Fréttablaðið - 05.04.2014, Síða 21
Seljendur hafa rétt til að fjölga boðnum hlutum til sölu í allt að 32% eða um 5% af útgefnum hlutum. Ákvörðun um endanlega
stærð útboðsins og skiptingu þess milli tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn.
Áskrift er skilað rafrænt á áskriftarvef á arionbanki.is
Aðgangur að áskriftarvef fæst með:
• aðgangsauðkennum fjárfestis að netbanka Arion banka, eða
• lykilorði sem óskað er eftir á arionbanki.is og sent er í heimabanka, eða
• lykilorði sem nálgast má hjá umsjónaraðila gegn undirritun vottaðrar umsóknar um lykilorð.
Áskriftir verða skertar komi til þess að eftirspurn verði umfram þann fjölda hluta sem
boðnir eru til sölu
Í tilboðsbók A er meginreglan sú að áskriftir yfir 500.000 kr. verða skertar um allt að 75% af upphaflegri áskrift. Þurfi að
koma til frekari niðurskurðar verður hámark allra áskrifta fært enn neðar með flötum niðurskurði. Hámarksúthlutun getur því
orðið lægri en 500.000 kr.
Í tilboðsbók B er meginreglan sú að meta áskriftir á grundvelli verðs.
Þátttaka í útboðinu er heimil aðilum með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir og með þeim takmörkunum
sem kunna að leiða af lögum. Athygli er vakin á að ákvæði laga nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri koma
í veg fyrir að erlendum aðilum, samkvæmt 1. gr. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, sé heimil þátttaka í útboðinu.
Eindagi kaupverðs er áætlaður 23. apríl 2014. Stefnt er að því að fyrsti dagur viðskipta með hluti í HB Granda á Aðalmarkaði
NASDAQ OMX Iceland hf. verði 25. apríl 2014.
Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um HB Granda og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu félagsins
dagsettri 27. mars 2014 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti.
Lýsinguna má nálgast rafrænt á hbgrandi.is og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum HB Granda að
Norðurgarði 1 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík.
Tilboðsbók A
• 8,5% eignarhlutur boðinn til sölu
• Áskrift að andvirði 100.000–25.000.000 kr.
• Verðbil áskrifta 26,6–32,5 kr./hlut
• Heildarsöluandvirði 4,1–5,0 milljarðar kr.
• Öllum hlutum úthlutað á sama verði, sem verður
jafnt eða lægra en í tilboðsbók B
ALMENNT
HLUTAFJÁRÚTBOÐ
Hefst mánudaginn 7. apríl kl. 16.00 og lýkur fimmtudaginn 10. apríl kl. 16.00
Almennt útboð á hlutum í HB Granda hf. hefst kl. 16.00 mánudaginn 7. apríl og lýkur kl. 16.00 fimmtudaginn 10. apríl og hefur
fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. umsjón með útboðinu. Í útboðinu hyggjast Arion banki, Vogun hf. og Fiskveiðahlutafélagið
Venus hf. selja 27–32% hlut í HB Granda. Markmið seljenda með útboðinu er annars vegar að það geri HB Granda kleift að
uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði kauphallarinnar
og hins vegar horfa seljendur til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði.
Tvær áskriftarleiðir eru í boði með mismunandi fjárhæðarmörkum og verðmyndun
Tilboðsbók B
• 18,5% eignarhlutur boðinn til sölu
• Áskrift að andvirði frá 15.000.000 kr. en að hámarki
5% eignarhlutur
• Lágmarksverð áskrifta 26,6 kr./hlut
• Heildarsöluandvirði að lágmarki 9,0 milljarðar kr.
• Öllum hlutum úthlutað á sama verði, sem verður jafnt
eða hærra en í tilboðsbók A