Fréttablaðið - 05.04.2014, Síða 38
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
➜ Bannað er að negla í veggi í
íbúðum á Stúdentagörðunum.
Þess í stað eru notuð önglar og
girni. Þetta er fest á þartilgerðan
lista í loftinu og er girnið nógu
sterkt til að halda þynglsum. Helga
segir þetta gera myndavegginn
óreglulegan sem gefur heimilinu
skemmtilegan blæ.
➜ Rósa býr í nýju Stúdentagörðunum við Sæmundar-
götu þar sem er sameiginlegt eldhús, ekki má þvo
þvott eftir 22 á kvöldin og harðbannað að halda partý.
Mér fannst
mjög mikilvægt að
þetta væri ekki
herbergi heldur
heimili.
Þurfti að
finna eitthvað
til að lífga upp
á veggina.
Fagurkerar á fáum fermetrum
Það getur verið snúið að koma sér vel fyrir á Stúdentagörðunum þar sem gólfdúkurinn er skær, skápar eru festir við gólf
og bannað er að negla í veggi. Fréttablaðið fékk að líta inn til tveggja fagurkera sem hafa notað sniðugar lausnir og fallega
muni til að koma sér vel og smekklega fyrir í litum íbúðum á Stúdentagörðunum þar sem hver krókur og kimi er nýttur.
Ég er búin að búa hérna síðan í júlí í fyrra, þar áður var ég í sams konar stúdentaíbúð á Eggertsgötunni,“ segir Helga
Geirsdóttir mannfræðinemi sem hefur hreiðrað um sig í 35
fm íbúð á Stúdentagörðunum á Lindargötunni.
Hún segir það hafa verið smá áskorun að koma sér vel fyrir í
litlu rými. „Ég er orðin mjög góð í tetris enda örugglega búin
að færa öll húsgögn fram og til baka svona hundrað sinnum.
Mér fannst svo mikilvægt að þetta væri ekki herbergi heldur
heimili. Á heimili getur maður sest til borðs og boðið fólki svo
yfir í betri stofuna, það var smá vandi að finna útúr því.“
Helga hugsaði út fyrir kassann til að finna sniðugar lausnir
innan veggja heimilisins. „Ég er búin að ná, að ég held, bestu
uppröðuninni núna með bókahillurnar inní eldhúsi, eldhús-
borðið fyrir framan fataskápinn og sófann upp við rúmið.
Ekkert af þessu lá beint við en maður þarf bara að prófa sig
áfram.“
Það fylgja því þó nokkrar reglur að búa á Stúdentagörð-
unum, til dæmis má ekki negla í veggina. Það er þó leyst með
önglum og girni. „Önglarnir eru festir í lista í loftinu og girnið
er nógu sterkt til að halda þyngslum. Ég og Hnokki, kærastinn
minn, erum óvenjulega rík af málverkum og eigum mörg fal-
leg sem hefði verið synd að láta liggja ofan í kassa. Þess vegna
var myndaveggnum komið upp. Uppröðunin á honum var smá
óvissuatriði af því að þegar maður vinnur með öngla og veiði-
snæri lenda myndirnar ekki endilega nákvæmlega þar sem
maður ætlaði. Mér finnst það samt bara skemmtilegt.“
Það tók á að venjast þessum bláa lit á gólfinu sem ég þoldi ekki til að byrja með. Mér er, sem betur
fer, farið að líka betur við hann með hverjum deg-
inum sem líður og hefur hann þróað með sér svolítið
blátt þema, áður en ég vissi af var ég farin að kaupa
blá kerti og kodda,“ segir sálfræðineminn Rósa María
Árnadóttir sem býr á 22 fermetrum á nýju Stúdenta-
görðunum við Sæmundargötu.
Þar sem Rósa býr er sameiginlegt eldhús á gang-
inum sem allir þurfa að skiptast á að taka til í og fara
út með ruslið. „Einnig má ekki þvo þvott eftir klukkan
22 og svo er harðbannað að halda partí, regla sem
afar fáir fylgja,“ segir Rósa María sem hefur búið
í íbúðinni síðan í janúar. Íbúðinni fylgdi skrifborð,
rúm, stóll og skápar sem er fastir svo Rósa segist ekki
hafa þurft að gera mikið þegar hún flutti inn. Það
vekur athygli að hún skreytir heimilið með fallegum
fatnaði. „Ég á ekki mikið af málverkum og er ekki
nógu dugleg að láta framkalla myndir svo ég þurfti
að finna eitthvað til að lífga upp á íbúðina. Ég á nóg af
litríkum kjólum svo mér fannst tilvalið að hengja þá
upp, mér finnst það koma nokkuð skemmtilega út.“
Rósa María
Árnadóttir
Sálfræðinemi
23 ára.
Helga Geirsdóttir
Mannfræðinemi
24 ára
Orðin mjög góð í tetris
Skreytir heimilið með
fallegum fatnaði
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL