Fréttablaðið - 21.02.2014, Blaðsíða 34
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Hana Evu Einarsdóttur,
vinkonu mína og borgarfulltrúa,
en ég var ekki búin að hitta
hana allt of lengi.
En kysstir? Eva fékk líka koss.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig? Agus
Makkie, indónesískur blaða-
maður, sem hefur komið á Ice-
land Airwaves síðustu árin og
færir mér alltaf gjöf. Á síðustu
hátíð gaf hann mér kaffi frá
Jövu og hálsklút. Hann er topp
næs gaur.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búin að umbera allt
of lengi? Ég held að partur
af því að eldast og þroskast sé
að taka sjálfan sig í sátt og allt
sem manni fylgir, bæði galla
og kosti.
Ertu hörundsár? Já, pínu.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Já, ég hugsa að ég
dansi meira þegar enginn sér til
en þegar einhver sér til.
Hvenær gerðirðu þig síð-
ast að fífli og hvernig? Það
sem stendur upp úr er þegar ég
hitti Pharrell Williams á SXSW í
Texas í fyrra og varð svo „star-
struck“ að ég sagði „I’m a huge
can“ þegar ég ætlaði að segj-
ast vera „huge fan“. Ég fer
ennþá að hlæja við tilhugsunina
um að hafa sagst vera risastór
dós við Pharrell Williams!
Hringirðu stundum í vælu-
bílinn? Ég tárast yfir óþarfa
mörgu en ég held að það sé al-
gjör óþarfi að hringja á vælubíl-
inn yfir því.
Tekurðu strætó? Ég tók
mikið strætó áður fyrr en á í
dag bíl og er líka heppin að
búa nálægt vinnu og miðbæn-
um.
Hvað eyðirðu miklum
tíma á Facebook á dag?
Ég nota samfélagsmiðla mikið
í mínu starfi og fel þess vegna
óhóflega Facebook-notkun á
bak við það.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heilsarðu
þeim? Bara þegar ég hitti
Pharrell Williams.
Lumarðu á einhverju sem
fáir vinir þínir vita um
þig? Ég elska ís og hef allt-
af pláss fyrir hann. En ég held
reyndar að allir vinir mínir viti
það.
Hvað ætlarðu alls ekki að
gera um helgina? Ég ætla
alla vega ekki að ákveða að
gera ekki eitthvað og fara síðan
á bömmer ef ég geri það.
Kamilla
Ingibergsdóttir
ALDUR: 34
STARF: Kynningarstjóri Ice-
land Airwaves
Victoria Tårnegren
imnext.se/carolineroxy/
http://instagram.com/
victoriatornegren
BLOGGARINN TILNEFND TIL BLOGGVERÐLAUNA Í SVÍÞJÓÐ
Victoria Tårnegren hefur skapað sér nafn í
bloggheiminum, sérstaklega í heimalandi sínu,
Svíþjóð. Hún hefur nú verið tilnefnd til sænsku
bloggverðlaunanna, Finest Awards, sem tísku-
bloggari ársins. Systir hennar, Alexandra Bring,
er einnig tilnefnd fyrir besta æfingablogg
ársins. Þó að þú sért ekki fluglæs á sænsku er
óþarfi að örvænta því myndirnar hennar einar
og sér eru trendí og skemmtilegar.