Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 21

Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 21
Seljendur hafa rétt til að fjölga boðnum hlutum til sölu í allt að 32% eða um 5% af útgefnum hlutum. Ákvörðun um endanlega stærð útboðsins og skiptingu þess milli tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. Áskrift er skilað rafrænt á áskriftarvef á arionbanki.is Aðgangur að áskriftarvef fæst með: • aðgangsauðkennum fjárfestis að netbanka Arion banka, eða • lykilorði sem óskað er eftir á arionbanki.is og sent er í heimabanka, eða • lykilorði sem nálgast má hjá umsjónaraðila gegn undirritun vottaðrar umsóknar um lykilorð. Áskriftir verða skertar komi til þess að eftirspurn verði umfram þann fjölda hluta sem boðnir eru til sölu Í tilboðsbók A er meginreglan sú að áskriftir yfir 500.000 kr. verða skertar um allt að 75% af upphaflegri áskrift. Þurfi að koma til frekari niðurskurðar verður hámark allra áskrifta fært enn neðar með flötum niðurskurði. Hámarksúthlutun getur því orðið lægri en 500.000 kr. Í tilboðsbók B er meginreglan sú að meta áskriftir á grundvelli verðs. Þátttaka í útboðinu er heimil aðilum með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir og með þeim takmörkunum sem kunna að leiða af lögum. Athygli er vakin á að ákvæði laga nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri koma í veg fyrir að erlendum aðilum, samkvæmt 1. gr. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, sé heimil þátttaka í útboðinu. Eindagi kaupverðs er áætlaður 23. apríl 2014. Stefnt er að því að fyrsti dagur viðskipta með hluti í HB Granda á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. verði 25. apríl 2014. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um HB Granda og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu félagsins dagsettri 27. mars 2014 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast rafrænt á hbgrandi.is og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum HB Granda að Norðurgarði 1 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík. Tilboðsbók A • 8,5% eignarhlutur boðinn til sölu • Áskrift að andvirði 100.000–25.000.000 kr. • Verðbil áskrifta 26,6–32,5 kr./hlut • Heildarsöluandvirði 4,1–5,0 milljarðar kr. • Öllum hlutum úthlutað á sama verði, sem verður jafnt eða lægra en í tilboðsbók B ALMENNT HLUTAFJÁRÚTBOÐ Hefst mánudaginn 7. apríl kl. 16.00 og lýkur fimmtudaginn 10. apríl kl. 16.00 Almennt útboð á hlutum í HB Granda hf. hefst kl. 16.00 mánudaginn 7. apríl og lýkur kl. 16.00 fimmtudaginn 10. apríl og hefur fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. umsjón með útboðinu. Í útboðinu hyggjast Arion banki, Vogun hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. selja 27–32% hlut í HB Granda. Markmið seljenda með útboðinu er annars vegar að það geri HB Granda kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði kauphallarinnar og hins vegar horfa seljendur til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Tvær áskriftarleiðir eru í boði með mismunandi fjárhæðarmörkum og verðmyndun Tilboðsbók B • 18,5% eignarhlutur boðinn til sölu • Áskrift að andvirði frá 15.000.000 kr. en að hámarki 5% eignarhlutur • Lágmarksverð áskrifta 26,6 kr./hlut • Heildarsöluandvirði að lágmarki 9,0 milljarðar kr. • Öllum hlutum úthlutað á sama verði, sem verður jafnt eða hærra en í tilboðsbók A
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.