Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 30

Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 30
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 ævistarfi, hana hafi bara aldrei langað að gera neitt annað. „Ég veit auðvitað að ég verð aldrei rík af þessu, enda langar mig ekkert til þess. Það fylgir þessu starfi lítið öryggi og þótt ég hafi verið að skrifa undir samning í Borgarleikhúsinu fyrir næsta ár þá er engin trygging fyrir því að ég hafi vinnu næsta leik- ár þar á eftir. Ég var ótrúlega heppin að fá samning strax efir útskrift og er þakklát fyrir það. Þess vegna reyni ég alltaf að gera það sem ég geri eins vel og ég get og taka aldrei neinu sem gefnu.“ Langar í eitthvað fullorðins Eitt af fyrstu hlutverkum Þór- unnar eftir útskrift úr Listahá- skólanum var prinsessan á Bessa- stöðum í samnefndu leikriti. Síðan hefur hún leikið í ýmsum barnasýningum og þá oftast leikið börn. Er hún ekkert hrædd um að festast í barnahlutverk- unum? „Það er nú bara þannig að þegar maður hefur barnalega rödd og er undir einum og sex- tíu á hæð þá er manni ósjálfrátt kastað í barnahlutverk. Það hefur auð vitað bæði kosti og galla, en kostirnir eru miklu fleiri. Þetta er samt aðeins að breytast, enda er ég orðin þrítug, en ég hef samt fengið ótrúlega mikið að gera einmitt af því að ég er svona lítil. Það er gaman að hafa mögu- leikann á því að geta leikið allt frá börnum og upp úr en auðvitað þyrstir mig núna í að fara að gera meira af fullorðins hlutum. Mér finnst samt ofsalega skemmtilegt að leika fyrir börn og mikilvægt að maður vandi sig við það og líti ekki á það sem eitthvað annars flokks.“ Allir græða Sambýlismaður og barnsfaðir Þórunnar er Vignir Rafn Valþórs- son, leikari og leikstjóri, sem hefur verið að hasla sér völl í leiklistinni í vetur. Var ekkert erfitt að taka þá ákvörðun að fara út í barneignir núna þegar ferill beggja er að komast á flug? „Ég held það sé enginn réttur eða rangur tími til að eignast barn. Þetta var góð ákvörðun og rétt og það kemur mér á óvart hvað mér finnst svakalega gaman að vera mamma. Það er æðislegt. Ég held það þurfi ekkert að trufla ferilinn. Maður hefur val um það hversu mikið maður flækir líf sitt og mér finnst best að hafa hlutina einfalda og búa ekki til vandamál fyrirfram. Það var brött ákvörðun að fara að sýna Litla prinsinn svona stuttu eftir fæðinguna og margir eru mjög hissa á mér, en eftir frumsýn- ingu sýnum við bara um helgar og barnið fær ánægðari mömmu sem er að gera eitthvað sem henni finnst skemmtilegt, þannig að ég held að allir græði. Auð- vitað er þetta alltaf púsluspil þar sem vinnutími leikara er aðal- lega á kvöldin alla jafna, en þessi stelpa á frábæran pabba, ömmur og afa, frænkur og frændur svo það væsir alls ekkert um hana á meðan mamma er að vinna.“ Þórunn tekur á móti mér með nýfædda dótturina í fanginu og meðan við spjöllum saman gefur hún brjóst og vaggar litlunni í svefn. Hún er að frumsýna í dag þótt dóttirin sé ekki nema átta vikna og eðli- legt að sú spurning vakni hvort leikkonur fái ekki fæðingaror- lof eins og aðrar konur. „Jú, jú, ef þær vilja. Mig bara lang- aði að takast á við þetta verk- efni og gerði sérstakan samn- ing við Þjóðleikhúsið um það. Við æfðum á meðan ég var ólétt, svo fór ég í smá fæðingarorlof og undanfarnar tvær vikur höfum við bara verið að fínpússa og leggja lokahöndina á sýninguna.“ En er ekkert erfitt að fara að vinna frá svona nýfæddu kríli? „Nei, nei, hún kemur bara með mér á æfingar og í öllum pásum fer ég fram, dáist að henni og gef henni brjóst.“ Hollt að breyta til Fram kom í vikunni að Þórunn hefur skrifað undir samning við Borgarleikhúsið og hefur þar störf í haust. Hún hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið síðan hún útskrifaðist, hvers vegna er hún að skipta um vinnustað? „Það var bara kominn tími til að breyta til, ég held það sé nauð- synlegt fyrir alla. Ekki það að ég kveð Þjóðleikhúsið með söknuð í hjarta því það hefur verið ótrú- lega gaman að vinna þar þessi fjögur ár. En það er svo auðvelt að festast í einhverju fari og nauðsynleg áskorun að hreyfa sig, vinna með nýju fólki á nýjum vettvangi þannig að ég er rosa- lega spennt og hlakka til.“ Hún vill ekki gefa upp hvaða verkefni verði hennar fyrsta í Borgarleikhúsinu, en lofar að það verði spennandi og ekki barnasýning. „Verkefnin skipta auðvitað máli en það er samt fyrst og fremst fólkið sem maður er að vinna með sem ræður því hvort það er gaman að vera með í einhverri sýn- ingu. Að leika í Macbeth var til dæmis eitthvað það skemmtileg- asta og lærdómsríkasta sem ég hef gert, þótt ég væri bara með örfáar setningar. Það var svo frábær leikstjóri, frábær leik- hópur og skemmtileg vinna.“ Gat ekki gert upp á milli Þórunn er fædd og uppalin á Ísa- firði og byrjaði að leika og syngja þar sjö ára gömul. Hún segist ekki hafa verið viss um hvort hún vildi verða leikkona eða söng- kona þannig að hún sótti bæði um í söng- og leikaranámi við Lista- háskólann og komst inn í söng- námið. „Ég hafði stóra söngkonu- drauma þegar ég var lítil og gat bara ekki gert upp á milli söngs- ins og leiksins. Þannig að ég var í tónlistardeild LHÍ í þrjú ár og útskrifaðist þaðan sem söngkona. Hins vegar sannfærðist ég um það í því námi að söngkonuferill- inn heillaði mig ekkert svakalega mikið. Þú ert miklu meira einn að vinna að þínu í tónlistinni á meðan þú ert alltaf að vinna með fullt af fólki í leikhúsinu. Það finnst mér svo gefandi. Ég hafði heldur ekki agann í það að vera ein inni í æfingaherbergi enda- laust. Svo ég sótti um í leiklistar- deildinni og var í LHÍ í fjögur ár í viðbót til að verða leikkona.“ Þótt Þórunn hafi ekki gert sönginn að aðalstarfi þá er hún ennþá virk á því sviði og mun meðal annars troða upp með hljómsveit Skúla mennska á Aldrei fór ég suður um páskana. „Við höfum verið að vinna svo- lítið saman og Skúli er rosalega duglegur að draga mig með sér í verkefni. Hann er svo skemmti- legt tónskáld og textahöfundur, það skiptir mig miklu máli. Mér finnst ekkert endilega skipta máli að söngurinn sé fullkom- inn heldur er það hvernig fólk kemur textanum til skila sem kveikir í mér.“ Listin í genunum Þórunn þakkar áhugann á söng og leiklist alfarið því að hafa alist upp á Ísafirði. Þar gekk hún í Tónlistarskólann, lærði á fiðlu og píanó auk söngsins og tók þátt í leiksýningum Litla leikklúbbs- ins. Hún er þó eini meðlimur fjöl- skyldunnar sem hefur farið út á listabrautina. „Ég held að ef þú býrð á Ísa- firði þá smitistu ósjálfrátt af menningunni þar. Tónlistar- menningin er auðvitað rosalega sterk en það er leiklistin líka. Mamma og pabbi voru samt ekki tónlistar- eða leiklistarfólk, höfðu bara brennandi áhuga á að njóta þessara lista, og hvor- ugt systkina minna hefur farið út á listabrautina. Mamma segir reyndar að þetta sé í genunum og komi úr móðurfjölskyldunni hennar. Arngrímur málari var langalangafi minn og ég heiti í höfuðið á honum og Þórunni konu hans. Hún var mikil söng- kona og allar hennar systur þannig að þessi baktería hefur alltaf verið í ættinni, þótt fæstir hafi fylgt henni alla leið, enda fá tækifæri til þess á þeim tíma. Það þótti nógu mikið flipp hjá Þórunni langalangömmu minni sem var prestsdóttir að giftast málara.“ Þórunn segist aldrei munu sjá eftir því að hafa látið bakteríuna heltaka sig og gert listina að Það var brött ákvörð- un að fara að sýna Litla prinsinn svona stuttu eftir fæðinguna og margir eru mjög hissa á mér, en eftir frumsýningu sýnum við bara um helgar og barnið fær ánægðari mömmu Þórunn Arna Kristjánsdóttir, leikkona Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Litli prinsinn gefur brjóst í pásum Þórunn Arna Kristjánsdóttir stígur á svið í hlutverki Litla prinsins í Kúlunni í dag. Hún hefur átta vikna gamla dóttur sína með sér á æfingar og skýst til að gefa brjóst í pásum. Litli prinsinn verður síðasta hlutverk hennar í Þjóðleikhúsinu því hún er komin á samning hjá Borgarleikhúsinu þar sem hún byrjar í haust. ÞÓRUNN ARNA KRISTJÁNSDÓTTIR Móðurhlutverkið er æðislegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.