Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 2
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur snúið við frávísun
Héraðsdóms Reykjaness í Aserta-málinu svokall-
aða þar sem Karli Löve Jóhannssyni, Gísla Reynis-
syni, Markúsi Mána Michaelssyni Maute og Ólafi
Sigmundssyni er gefið að sök að hafa brotið gjald-
eyrislög.
Málinu var vísað frá þann 14. mars þar sem ákæra
sérstaks saksóknara þótti ekki nægilega skýr. Á það
féllst Hæstiréttur ekki. Málið fer því aftur fyrir hér-
aðsdóm sem mun taka það efnislega fyrir.
„Í málinu er af hálfu sóknaraðila byggt á því að
varnaraðilar hafi haft með sér samverknað auk
þess sem framsetning ákærunnar hefur að geyma
lýsingu á framhaldsbroti. Að þessu gættu þykir
verknaðarlýsing ákærunnar fullnægjandi, enda
verður ekki gerð sú krafa þegar um er að ræða brot
af því tagi að lýst sé sérstaklega samkynja eða eðl-
islíkum brotum í framhaldandi röð,“ segir í dómi
Hæstaréttar.
Í dómi Hæstaréttar í dag kemur fram að ekki sé
réttmætt að gera þá kröfu til sérstaks saksóknara
að þætti hvers varnaraðila sé lýst sérstaklega þegar
byggt sé á því að þeir hafi unnið saman.
„Þá breytir engu sú verknaðarlýsing í ákæru að
varnaraðilar hafi ráðið yfir því erlenda félagi sem
þar greinir, enda getur sakfelling ekki ráðist af
formlegum tengslum þeirra við það félag,“ líkt og
segir í dómnum. - ktd, bj
Hæstiréttur féllst ekki á þá niðurstöðu héraðsdóms að ákæra væri óskýr:
Aserta-málið sent aftur í hérað
FYRIR DÓM Á NÝ Héraðsdómur mun þurfa að fjalla um
Aserta-málið á ný eftir dóm Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÚR ÖSKJUHLÍÐ Á GRANDA-
GARÐ 95
Sögusafnið er fl utt úr hitaveitutankinum vestur
á Fiskislóð.
VEISLA Í CAFÉ LINGUA 95
Asísk tungumál og menning er í brennidepli í
apríl.
FRÉTTIR 2➜12
SKOÐUN 16➜19
HELGIN 20➜50
SPORT 68
MENNING 58➜61
LÍFIÐ 62➜74
FIMM Í FRÉTTUM GJALDTAKA OG VERKFALL
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG,
heimsótti Geysissvæðið um síðustu
helgi. Hann hefur ítrekað lýst þeirri
skoðun að gjaldtaka á svæðinu sé
ólögleg. Ögmundur hefur boðað aðra
heimsókn á svæðið.
Sigrún Eva Jónsdóttir fyrirsæta hef-
ur vakið mikla athygli upp á síðkastið
fyrir framgöngu sína á tískupöllunum í
Reykjavík. Hún starfar nú hjá Wilhelm-
ina Models og hefur nóg að gera.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir, verkefna-
stjóri í Norræna húsinu, vakti athygli á að 30
prósentum af þeim mat, sem kemur í verslanir
hér á landi, er hent óskemmdum. Hún hvetur
til hugarfarsbreytingar.
Aðalheiður Steingrímsdóttir,
formaður samninganefndar Félags
framhaldsskólakennara, stóð í eld-
línunni alla vikuna við að ná viðun-
andi samningum fyrir kennara.
➜ Óskar Bergsson, frambjóðandi framsóknarmanna í Reykjavík, ákvað að draga framboð sitt til baka.
Með því vildi hann axla ábyrgð á slöku gengi fl okksins í könnunum í borginni. Samkvæmt könnunum á
fl okkurinn nokkuð langt í land með að koma inn manni í borginni.
LAGABÓT 16
Þorsteinn Pálsson um frumvarp að einni mestu lagabót síðari ára.
ER STYTTING NÁMS TIL STÚDENTSPRÓFS
TIL HAGSBÓTA FYRIR NEMENDUR? 18
Yngvi Pétursson um fyrirhugaðar kerfi sbreytingar.
FISKVEIÐIDEILUR SÆMA EKKI NORÐUR-
LÖNDUM 19
Formaður og varaformaður umhverfi s- og auðlindanefndar Norður-
landaráðs um makríldeiluna.
HÁLFKÆRINGUR Í TÖLVU-
PÓSTUM 4
Fyrrverandi yfi rmaður Glitnis skýrði texta
tölvupósta í Aurum-málinu þannig að þeir
hefðu verið settir fram í hálfk æringi.
KENNARADEILAN LEYST 6
Samninganefnd framhaldsskólakennara
skrifaði undir nýjan kjarasamning í gær og
mun kennsla hefj ast í framhaldsskólunum
á mánudag.
RÉTTA YFIR KOSOVO-
ALBÖNUM 10
Evrópusambandið ætlar að stofna alþjóðlegan
dómstól til að fj alla um ofb eldisverk Kosovo-
Albana á árunum 1998 og 1999.
UNDIR HÆL MELLUDÓLGA 12
Þjónusta við vændiskonur sem vilja komast
úr aðstæðum sínum snarminnkaði eft ir að
Kristínarhúsi var lokað.
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Þegar þú
vilt gæði
MITT ERFIÐASTA ÁR HJÁ DREKUNUM 68
Körfuboltakappinn Jakob Örn Sigurðarson segir frá vetrinum í
Svíþjóð.
STELPURNAR ÆTLA AÐ SÆKJA TIL SIGURS 68
Ísland mætir Ísrael í undankeppni HM 2015.
FLÓAMARKAÐUR
HÁSKÓLANEMA 20
Háskólanemar tæma geymslur og
selja af sér spjarirnar á Háskólatorgi
í dag.
VILL LÆKKA
SKATTA 46
Halldór Halldórsson vill bjóða raun-
verulega valkosti í borginni.
METSÖLUHÖFUNDAR
OG ORRUSTUSKIP 44
Illugi Jökulsson fj allar um Alistair
McLean í fl ækjusögu dagsins.
VIÐSKIPTI Sæstrengur Emerald
Networks, sem á að tengja Ísland
við Evrópu og Norður-Ameríku,
verður ekki tekinn í notkun á
seinni hluta þessa árs eins og áætl-
anir forsvarsmanna verkefnisins
gerðu ráð fyrir. Áætlað er að taka
strenginn í notkun á næsta ári en
nákvæm tímasetning liggur ekki
fyrir.
Björn Brynjúlfsson, fram-
kvæmdastjóri Emerald Networks
á Íslandi og starfsmaður Thule
Investments, segir fjármögnun
verkefnisins hafa seinkað lagn-
ingu strengsins.
„Við höfum verið að vinna í for-
sölum á bandvídd á strengnum og
náð í nokkra stóra viðskiptavini og
það gengur vel,“ segir Björn.
Strengurinn, sem nefnist Emer-
ald Express, hefur verið í undir-
búningi frá árinu 2011. Verkefnið
er alþjóðlegt en Thule Investments
sér um fjármögnun þess hér á
landi og Vodafone á Íslandi hefur
þegar gert samning um notkun á
strengnum. Fjárfestingin hljóðar
upp á 45 milljónir dala, jafnvirði
5,1 milljarðs króna. Verkið verður
að sögn Björns að mestu fjármagn-
að ef erlendum fjárfestum en inn-
lend fjármögnun gæti numið allt
að tíu prósentum.
Strengurinn á að sögn forsvars-
manna Emerald að auka fjar-
skiptaöryggi hér á landi og skapa
samkeppni innan geira þar sem
einokun hafi ríkt. Hann eigi einn-
ig að stuðla að áframhaldandi upp-
byggingu gagnaversiðnaðar hér á
landi.
Borealis Data Center ehf., sem
forsvarsmenn Thule Investments
koma að, og upplýsingatæknifyrir-
tækið Advania, skoða nú byggingu
nýrra gagnavera og þar er meðal
annars horft til komu sæstrengs-
ins. Nokkrar lóðir eru sagðar
koma til greina en bæði Borealis
og Advania horfa til svæðis við
Fitjar í Reykjanesbæ og Boreal-
is hefur nú þegar fengið úthlutað
lóðum þar.
„Við lítum á þetta sem spenn-
andi svæði þar sem eru að verða
til innviðir fyrir gagnaver og við
erum að taka þátt í þeirri upp-
byggingu meðal annars í gegnum
Emerald,“ segir Björn.
Eyjólfur Magnús Kristinsson,
framkvæmdastjóri hjá Advania,
staðfestir að fyrirtækið sé að
skoða lóðir á svæðinu undir nýtt
tvö þúsund fermetra gagnaver.
„Við höfum verið að skoða þessa
staðsetningu en það hefur ekki
verið gengið frá neinu og aðrir
staðir koma einnig til greina,“
segir Eyjólfur. haraldur@frettabladid.is
Nýr sæstrengur ekki
tekinn í notkun í ár
Sæstrengur sem á að tengja Ísland við Evrópu og Norður-Ameríku verður ekki
tekinn í notkun á árinu eins og gert var ráð fyrir. Mikilvægur þáttur í uppbygg-
ingu gagnaversiðnaðar. Tvö félög skoða lóðir undir gagnaver í Reykjanesbæ.
SÆSTRENGUR LAGÐUR Áætlað er að
strengur Emerald Networks komi í land
við Grindavík. NORDICPHOTOS/AFP
HLJÓMAR VÍGJA HLJÓMA-
HÖLLINA 61
Mikil opnunarhátíð fer fram í dag þegar Hljóma-
höllin verður formlega opnuð.
GÆLT VIÐ PUNGINN 67
Sigga Dögg ráðleggur lesendum Fréttablaðsins.
FER Á BUFFALÓ-SKÓNUM Á
SELFOSS 74
Erpur Eyvindarson kemur fram með nýrri
hljómsveit.
Njarðvík
Svæðið sem Borealis og
Advania eru að skoða
Reykjanesbraut
➜ Lóðirnar sem koma til greina í Reykjanesbæ