Fréttablaðið - 05.04.2014, Side 26
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Monica Z var opnun-armynd norrænu kvikmyndahátíð-arinnar í Norræna húsinu og í tilefni þess komu aðalleik-
arar hennar, Edda Magnason og
Sverrir Guðnason, hingað og njóta
þess því bæði tengjast landinu
sterkum böndum.
Sverrir: „Foreldrar mínir búa hér
og öll ættin, nema systir mín sem
býr í Gautaborg. Ég átti heima á
Grenimelnum til tólf ára aldurs og
hef alltaf reynt að halda í málið, tala
til dæmis íslensku við dætur mínar
þrjár.“
Edda: „Pabbi bjó lengi í Sví-
þjóð en það var alltaf töluð sænska
heima. Nú er hann dýralæknir á
Egilsstöðum og ég kem yfirleitt
einu sinni á ári að heilsa upp á hann
og frændur og frænkur. Amma
mín dó fyrir nokkrum árum en hjá
henni var fastur viðkomustaður fjöl-
skyldunnar. Hún átti alltaf pönnu-
kökur og fleira góðgæti. Mér finnst
gaman að versla í Reykjavík og svo
nær pabbi oft í mig á jeppanum.
Ég drekk kaffi og borða súkkulaði
meðan hann keyrir austur, ýmist
norður- eða suðurleiðina.“
Hafið þið einhvern tíma unnið hér
á landi?
Edda: „Ég hef unnið í fiski og selt
ís og pylsur á Egilsstöðum.“
Sverrir: „Fyrir utan að leika í
Borgarleikhúsinu þegar ég var ell-
efu ára vann ég í unglingavinnunni
og kirkjugörðunum. Ég lék líka lítið
hlutverk í Tíma nornarinnar, seríu
sem Friðrik Þór gerði. En ég gæti
alveg hugsað mér að leika meira
hér. Það virðist mikið að gerast hér
í kvikmyndabransanum. Ég held ég
hafi aldrei verið í sama herbergi og
sex leikstjórar en það gerðist í gær-
kveldi og allir voru með einhver
verkefni í pípunum.“
Byrjuðu á hjónaerjum
Þau Edda og Sverrir þekktust ekki
áður en þau byrjuðu að leika saman
í Monicu Z. Var það tilviljun að tveir
Íslendingar lentu saman í þeirri
mynd?
Sverrir: „Ég held ekki að það
hafi verið tilviljun. Ég man þegar
ég hitti Eddu fyrst á hótelherbergi í
Köben, þá voru prufutökur að hefj-
ast fyrir myndina. Það var svolítið
gaman.“
Edda: „Já, við byrjuðum á hjóna-
bandserjum. Spunnum í einhverja
tvo tíma og allt var tekið upp. Enda
fengum við hlutverkin!“
Þið sýnið sterkar tilfinningar í
myndinni. Eruð þið tilfinningaríkar
manneskjur?
Edda: „Já, líklega. Sem leikari
verður maður að minnsta kosti að
hafa greiða leið að tilfinningum
sínum og draga þær fram til skipt-
is eftir þörfum. Allur skalinn þarf
alltaf að vera til taks. Ég var ansi
tilfinninganæm meðan á upptökun-
um stóð en nú er ég smátt og smátt
að verða venjuleg aftur!“
Sverrir: „Sem leikari hefur það
virkilegan tilgang að vera tilfinn-
ingaríkur. Tilfinningaríkur og mús-
íkalskur. Það eru góðir eiginleikar.“
Tökur á Monicu Z tóku tvo mán-
uði að sögn Sverris.
Edda: „En undirbúningstíminn
var langur. Líklega fjögur ár frá
því hugmyndin fæddist. Ég fékk
svona hálft ár til að undirbúa mig.
Það var mjög stíft. Ég þurfti að
leggja skánskuna á hilluna og æfa
mig að tala Stokkhólmssænsku
fyrir utan að breyta söngröddinni
minni þannig að hún væri sem lík-
ust hennar. Svo reyndi ég að setja
mig inn í tíðarandann sem mynd-
in gerist í og hugsanagang Moniku
Tilfinningaskalinn alltaf til taks
Hin sænsk-íslenska söngkona Edda Magnason og hinn íslenski leikari Sverrir Guðnason sem býr og starfar í Svíþjóð eru
stödd á landinu vegna frumsýningar myndarinnar Monica Z. Bæði hlutu þau sænsku gullbjölluna fyrir leik sinn. Edda þreytti
frumraun sína sem leikkona í titilhlutverki myndarinnar sem fjallar um ævi sænsku djasssöngkonunnar Monicu Zetterlund.
Nafn Edda Karin Hjartardóttir en
notar Edda Magnason.
Aldur 29 ára.
Foreldrar Hjörtur Ögmundur
Magnason og Karin Eva Margit
Lindström.
● Fædd og uppalin í Fyldalen á Skáni
í Svíþjóð.
● Spilar á píanó, semur tónlist og
syngur.
● Fyrsta sólóplatan, Edda Magnason,
kom út árið 2010 með eigin lögum
Eddu sem hún söng og spilaði á
píanó.
● Plata númer tvö var Goods, árið
2011. Edda samdi, söng og spilaði
og hannaði auk þess umslagið.
● Fyrsta og eina kvikmyndin til
þessa Monica Z sem var frumsýnd
í september 2013. Myndin var sú
vinsælasta í Svíþjóð á síðasta ári
og hefur verið seld til 23 landa.
Edda fékk sænsku Gullbjölluna
sem besta leikkona í aðalhlutverki.
● Platan Monica Z– Musiken från
filmen er orðin gullplata. Edda var
tilnefnd til Grammi-verðlauna fyrir
hana.
EDDA MAGNASON
Aldur 35 ára
Foreldrar Guðni Albert Jóhannesson
orkumálastjóri og Bryndís Sverris-
dóttir starfsmaður Þjóðminjasafns.
● Fyrsta hlutverk í stóru leikhúsi var
drengur í Heimsljósi í Borgar-
leikhúsinu 1989. Kom líka fram í
áramótaskaupi 1989.
● 1996 fékk hann hlutverk í fyrstu
sjónvarpsseríunni, Sexton.
● Hefur leikið Pontus í 11 Kurt-
Wallander myndum.
● Fékk verðlaun sem besti karlleikari
fyrir hlutverk sitt í dansk/sænsku
myndinni Original á alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Shanghai 2009.
● Lék aðalhlutverk í Storstadsljus í
Borgarleikhúsi Gautaborgar 2008
og í Paraplyerna í Cherbourg í
Borgarleikhúsinu í Stokkhólmi
2011.
● Fékk Gullbjölluna 2014 sem
besti karlleikari í aukahlutverki í
myndinni Monica Z.
SVERRIR PÁLL
GUÐNASON
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
og æfa hreyfingar hennar og tján-
ingu. Síðan fór hellings tími í fata-
prufur, og hár og sminkprófanir.“
Sverrir: „Já, í búningaherberg-
inu sá ég myndir í hundraðatali af
Eddu í ólíkum fatnaði og hugsaði:
Vá, þetta hefur verið vesen. Sjálf-
um leiðist mér að þurfa að máta föt
þegar ég fer í búð að versla.“
Edda: „Þetta var bara liður í að
lifa mig inn í heim Moniku Zetter-
lund.“
Þú spilar á bassa í myndinni,
Sverrir. Ertu hljóðfæraleikari?
Sverrir: „Nei. Ég spila á gítar og
æfði á trompet þegar ég var lítill
en ég þurfti að læra á bassann til
að spila á hann í myndinni. Fékk
þrjá mánuði. Það var mjög gaman.
Ég er að hugsa um að kaupa mér
bassa.“
(Edda tekur nokkra bassatóna.)
Sverrir: „Það er gaman að
segja frá því að við tókum hluta
af myndinni utan við alvöruhús-
ið hennar Monicu Zetterlund. En
svo var íbúðin byggð upp í stúdíói,
eftir sömu teikningum.
Nývöknuð að leika í partíi
Í upphafi ætlaði Per Fly, leik-
stjóri Monicu Z, alls ekki að fá
manneskju sem líktist Moniku
til að leika hana og heldur ekki
djasssöngkonu en svo var honum
bent á Eddu, sem þá hafði aldrei
leikið, ekki einu sinni á skóla-
skemmtun. Var hún ekki hissa
þegar henni var boðið hlutverkið?
Edda: „Ég var beðin að koma í
prufu og varð svolítið forvitin en
bjóst alls ekki við að verða valin.
Allt í einu var ég komin í þetta
krefjandi verkefni en samtímis var
það skemmtilegt.“
Fóruð þið til New York?
Edda: „Ég fór þangað. Upptök-
urnar byrjuðu þar. Í Harlem innan
um fullt af aukaleikurum og leik-
urum, meðal annars í hlutverki
Miles Davis, Ellu Fizgerald og fleiri
frægra.“
Þið keðjureykið í myndinni, sér-
staklega þú, Edda. Eruð þið reyk-
ingafólk?
„Ég var með gervisígarettur
en stundum var ég svo þreytt að
ég fékk mér eina alvöru. Það gat
verið strembið að mæta nývöknuð í
tökur á morgnana til að leika í part-
íi, reykja, djamma og djúsa alveg á
fullu!“
Hvað var í glösunum?
„Mest epladjús eða vatn með soja.
En þegar opnaðar voru freyðivíns-
flöskur þá var það alvöru.“
Er erfitt að sleppa Zetterlund og
verða Edda aftur?
„Nei, ég er byrjuð að finna fyrir
fortíðarþrá þegar ég horfi á mynd-
ina, mér finnst svo langt síðan ég
var að vinna í henni og það var svo
skemmtilegur tími. En ég fór til
Kanada strax eftir að tökum lauk,
var þar með vinum í nýju umhverfi
og það flýtti fyrir því að ég kæmist
úr hlutverkinu. En auðvitað fylgir
Monica mér. Hér sit ég til dæmis
tveimur og hálfu ári eftir tökurnar
og tala um hana.“
Ný plata og þrjár myndir
Heldur þú söngskemmtanir sem
Monica Zetterlund, Edda?
Edda: „Meðan á kynningu
myndarinnar stóð, til dæmis í
sjónvarpi, tók ég oft lögin henn-
ar, söng jafnvel með stórsveit og
það var gaman. En nú vinn ég með
mína eigin tónlist sem er meira
poppuð.“
Heldurðu oft tónleika sem Edda
Magnason?
„Já, ég er með nýja hljómsveit
og gef út nýja plötu í sumar. Eftir
um það bil mánuð set ég á fulla
ferð með að kynna hana og verð
að spila og syngja í allt sumar.
Það væri gaman að koma hingað í
þeim erindum.“
Bíða ekki leikaraverkefnin í
bunkum eftir henni nú þegar hún
hefur slegið í gegn á hvíta tjald-
inu?
„Jú, ég er búin að fá slatta af
tilboðum en á eftir að hugsa mig
um. Akkúrat núna er ég fókuseruð
á nýju plötuna og allt sem henni
fylgir.“
En hvenær megum við eiga von
á að heyra nafnið þitt nefnt næst
í fjölmiðlum, Sverrir? Eru nýjar
myndir í farvatninu eða stór hlut-
verk á sviði?
Sverrir: „Ég er búinn að taka
upp þrjár myndir sem eftir er að
frumsýna. Það eru Blow Fly Park,
sem Jens Östberg leikstýrir. Hann
er ballettdansari og danshöfund-
ur og þegar hann var 24 ára vann
hann stærstu verðlaun sem hægt
er að vinna fyrir dans. Þetta er
hans fyrsta bíómynd. Mjög spenn-
andi verkefni. Þar leik ég mann
sem vinnur á leikskóla og getur
hafa valdið því að vinur hans dó.
Önnur sem ég leik í og er óútkom-
in er My So Called Father í stjórn
Ulf Malmroos. En stærsta verkefnið
er Gentleman sem Mikael Marcim-
ain stýrir og kostar um 100 millj-
ónir sænskra króna. Það er bæði
bíómynd sem kemur í október og
svo var tekin upp sex klukkustunda
sjónvarpssería. Ég leik þar ljóð-
skáld. Gentlemen er eftir samnefnd-
um metsölubókum Klas Östergrens.
Þær spanna tímabilið frá 1943 til
2005 og myndin gerir það líka.“
Meðan Sverrir fer fram að sækja
kaffi með 28% af mjólk fyrir Eddu!
trúir hún mér fyrir því að þótt hún
tali ekki mikla íslensku sé hljóm-
fall tungumálsins henni nærtækt og
leyfir mér að heyra: „Neei, Gvuuð!“
„Þetta kallaði amma upp þegar hún
var búin að missa af flugvélinni
heim til Íslands!“
Í VATNSMÝRINNI Edda og Sverrir hafa gaman af að koma til landsins öðru hvoru og gætu alveg hugsað sér að leika hér og
syngja. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN