Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 44
FÓLK|HELGIN
Fyrirmyndardagurinn var haldinn í fyrsta sinn hérlendis í gær. Þá buðu ýmis fyrirtæki
og stofnanir atvinnuleitendum með
skerta starfsgetu að fylgja starfs-
manni eftir í starfi sínu í einn dag
eða hluta úr degi. Í ár tóku atvinnu-
leitendur þátt sem eru á skrá hjá
Vinnumálastofnun á höfuðborgar-
svæðinu og Suðurnesjum en stefnt
er að því að halda daginn framvegis
á landsvísu. Auk þeirra tóku fyrir-
tæki þátt sem nú þegar eru í sam-
vinnu við Vinnumálastofnun vegna
átaksins Atvinna með stuðningi auk
fyrirtækja sem eru aðilar að Festu
– miðstöðvar um samfélagslega
ábyrgð.
Einn þeirra þátttakenda sem hóf
störf í gær er Anna Kristín Gunn-
laugsdóttir en hún starfaði á leik-
skólanum Loga í Grafarvogi. „Það
er búin að vera mikil tilhlökkun
eftir þessum degi og að takast á við
verkefnið. Ég vann í leikskólanum
frá kl. 9-12 og starfsmaður skólans
kynnti fyrir mér starfsemi hans og
þau ólíku verkefni sem þar eru unn-
in. Þessi dagur fer svo sannarlega í
reynslubankann hjá mér.“
Anna er „fötluð í námi“ eins og
hún orðar það sjálf og er haldin
lesblindu. Hún útskrifaðist af
starfsbraut úr Borgarholtsskóla
og stundar nám í vetur við Fjöl-
mennt og stefnir á útskrift í vor af
heilsubraut. Auk þess sótti hún
námskeið í vetur í Háskóla Íslands
um réttindabaráttu fatlaðs fólks og
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
„Dagurinn er frábært tæki-
færi fyrir mig til að kynna mig á
vinnumarkaði og sjá hvernig er að
vinna á leikskóla. Allir eiga rétt á að
geta unnið og það er frábært að fá
stuðning fyrstu skrefin og maður
veit að það er tekið tillit til manns
á vinnustað. Í framtíðinni stefni ég
á nám við Kennaraháskólann enda
finnst mér mjög gaman að vinna
með börnum. Einnig hef ég áhuga á
að vinna að réttindabaráttu fatlaðs
fólks og fólks með minnkaða starfs-
getu.“
FYRIRMYNDARFÓLK
Á GÓÐUM DEGI
GOTT TÆKIFÆRI Hópur einstaklinga með skerta starfsgetu tók þátt í Fyrir-
myndardeginum í gær. Þar fylgdu þeir starfsmanni eftir í starfi í einn dag.
GÓÐUR STUÐNINGUR
„Allir eiga rétt á að geta
unnið og það er frábært
að fá stuðning fyrstu
skrefin,“ segir Anna
Kristín Gunnlaugsdóttir.
MYND/GVA
Bjarni er kunnur fyrir ljóðagerð og hefur
alla tíð lagt stund á málaralist meðfram
skriftum. Hann hefur haldið níu einkasýn-
ingar á Mokkakaffi frá árinu 1988. Myndir
Bjarna eru allt frá því að vera náttúru-
stemningar til þess að vera geómetrík
og abstrakt. Hann er kunnur fyrir eftir-
tektarverða litameðferð þar sem línum og
formum er teflt saman.
Aðalsteinn hefur sinnt útgáfustörfum og
orðhengilshætti á ýmsum vettvangi, sótt
námskeið í Myndlistarskóla Kópavogs og
sýnt verk sín í Hafnarfirði og Reykjavík.
Þetta er fjórða einkasýning hans. Hann
lýsir verkum sínum svo: „Mannsbelgurinn
geymir sundurleitan hrærigraut úr hugsun-
um, athöfnum, ímyndunum, viti og órum.
Margt af því er góss sem við stingum á
okkur hugsunarlítið á leið gegnum lífið.
Ævilangt safnast í belginn. Sumt sekkur og
gleymist en annað flýtur ofan á.“
Verk Aðalsteins eru hávaxin eða 90x300
sentimetrar þar sem einfeldningslega
teiknuð myndbrot fljóta ofan á óreiðu-
kenndum grunni. „Verkin byggjast á hug-
dettum og hugrenningum sem kvikna í
vinnuferlinu, án markaðrar stefnu, og
bjóða áhorfandanum upp á sams konar
ferðamáta, að láta augu og huga reika eins
og umrenninga um heim verkanna og eigin
hugarheim.“
Opnunin í dag stendur yfir frá 15-18 en
báðar sýningarnar verða opnar til 4. maí.
Anarkía listasalur er til húsa í Hamraborg 3
í Kópavogi. Gengið er inn norðanmegin.
TVÖFÖLD OPNUN Í ANARKÍU
Tvær sýningar verða opnaðar í Anarkíu listasal í Kópavogi í dag. Í efri sal
sýnir Bjarni Bernharður Bjarnason olíu- og akrýlmálverk undir yfirskriftinni Á
HÁSLÉTTU HINNA DEYJANDI AUGNABLIKA en í þeim neðri sýnir Aðalsteinn
Eyþórsson olíumálverk undir heitinu UM RENNINGAR.
EFTIRTEKTARVERÐ LITAMEÐFERÐ Myndir Bjarna eru allt frá því að
vera náttúrustemningar til þess að vera geómetrík og abstrakt.
HÁVAXIN VERK Verk Aðalsteins eru hávaxin eða 90x300 sentimetrar. Þar
fljóta einfeldningslega teiknuð myndbrot ofan á óreiðukenndum grunni.
-30%
50%20%
30%40%
10%
Við ætlum að rýma fyrir nýjum vörum og
bjóðum allt að 50% afslátt
Fyrstir koma fyrstir fá
LAGERHREI
NSUN
Fjarstýringavasar - verð frá 2.900
Púðar - verð frá 2.900
Púðaver - verð frá 1.000
Stólar - verð frá 5.000
Speglar - verð frá 10.000
Skrifstofuhillur - verð frá 9.900
Sjónvarpsskápar - verð frá 19.900
Rúm 150-193 cm - verð frá 69.000
Sófaborð mism. stærðir verð frá 7.500
Borðstofuborð 220 - verð 47.500
Borðstofuskenkar verð frá 159.900
Bar skápar 119x158x52 verð frá 89.000
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
OPNUM
KL.10
Tungusófi verð 149.000 á
ður 284.900