Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 26

Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 26
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Monica Z var opnun-armynd norrænu kvikmyndahátíð-arinnar í Norræna húsinu og í tilefni þess komu aðalleik- arar hennar, Edda Magnason og Sverrir Guðnason, hingað og njóta þess því bæði tengjast landinu sterkum böndum. Sverrir: „Foreldrar mínir búa hér og öll ættin, nema systir mín sem býr í Gautaborg. Ég átti heima á Grenimelnum til tólf ára aldurs og hef alltaf reynt að halda í málið, tala til dæmis íslensku við dætur mínar þrjár.“ Edda: „Pabbi bjó lengi í Sví- þjóð en það var alltaf töluð sænska heima. Nú er hann dýralæknir á Egilsstöðum og ég kem yfirleitt einu sinni á ári að heilsa upp á hann og frændur og frænkur. Amma mín dó fyrir nokkrum árum en hjá henni var fastur viðkomustaður fjöl- skyldunnar. Hún átti alltaf pönnu- kökur og fleira góðgæti. Mér finnst gaman að versla í Reykjavík og svo nær pabbi oft í mig á jeppanum. Ég drekk kaffi og borða súkkulaði meðan hann keyrir austur, ýmist norður- eða suðurleiðina.“ Hafið þið einhvern tíma unnið hér á landi? Edda: „Ég hef unnið í fiski og selt ís og pylsur á Egilsstöðum.“ Sverrir: „Fyrir utan að leika í Borgarleikhúsinu þegar ég var ell- efu ára vann ég í unglingavinnunni og kirkjugörðunum. Ég lék líka lítið hlutverk í Tíma nornarinnar, seríu sem Friðrik Þór gerði. En ég gæti alveg hugsað mér að leika meira hér. Það virðist mikið að gerast hér í kvikmyndabransanum. Ég held ég hafi aldrei verið í sama herbergi og sex leikstjórar en það gerðist í gær- kveldi og allir voru með einhver verkefni í pípunum.“ Byrjuðu á hjónaerjum Þau Edda og Sverrir þekktust ekki áður en þau byrjuðu að leika saman í Monicu Z. Var það tilviljun að tveir Íslendingar lentu saman í þeirri mynd? Sverrir: „Ég held ekki að það hafi verið tilviljun. Ég man þegar ég hitti Eddu fyrst á hótelherbergi í Köben, þá voru prufutökur að hefj- ast fyrir myndina. Það var svolítið gaman.“ Edda: „Já, við byrjuðum á hjóna- bandserjum. Spunnum í einhverja tvo tíma og allt var tekið upp. Enda fengum við hlutverkin!“ Þið sýnið sterkar tilfinningar í myndinni. Eruð þið tilfinningaríkar manneskjur? Edda: „Já, líklega. Sem leikari verður maður að minnsta kosti að hafa greiða leið að tilfinningum sínum og draga þær fram til skipt- is eftir þörfum. Allur skalinn þarf alltaf að vera til taks. Ég var ansi tilfinninganæm meðan á upptökun- um stóð en nú er ég smátt og smátt að verða venjuleg aftur!“ Sverrir: „Sem leikari hefur það virkilegan tilgang að vera tilfinn- ingaríkur. Tilfinningaríkur og mús- íkalskur. Það eru góðir eiginleikar.“ Tökur á Monicu Z tóku tvo mán- uði að sögn Sverris. Edda: „En undirbúningstíminn var langur. Líklega fjögur ár frá því hugmyndin fæddist. Ég fékk svona hálft ár til að undirbúa mig. Það var mjög stíft. Ég þurfti að leggja skánskuna á hilluna og æfa mig að tala Stokkhólmssænsku fyrir utan að breyta söngröddinni minni þannig að hún væri sem lík- ust hennar. Svo reyndi ég að setja mig inn í tíðarandann sem mynd- in gerist í og hugsanagang Moniku Tilfinningaskalinn alltaf til taks Hin sænsk-íslenska söngkona Edda Magnason og hinn íslenski leikari Sverrir Guðnason sem býr og starfar í Svíþjóð eru stödd á landinu vegna frumsýningar myndarinnar Monica Z. Bæði hlutu þau sænsku gullbjölluna fyrir leik sinn. Edda þreytti frumraun sína sem leikkona í titilhlutverki myndarinnar sem fjallar um ævi sænsku djasssöngkonunnar Monicu Zetterlund. Nafn Edda Karin Hjartardóttir en notar Edda Magnason. Aldur 29 ára. Foreldrar Hjörtur Ögmundur Magnason og Karin Eva Margit Lindström. ● Fædd og uppalin í Fyldalen á Skáni í Svíþjóð. ● Spilar á píanó, semur tónlist og syngur. ● Fyrsta sólóplatan, Edda Magnason, kom út árið 2010 með eigin lögum Eddu sem hún söng og spilaði á píanó. ● Plata númer tvö var Goods, árið 2011. Edda samdi, söng og spilaði og hannaði auk þess umslagið. ● Fyrsta og eina kvikmyndin til þessa Monica Z sem var frumsýnd í september 2013. Myndin var sú vinsælasta í Svíþjóð á síðasta ári og hefur verið seld til 23 landa. Edda fékk sænsku Gullbjölluna sem besta leikkona í aðalhlutverki. ● Platan Monica Z– Musiken från filmen er orðin gullplata. Edda var tilnefnd til Grammi-verðlauna fyrir hana. EDDA MAGNASON Aldur 35 ára Foreldrar Guðni Albert Jóhannesson orkumálastjóri og Bryndís Sverris- dóttir starfsmaður Þjóðminjasafns. ● Fyrsta hlutverk í stóru leikhúsi var drengur í Heimsljósi í Borgar- leikhúsinu 1989. Kom líka fram í áramótaskaupi 1989. ● 1996 fékk hann hlutverk í fyrstu sjónvarpsseríunni, Sexton. ● Hefur leikið Pontus í 11 Kurt- Wallander myndum. ● Fékk verðlaun sem besti karlleikari fyrir hlutverk sitt í dansk/sænsku myndinni Original á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Shanghai 2009. ● Lék aðalhlutverk í Storstadsljus í Borgarleikhúsi Gautaborgar 2008 og í Paraplyerna í Cherbourg í Borgarleikhúsinu í Stokkhólmi 2011. ● Fékk Gullbjölluna 2014 sem besti karlleikari í aukahlutverki í myndinni Monica Z. SVERRIR PÁLL GUÐNASON Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is og æfa hreyfingar hennar og tján- ingu. Síðan fór hellings tími í fata- prufur, og hár og sminkprófanir.“ Sverrir: „Já, í búningaherberg- inu sá ég myndir í hundraðatali af Eddu í ólíkum fatnaði og hugsaði: Vá, þetta hefur verið vesen. Sjálf- um leiðist mér að þurfa að máta föt þegar ég fer í búð að versla.“ Edda: „Þetta var bara liður í að lifa mig inn í heim Moniku Zetter- lund.“ Þú spilar á bassa í myndinni, Sverrir. Ertu hljóðfæraleikari? Sverrir: „Nei. Ég spila á gítar og æfði á trompet þegar ég var lítill en ég þurfti að læra á bassann til að spila á hann í myndinni. Fékk þrjá mánuði. Það var mjög gaman. Ég er að hugsa um að kaupa mér bassa.“ (Edda tekur nokkra bassatóna.) Sverrir: „Það er gaman að segja frá því að við tókum hluta af myndinni utan við alvöruhús- ið hennar Monicu Zetterlund. En svo var íbúðin byggð upp í stúdíói, eftir sömu teikningum. Nývöknuð að leika í partíi Í upphafi ætlaði Per Fly, leik- stjóri Monicu Z, alls ekki að fá manneskju sem líktist Moniku til að leika hana og heldur ekki djasssöngkonu en svo var honum bent á Eddu, sem þá hafði aldrei leikið, ekki einu sinni á skóla- skemmtun. Var hún ekki hissa þegar henni var boðið hlutverkið? Edda: „Ég var beðin að koma í prufu og varð svolítið forvitin en bjóst alls ekki við að verða valin. Allt í einu var ég komin í þetta krefjandi verkefni en samtímis var það skemmtilegt.“ Fóruð þið til New York? Edda: „Ég fór þangað. Upptök- urnar byrjuðu þar. Í Harlem innan um fullt af aukaleikurum og leik- urum, meðal annars í hlutverki Miles Davis, Ellu Fizgerald og fleiri frægra.“ Þið keðjureykið í myndinni, sér- staklega þú, Edda. Eruð þið reyk- ingafólk? „Ég var með gervisígarettur en stundum var ég svo þreytt að ég fékk mér eina alvöru. Það gat verið strembið að mæta nývöknuð í tökur á morgnana til að leika í part- íi, reykja, djamma og djúsa alveg á fullu!“ Hvað var í glösunum? „Mest epladjús eða vatn með soja. En þegar opnaðar voru freyðivíns- flöskur þá var það alvöru.“ Er erfitt að sleppa Zetterlund og verða Edda aftur? „Nei, ég er byrjuð að finna fyrir fortíðarþrá þegar ég horfi á mynd- ina, mér finnst svo langt síðan ég var að vinna í henni og það var svo skemmtilegur tími. En ég fór til Kanada strax eftir að tökum lauk, var þar með vinum í nýju umhverfi og það flýtti fyrir því að ég kæmist úr hlutverkinu. En auðvitað fylgir Monica mér. Hér sit ég til dæmis tveimur og hálfu ári eftir tökurnar og tala um hana.“ Ný plata og þrjár myndir Heldur þú söngskemmtanir sem Monica Zetterlund, Edda? Edda: „Meðan á kynningu myndarinnar stóð, til dæmis í sjónvarpi, tók ég oft lögin henn- ar, söng jafnvel með stórsveit og það var gaman. En nú vinn ég með mína eigin tónlist sem er meira poppuð.“ Heldurðu oft tónleika sem Edda Magnason? „Já, ég er með nýja hljómsveit og gef út nýja plötu í sumar. Eftir um það bil mánuð set ég á fulla ferð með að kynna hana og verð að spila og syngja í allt sumar. Það væri gaman að koma hingað í þeim erindum.“ Bíða ekki leikaraverkefnin í bunkum eftir henni nú þegar hún hefur slegið í gegn á hvíta tjald- inu? „Jú, ég er búin að fá slatta af tilboðum en á eftir að hugsa mig um. Akkúrat núna er ég fókuseruð á nýju plötuna og allt sem henni fylgir.“ En hvenær megum við eiga von á að heyra nafnið þitt nefnt næst í fjölmiðlum, Sverrir? Eru nýjar myndir í farvatninu eða stór hlut- verk á sviði? Sverrir: „Ég er búinn að taka upp þrjár myndir sem eftir er að frumsýna. Það eru Blow Fly Park, sem Jens Östberg leikstýrir. Hann er ballettdansari og danshöfund- ur og þegar hann var 24 ára vann hann stærstu verðlaun sem hægt er að vinna fyrir dans. Þetta er hans fyrsta bíómynd. Mjög spenn- andi verkefni. Þar leik ég mann sem vinnur á leikskóla og getur hafa valdið því að vinur hans dó. Önnur sem ég leik í og er óútkom- in er My So Called Father í stjórn Ulf Malmroos. En stærsta verkefnið er Gentleman sem Mikael Marcim- ain stýrir og kostar um 100 millj- ónir sænskra króna. Það er bæði bíómynd sem kemur í október og svo var tekin upp sex klukkustunda sjónvarpssería. Ég leik þar ljóð- skáld. Gentlemen er eftir samnefnd- um metsölubókum Klas Östergrens. Þær spanna tímabilið frá 1943 til 2005 og myndin gerir það líka.“ Meðan Sverrir fer fram að sækja kaffi með 28% af mjólk fyrir Eddu! trúir hún mér fyrir því að þótt hún tali ekki mikla íslensku sé hljóm- fall tungumálsins henni nærtækt og leyfir mér að heyra: „Neei, Gvuuð!“ „Þetta kallaði amma upp þegar hún var búin að missa af flugvélinni heim til Íslands!“ Í VATNSMÝRINNI Edda og Sverrir hafa gaman af að koma til landsins öðru hvoru og gætu alveg hugsað sér að leika hér og syngja. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.