Fréttablaðið - 05.04.2014, Side 32
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Abdullah Abdullah
Fyrrverandi utanríkisráðherra, sem
bauð sig fram gegn Hamid Karzaí
árið 2009 og hlaut nærri þriðjung
atkvæða. Hann er sagður njóta mikils
stuðnings meðal Tadsjíka, en síður
meðal pastúna. Dró framboð sitt
til baka áður en seinni umferð var
haldin, að eigin sögn vegna þess að
hann treysti því ekki að framkvæmd-
in yrði með eðlilegum hætti.
Meðframbjóðendur hans eru
Mohammad Khan og Mohammad
Mohaqiq.
Ashraf Ghani
Fyrrverandi fjármálaráðherra og
starfaði lengi hjá Alþjóðabankanum.
Hann bauð sig fram til forseta árið
2009 en hlaut aðeins þrjú prósent
atkvæða. Hann hefur lagt sig fram
um að höfða til sem flestra hópa
samfélagsins og fékk stríðsherrann
Abdul Rashid Dostum, til liðs við sig,
en hann barðist á sínum tíma gegn
talibönum og á fylgi meðal Úsbeka.
Meðframbjóðendur hans eru
Abdul Rashid Dostum og Sarwar
Danish.
Abdul Rasul Sayyaf
Íhaldssamur íslamisti og áhrifamikill
þingmaður. Mælskumaður mikill sem á
auðvelt með að fá fólk til fylgis við sig.
Aðhyllist Wahabista-afbrigði íslamskrar
trúar, barðist gegn Sovétmönnum í
Afganistan og stofnaði með Osama bin
Laden æfingabúðir sem síðar voru not-
aðar af Al Kaída. Sat um skeið í fangelsi
Sovétmanna.
Meðframbjóðendur hans eru Mo-
hammad Ismaíl Khan og Abdul Wahab
Urfan Erfan.
Zalmai Rassoul
Læknir, menntaður
í Frakklandi. Fyrr-
verandi utanríkisráð-
herra. Sagður njóta
stuðnings Hamids
Karzai forseta.
Gul Agha Sherzai
Komst til valda sem
leiðtogi herskárra ísl-
amista. Fyrrverandi
ríkisstjóri í Kandahar
og Nangarhar.
Qutbuddin Hilal
Styður Hizb-i-Is-
lami, hreyfingu
herskárra íslamista
sem Gulbuddin
Hekmatyar stýrir.
Mohammad Daud
Sultanzoy
Fyrrverandi flugmaður,
fór til Bandaríkjanna
eftir innrás Sovét-
manna. Sneri aftur eftir
fall talibanastjórnar-
innar
Hidayat Amin
Arsala
Starfaði hjá Alþjóða-
bankanum í 18 ár,
sneri heim til að
berjast gegn Sovét-
mönnum. Ráðgjafi
Karzaís forseta.
T RKMENISTAN
Ethnic groups
Pastœnar 42%
Tadsjkar 27%
sbekar 9%
Hasarar 9%
Balœkar 2%
Aimakar 3%
Tœrkmenar 2%
A rir 4%
A FGA NI STAN
SBEKISTAN
200 km
125 miles
TADSJ˝KISTAN
PAKISTAN
˝RAN
Kandahar
Kabul
Herat
Mazar-i-
Sharif
HELSTU ÞJÓÐERNISHÓPARNIR
Pastúnar í austur- og suðurhluta Afganistans eru langfjölmennastir og hafa
öldum saman farið með völdin í landinu. Karzai, fráfarandi forseti, er pastúni.
Allir forsetaframbjóðendurnir eru einnig pastúnar, en meðframbjóðendur
þeirra koma úr ýmsum áttum allt eftir því til hverra helst á að höfða. Talibanar
koma sömuleiðis úr röðum pastúna.
FRAMBJÓÐENDURNIR ÁTTA
➜ Þrír virðast eiga mesta möguleika
Skoðanakannanir sýna að mikill meirihluti Afgana er áhugasamur um kosn-ingarnar sem haldnar verða í dag. Margir binda vonir við að þær leiði til
breytinga, spillingin minnki og
árásum fækki. Óvissan er hins
vegar mikil og vonirnar veikburða.
Ástandið gæti þess vegna versnað
til muna.
Átta frambjóðendur hafa undan-
farnar vikur keppst við að ná til
kjósenda. Einn þeirra tekur við
af Hamid Karzai, sem fer sjálf-
viljugur frá eftir rúmlega tólf ár
í embætti.
Ólíklegt er að neinn þeirra
fái hreinan meirihluta, þannig
að væntanlega þarf innan fárra
vikna að efna til seinni umferð-
ar þar sem kosið verður á milli
þeirra tveggja sem flest atkvæð-
in fá.
Áhyggjuefnin
Áhyggjuefnin eru af tvennum
toga: landlæg spilling og þrá-
lát átök og árásir sem vekja ótta
meðal kjósenda en ekki síður
meðal frambjóðenda sjálfra sem
og þeirra sem eiga að sjá um
framkvæmd kosninganna og eft-
irlit með þeim.
Almennt virðist reiknað með
því að kosningasvindl verði stund-
að í miklum mæli. Frambjóðendur
hafi þurft að tryggja sér velvild
áhrifamanna heima í héruðun-
um, sem geti séð til þess að taln-
ing upp úr kjörkössum skili þeim
niðurstöðum sem óskað er eftir.
Talibanar hafa hótað að gera
allt sem þeir geta til að skemma
fyrir kosningunum, og hafa und-
anfarið gert hverja árásina á
fætur annarri til að minna á sig
og fæla fólk frá því að mæta á
kjörstað.
Spennan er töluverð og síðast
í gær létu lífið tveir útlending-
ar, þekktur ljósmyndari frá AP-
fréttastofunni ásamt fréttamanni.
Þau sátu í bifreið sinni í austur-
hluta landsins þegar afganskur
lögreglumaður tók upp á því að
skjóta á þau.
Sumt lofar góðu
Það lofar hins vegar góðu að kosn-
ingabaráttan virðist hafa verið
tekin alvarlega. Frambjóðendur
hafa efnt til kosningafunda og
tekið þátt í sjónvarpsumræðum.
Kosningaspjöld eru áberandi og
fólk hefur flykkst á kosninga-
fundina.
Kosningabaráttan hefur því
verið harla vestræn að yfirbragði,
sem er nokkuð sem almenningur í
Afganistan hafði ekki átt að venj-
ast fyrr en eftir að talibanastjórn-
in féll fljótlega upp úr aldamótum.
Annað sem lofar góðu er að
konur hafa verið óvenju áberandi
í kosningabaráttunni. Þær hafa
mætt á kosningafundi og jafn-
vel tekið þar til máls. Meðfram-
bjóðandi eins frambjóðendanna er
kona og eiginkona annars fram-
bjóðanda hefur iðulega ávarpað
kosningafundi hans.
Þetta skiptir máli í landi, þar
sem réttindi kvenna voru barin
niður á tímum talibanastjórnar-
innar fyrir aðeins rétt rúmum
áratug.
Karzai
Þótt óvissa sé um bæði útkomu
og mikilvægi kosninganna, þá
markar það engu að síður ótví-
ræð tímamót að Hamid Karzai
forseti fer frá eftir rúmlega tólf
ár í embætti.
Hann hefur ítrekað verið sakað-
ur um að vera á kafi í þeirri land-
lægu spillingu, sem loðað hefur
við landið. Hann hafi grímulaust
hyglað sínum mönnum og notfært
sér völd sín til að kaupa fólk til
stuðnings við sig.
Hann má þó eiga það að hann
stígur sjálfviljugur til hliðar og
styrkir þar með lýðræðisvitund
landsmanna.
Pastúnar
Allir frambjóðendurnir átta, sem
sækjast eftir forsetastarfinu, eru
af þjóðflokki pastúna. Pastúnar
eru langfjölmennasti þjóðflokk-
ur landsins. Þeir eru 42 prósent
landsmanna, en búa einkum í
austur- og suðurhluta þess.
Til þess að ná til annarra þjóðern-
ishópa hafa þeir með sér tvo með-
frambjóðendur hver, til að skipa
embætti varaforseta og varavara-
forseta. Þessir meðframbjóðendur
koma úr ýmsum áttum.
Pastúnar hafa síðustu aldirnar
undantekningarlítið farið með völd-
in í Afganistan, en þó gengið mis-
jafnlega vel að fá aðra landsmenn
til að lúta stjórn sinni í reynd.
Talibanar eru flestir pastúnar og
þeim tókst aldrei að ná öllu landinu
á sitt vald, ekki frekar en Sovét-
mönnum á níunda áratug síðustu
aldar.
Unga fólkið
Fréttaskýrendur hafa bent á að
nærri tveir þriðju afgönsku þjóð-
arinnar séu yngri en 25 ára. Hlut-
irnir geta því breyst frekar hratt,
ef aðstæður skapast til þess.
„Unga fólkið í Afganistan er mik-
ilvægur hluti kjósendahópsins.
Þannig að þrátt fyrir allt þetta óör-
yggi og hótanir, allar þessar árásir
á síðustu vikum, þá höfum við séð
allt þetta unga fólk flykkjast í bið-
raðir til að fá kosningaskírteinin
sín,“ hefur arabíski fréttavefur-
inn Al Jazeera eftir Abdul Waheed
Wafa við háskólann í Kabúl.
Afganar láta enn reyna á lýðræðið
Forsetakosningar verða haldnar í Afganistan í dag. Þrátt fyrir efasemdir um gildi þeirra hefur kosningabaráttan verið býsna
lífleg. Átta frambjóðendur sækjast eftir að taka við af Hamid Karzai, sem fer frá sjálfviljugur eftir rúmlega tólf ár í embætti.
KOSNINGAFUNDUR Í KABÚL Stuðningsmenn Ashrafs Ghani Ahmadzai hlusta á hann flytja ræðu á kosningafundi í Kabúl á
þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
➜ Fimm aðrir halda enn í vonina