Fréttablaðið - 05.04.2014, Side 30
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
ævistarfi, hana hafi bara aldrei
langað að gera neitt annað. „Ég
veit auðvitað að ég verð aldrei
rík af þessu, enda langar mig
ekkert til þess. Það fylgir þessu
starfi lítið öryggi og þótt ég hafi
verið að skrifa undir samning
í Borgarleikhúsinu fyrir næsta
ár þá er engin trygging fyrir
því að ég hafi vinnu næsta leik-
ár þar á eftir. Ég var ótrúlega
heppin að fá samning strax efir
útskrift og er þakklát fyrir það.
Þess vegna reyni ég alltaf að
gera það sem ég geri eins vel og
ég get og taka aldrei neinu sem
gefnu.“
Langar í eitthvað fullorðins
Eitt af fyrstu hlutverkum Þór-
unnar eftir útskrift úr Listahá-
skólanum var prinsessan á Bessa-
stöðum í samnefndu leikriti.
Síðan hefur hún leikið í ýmsum
barnasýningum og þá oftast
leikið börn. Er hún ekkert hrædd
um að festast í barnahlutverk-
unum? „Það er nú bara þannig
að þegar maður hefur barnalega
rödd og er undir einum og sex-
tíu á hæð þá er manni ósjálfrátt
kastað í barnahlutverk. Það hefur
auð vitað bæði kosti og galla, en
kostirnir eru miklu fleiri. Þetta
er samt aðeins að breytast, enda
er ég orðin þrítug, en ég hef samt
fengið ótrúlega mikið að gera
einmitt af því að ég er svona
lítil. Það er gaman að hafa mögu-
leikann á því að geta leikið allt
frá börnum og upp úr en auðvitað
þyrstir mig núna í að fara að gera
meira af fullorðins hlutum. Mér
finnst samt ofsalega skemmtilegt
að leika fyrir börn og mikilvægt
að maður vandi sig við það og líti
ekki á það sem eitthvað annars
flokks.“
Allir græða
Sambýlismaður og barnsfaðir
Þórunnar er Vignir Rafn Valþórs-
son, leikari og leikstjóri, sem
hefur verið að hasla sér völl í
leiklistinni í vetur. Var ekkert
erfitt að taka þá ákvörðun að fara
út í barneignir núna þegar ferill
beggja er að komast á flug? „Ég
held það sé enginn réttur eða
rangur tími til að eignast barn.
Þetta var góð ákvörðun og rétt
og það kemur mér á óvart hvað
mér finnst svakalega gaman að
vera mamma. Það er æðislegt. Ég
held það þurfi ekkert að trufla
ferilinn. Maður hefur val um það
hversu mikið maður flækir líf
sitt og mér finnst best að hafa
hlutina einfalda og búa ekki til
vandamál fyrirfram. Það var
brött ákvörðun að fara að sýna
Litla prinsinn svona stuttu eftir
fæðinguna og margir eru mjög
hissa á mér, en eftir frumsýn-
ingu sýnum við bara um helgar
og barnið fær ánægðari mömmu
sem er að gera eitthvað sem
henni finnst skemmtilegt, þannig
að ég held að allir græði. Auð-
vitað er þetta alltaf púsluspil þar
sem vinnutími leikara er aðal-
lega á kvöldin alla jafna, en þessi
stelpa á frábæran pabba, ömmur
og afa, frænkur og frændur svo
það væsir alls ekkert um hana á
meðan mamma er að vinna.“
Þórunn tekur á móti mér með nýfædda dótturina í fanginu og meðan við spjöllum saman gefur hún brjóst og vaggar litlunni í svefn. Hún er
að frumsýna í dag þótt dóttirin
sé ekki nema átta vikna og eðli-
legt að sú spurning vakni hvort
leikkonur fái ekki fæðingaror-
lof eins og aðrar konur. „Jú,
jú, ef þær vilja. Mig bara lang-
aði að takast á við þetta verk-
efni og gerði sérstakan samn-
ing við Þjóðleikhúsið um það.
Við æfðum á meðan ég var ólétt,
svo fór ég í smá fæðingarorlof og
undanfarnar tvær vikur höfum
við bara verið að fínpússa og
leggja lokahöndina á sýninguna.“
En er ekkert erfitt að fara að
vinna frá svona nýfæddu kríli?
„Nei, nei, hún kemur bara með
mér á æfingar og í öllum pásum
fer ég fram, dáist að henni og
gef henni brjóst.“
Hollt að breyta til
Fram kom í vikunni að Þórunn
hefur skrifað undir samning við
Borgarleikhúsið og hefur þar
störf í haust. Hún hefur verið
fastráðin við Þjóðleikhúsið síðan
hún útskrifaðist, hvers vegna
er hún að skipta um vinnustað?
„Það var bara kominn tími til að
breyta til, ég held það sé nauð-
synlegt fyrir alla. Ekki það að ég
kveð Þjóðleikhúsið með söknuð í
hjarta því það hefur verið ótrú-
lega gaman að vinna þar þessi
fjögur ár. En það er svo auðvelt
að festast í einhverju fari og
nauðsynleg áskorun að hreyfa
sig, vinna með nýju fólki á nýjum
vettvangi þannig að ég er rosa-
lega spennt og hlakka til.“
Hún vill ekki gefa upp hvaða
verkefni verði hennar fyrsta í
Borgarleikhúsinu, en lofar að
það verði spennandi og ekki
barnasýning. „Verkefnin skipta
auðvitað máli en það er samt
fyrst og fremst fólkið sem
maður er að vinna með sem
ræður því hvort það er gaman
að vera með í einhverri sýn-
ingu. Að leika í Macbeth var til
dæmis eitthvað það skemmtileg-
asta og lærdómsríkasta sem ég
hef gert, þótt ég væri bara með
örfáar setningar. Það var svo
frábær leikstjóri, frábær leik-
hópur og skemmtileg vinna.“
Gat ekki gert upp á milli
Þórunn er fædd og uppalin á Ísa-
firði og byrjaði að leika og syngja
þar sjö ára gömul. Hún segist
ekki hafa verið viss um hvort hún
vildi verða leikkona eða söng-
kona þannig að hún sótti bæði um
í söng- og leikaranámi við Lista-
háskólann og komst inn í söng-
námið. „Ég hafði stóra söngkonu-
drauma þegar ég var lítil og gat
bara ekki gert upp á milli söngs-
ins og leiksins. Þannig að ég var
í tónlistardeild LHÍ í þrjú ár og
útskrifaðist þaðan sem söngkona.
Hins vegar sannfærðist ég um
það í því námi að söngkonuferill-
inn heillaði mig ekkert svakalega
mikið. Þú ert miklu meira einn
að vinna að þínu í tónlistinni á
meðan þú ert alltaf að vinna með
fullt af fólki í leikhúsinu. Það
finnst mér svo gefandi. Ég hafði
heldur ekki agann í það að vera
ein inni í æfingaherbergi enda-
laust. Svo ég sótti um í leiklistar-
deildinni og var í LHÍ í fjögur ár
í viðbót til að verða leikkona.“
Þótt Þórunn hafi ekki gert
sönginn að aðalstarfi þá er hún
ennþá virk á því sviði og mun
meðal annars troða upp með
hljómsveit Skúla mennska á
Aldrei fór ég suður um páskana.
„Við höfum verið að vinna svo-
lítið saman og Skúli er rosalega
duglegur að draga mig með sér í
verkefni. Hann er svo skemmti-
legt tónskáld og textahöfundur,
það skiptir mig miklu máli. Mér
finnst ekkert endilega skipta
máli að söngurinn sé fullkom-
inn heldur er það hvernig fólk
kemur textanum til skila sem
kveikir í mér.“
Listin í genunum
Þórunn þakkar áhugann á söng
og leiklist alfarið því að hafa
alist upp á Ísafirði. Þar gekk hún
í Tónlistarskólann, lærði á fiðlu
og píanó auk söngsins og tók þátt
í leiksýningum Litla leikklúbbs-
ins. Hún er þó eini meðlimur fjöl-
skyldunnar sem hefur farið út á
listabrautina.
„Ég held að ef þú býrð á Ísa-
firði þá smitistu ósjálfrátt af
menningunni þar. Tónlistar-
menningin er auðvitað rosalega
sterk en það er leiklistin líka.
Mamma og pabbi voru samt
ekki tónlistar- eða leiklistarfólk,
höfðu bara brennandi áhuga á
að njóta þessara lista, og hvor-
ugt systkina minna hefur farið
út á listabrautina. Mamma segir
reyndar að þetta sé í genunum
og komi úr móðurfjölskyldunni
hennar. Arngrímur málari var
langalangafi minn og ég heiti
í höfuðið á honum og Þórunni
konu hans. Hún var mikil söng-
kona og allar hennar systur
þannig að þessi baktería hefur
alltaf verið í ættinni, þótt fæstir
hafi fylgt henni alla leið, enda
fá tækifæri til þess á þeim tíma.
Það þótti nógu mikið flipp hjá
Þórunni langalangömmu minni
sem var prestsdóttir að giftast
málara.“
Þórunn segist aldrei munu sjá
eftir því að hafa látið bakteríuna
heltaka sig og gert listina að
Það var brött ákvörð-
un að fara að sýna Litla
prinsinn svona stuttu eftir
fæðinguna og margir eru
mjög hissa á mér, en eftir
frumsýningu sýnum við
bara um helgar og barnið
fær ánægðari mömmu
Þórunn Arna Kristjánsdóttir,
leikkona
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Litli prinsinn
gefur brjóst
í pásum
Þórunn Arna Kristjánsdóttir stígur á svið
í hlutverki Litla prinsins í Kúlunni í dag. Hún
hefur átta vikna gamla dóttur sína með sér
á æfingar og skýst til að gefa brjóst í pásum.
Litli prinsinn verður síðasta hlutverk hennar í
Þjóðleikhúsinu því hún er komin á samning hjá
Borgarleikhúsinu þar sem hún byrjar í haust.
ÞÓRUNN ARNA KRISTJÁNSDÓTTIR Móðurhlutverkið er æðislegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA