á tíma.“ Lífið gengur upp Íslenskar konur vinna mjög mikið ásamt því sem þær sinna öllu sem viðkemur fjölskyldulífinu. Hvernig hefur þér tekist að sameina krafta þína á þessum sviðum í miðri upp- byggingu á fyrirtæki? „Ég hugsa um það daglega hversu lánsöm ég er, að hafa tök á því að vinna við það sem ég hef mesta ánægju af að gera. Bara það eitt, að finna sína réttu hillu í líf- inu, er dýrmætt og gefur manni heilmikla orku. Einnig á ég mann sem tekur þátt í uppeldinu og fjöl- skyldulífinu til jafns við mig. Ég á heilsuhrausta stráka sem bjarga sér eins og þeir geta, svo þetta reddast allt einhvern veginn. Oft skipti ég vinnudeginum í tvennt. Vinn aftur á kvöldin þegar strák- arnir eru komnir í háttinn en hef í staðinn tíma fyrir fiðlutíma og skutl í lok skóladags. En ákveðir þú að reka inn nefið til mín í kaffi þá eru yfirgnæfandi líkur á að þú þurfir að setjast ofan á þvotta- hrúgu í sófanum og kannski þú stígir á eins og einn legókubb (já, eða hundrað kubba) líka, svo ekki fara úr skónum.“ Sér falleg augnablik úti um allt Hvað veitir þér innblástur í hönn- uninni? „Sú tilhugsun, að fleiri fái að njóta, drífur mig áfram. Fólk sem hefur unun af því að vinna með höndunum, eins og ég sjálf. Frum- raun okkar í þessa átt er skart- gripa lína sem við munum frum- sýna á Hönnunarmars og heit- ir Hryggur. Hún er sköpunarverk Jóns Helga Hólmgeirssonar vöru- hönnuðar og samanstendur af bindi fyrir herra, bindi fyrir dömur, hálsmeni fyrir bæði og armbandi. Annars veiti ég mörgu í umhverfi mínu athygli og er eig- inlega alltaf að horfa í kringum mig. Ekki af forvitni endilega, heldur sé ég bara falleg augnablik úti um allt. Ég tek til dæmis allt- af eftir höndum á fólki og handa- hreyfingum. Hvernig fingurn- ir hreyfast og hvernig fólk beitir höndunum. Fólk er eitt af því sem ég hef mestan áhuga á og ég veit fátt skemmtilegra en að kynnast ólíkum einstaklingum.“ Svona verða skartgripirnir til í öllum regnbogans litum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.