Fréttablaðið - 21.02.2014, Side 50
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34
60 & 64
Næstsíðasta keppnisgrein
Íslendinga á leikunum í Sotsjí fer
fram í dag en þá keppa þær
Helga María Vilhjálmsdóttir og
Erla Ásgeirsdóttir í svigi kvenna.
Helga María er með rásnúmer 60
og Erla 64 en fyrri ferðin hefst
klukkan 12.45 að íslenskum tíma.
Sú síðari hefst klukkan 16.15.
Svig karla fer svo fram á laugar-
dagsmorgun en þar á Ísland
einnig tvo fulltrúa.
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR SOCHI 2014 STJÖRNUR DAGSINS
Norðmenn urðu í gær fyrsta
þjóðin til að vinna tíu gull-
verðlaun á Vetrarólympíuleik-
unum í Sotsjí en þeir gerðu
það með því að bera sigur úr
býtum í liðakeppni norrænu
tvíkeppninninnar. Lokasprett-
urinn í seinni greininni, 4x5 km
skíðagöngu, var æsispennandi og komu Norðmenn í mark
aðeins 0,3 sekúndum á undan sveit Þýskalands.
Jörgen Graabak, sem fór lokasprett Noregs í göngunni,
var að vinna sín önnur gullverðlaun á leikunum. Hann
vann einnig norrænu tvíkeppnina af hærri stökkpalli.
DAGSKRÁ FÖSTUDAGS
Hin sautján ára Adelina Sotnikova varð
að þjóðhetju í Rússlandi í gær er
hún bar sigur á býtum í listhlaupi
kvenna á skautum. Hún fékk
149,95 stig fyrir frjálsu æfingarnar
í gær og hafði þar með betur en
heims- og Ólympíumeistarinn Yuna
Kim frá Suður-Kóreu sem varð að
sætta sig við silfur.
Sigurinn var þó nokkuð umdeild-
ur enda æfingar Kim einnig glæsi-
legar. Sotnikovu var þó gríðarlega vel
fagnað af heimamönnum í Sotsjí.
ADELINA SOTNIKOVA
LISTHLAUP Á SKAUTUM
JÖRGEN GRAABAK
NORRÆN TVÍKEPPNI
KÖRFUBOLTI Íslenskir körfuboltaáhugamenn muna
vel eftir Franc Booker sem spilaði með ÍR, Val og
Grindavík á árunum 1991 til 1995. Booker endurskrif-
aði ekki aðeins metabók úrvalsdeildar karla í þriggja
stiga körfum heldur eignaðist hann einnig son hér á
landi með Þórunni Jónsdóttur.
Frank Aron Booker er nú orðinn 19 ára gamall og
á fyrsta ári með körfuboltaliði Oklahoma-háskólans
í Big 12 deildinni í NCAA. Frank Aron hefur eins og
flestir nýliðar þurft að sanna sig fyrir þjálfaraliði
skólans en um síðustu helgi sló hann í gegn þegar
hann skoraði 15 stig á aðeins 20 mínútum í 77-74 sigri
á nágrönnunum í Oklahoma State.
„Hann var rosaflottur um síðustu helgi,“ sagði
móðir hans, Þórunn Jónsdóttir, þegar Fréttablaðið
heyrði í henni í gær. Frank Aron er fæddur í júlí 1994
en Þórunn segir hann hafa verið í Bandaríkjunum síð-
ustu átta árin.
„Hann er fæddur hérna og fór til pabba síns öðru
hvoru. Svo var hann kominn á fullt í körfuboltanum
og varð bara að vera hjá pabba sínum,“ segir Þórunn.
Átta ár síðan hann var á Íslandi
„Það eru að verða átta ár síðan hann var síðast hér
á landi. Ég fylgist vel með honum og pabbi hans er
duglegur að senda mér úrklippur með honum og fleira
slíkt,“ segir Þórunn sem ætlar að fara út til hans í vor.
Frank Aron hitti meðal annars úr 4 af 6 þriggja
stiga skotum sínum í leiknum um síðustu helgi og það
má segja að eplið hafi ekki fallið langt frá eikinni
þegar kemur að hæfileikanum í að smella niður þrist-
um. Frank Aron hefur aðeins spilað 14,1 mínútu í leik
í vetur en er engu að síður í 2. sæti yfir flestar þriggja
stiga körfur í liðinu (1,3 í leik).
Í einkaþjálfun hjá pabba alla ævi
„Hann ætlar að erfa það frá honum. Hann er búinn
að vera í einkaþjálfun alla ævi. Pabbi hans vinnur
við íþróttamiðstöð í Augusta í Georgíu og er búinn
að vera að kenna honum síðan hann var fimm ára,“
segir Þórunn.
Hún sér Frank Aron ná langt í boltanum. „Hann
ætlar sér í NBA og ekkert minna,“ segir Þórunn stolt
en gerir sér grein fyrir því að það þarf margt að
gerast til að sá draumur rætist. „Þetta er rosalega
skemmtilegt og það er alveg á hreinu að hann á eftir
að gera stóra hluti í körfuboltanum,“ segir Þórunn.
Hún rifjar það upp að honum hafi gengið vel í öllum
íþróttum þegar hann bjó hjá henni á Selfossi. „Þegar
hann var hérna lítill þá æfði hann handbolta og var í
öllum íþróttum. Það voru alltaf allir þjálfararnir að
tala um að það ætti eftir að verða eitthvað úr þess-
um því að hann var svo klár í öllum íþróttunum sem
hann var í. Hann stóð alltaf upp úr í öllum liðum,“
segir Þórunn.
Duglegur að tala íslensku
Þórunn er alltaf í sambandi við strákinn og passar
upp á að hann haldi íslenskunni við. „Ég læt hann
halda henni við. Við tölum saman á Skype og hann er
voðalega duglegur að tala íslenskuna,“ segir Þórunn
en hún saknar stráksins síns. „Ég græt stundum á
næturnar yfir að hafa hann ekki hjá mér en ég hugsa
fyrst og fremst um framtíð hans,“ segir Þórunn.
Það eru margir stórefnilegir íslenskir körfubolta-
menn á svipuðum aldri og Frank Aron og svo gæti
farið að fjórir strákar spili í bandaríska háskóla-
boltanum á næsta tímabili. Elvar Már Friðriksson
hjá Njarðvík og Gunnar Ólafsson hjá Keflavík hafa
báðir fundið sér skóla og Martin Hermannsson hjá
KR hefur fengið boð um að koma út að skoða skóla. En
sér Þórunn strákinn sinn spila fyrir íslenska lands-
liðið?
Langar heim til mömmu
„Hann gæti alveg hugsað sér að spila fyrir Ísland því
hann langar að koma heim til mömmu. Ég veit það
alveg að einhverjir vildu sjá hann spila fyrir lands-
liðið. Þeir hjá KKÍ eru samt ekki byrjaðir að tala við
mig um hann en ég á alveg von á því,“ segir Þórunn.
„Hann er algjör leiðtogi, ánægður með sig og hress
og kátur. Hann er líka stærri en pabbi hans,“ segir
Þórunn. Markmið stráksins eru alveg á hreinu og
hún fylgist stolt með heiman frá Íslandi. „Tárin leka,
þetta er svo fallegt. Hann ætlar ekkert annað en á
toppinn. Hann er bara þannig karakter,“ segir Þórunn
að lokum. ooj@frettabladid.is
Hann ætlar sér í NBA
Íslenska körfuboltalandsliðið hefur mögulega ás uppi í erminni því Frank Aron
Booker er að slá í gegn með Oklahoma Sooners í bandaríska körfuboltanum. Fað-
ir hans er þriggja stiga skyttan Franc Booker en móðir hans er Þórunn Jónsdóttir.
SVAKA SKYTTA EINS OG
PABBI Frank Aron Booker
spilar númer eitt hjá liði Okla-
homa Sooners.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Franc Booker spilaði sína fyrstu leiki
á Íslandi þegar hann kom til ÍR í
janúar 1991. Frammistaða hans fyrsta
mánuðinn verður seint toppuð. Franc
Booker skoraði fimmtán þriggja stiga
körfur í fyrsta leiknum (á móti Njarðvík
8. janúar) og alls 63 þrista í sex leikjum
í janúar, eða 10,5 að meðaltali í leik.
Hann skoraði fimmtán þriggja stiga
körfur í 1. og 3. leik sínum (á móti Snæ-
felli 17. janúar) á Íslandi og það er enn
í dag met yfir flestar þriggja stiga körfur í einum leik í
úrvalsdeild karla. Booker skoraði alls 304 stig í þessum
sex leikjum ÍR í janúar 1991, eða 50,7 stig að meðaltali
í leik. Booker hitti úr 63 af 130 þriggja stiga skotum
sínum í þessum sögulega mánuði sem gerir 48 prósenta
þriggja stiga skotnýtingu. Hann fékk hins vegar ekki
skráða á sig eina stoðsendingu í þessum leikjum.
Janúar 1991– verður hann
einhvern tímann toppaður?
08.30 Krulla karla, bronsleikur:
Kína - Svíþjóð (Sport 4)
09.30 Skíðaat kvenna
12.00 Íshokkí karla, undanúrslit:
Svíþjóð - Finnland
13.30 Krulla karla, úrslitaleikur:
Kanada - Bretland (Sport 4)
14.30 4x6km Boðskíðaskotfimi
kvenna
12.40 Svig kv.: Fyrri f. (Sport 3)
16.10 Svig kv.: Seinni f. (Sport 3)
16.25 Skautaspretthl. (Sport 5)
17.00 Íshokkí karla, undanúrslit:
Bandaríkin - Kanada
22.00 Samantekt
SPORT