Fréttablaðið - 05.04.2014, Qupperneq 54
Árbæjarskóli skólaárið 2014 – 2015
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Árbæjarskóli er einn stærsti grunnskóli landsins, staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Árbæjarskóli er grunnskóli
fyrir nemendur í 1.-10. bekk og eru nemendur um 630 talsins. Skólinn er safnskóli á unglingastigi en til náms í 8. bekk koma
saman nemendur þriggja skóla, Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla. Starfsmenn skólans eru um 90 sem sinna
mismunandi stöfum í þágu nemenda.
Allt starf Árbæjarskóla byggir á teymisvinnu þannig að mikil samvinna ríkir um alla þætti skólastarfsins.
Lausar eru eftirtaldar kennarastöður við Árbæjarskóla:
• Staða stærðfræðikennara á mið - og unglingastigi
• Staða textílkennara
• Staða kennara á mið - og unglingastigi til kennslu íslensku, samfélagsfræði og stærðfræði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur,
fagstjóra og stigstjóra viðkomandi skólastigs.
• Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og
samstarfsmönnum.
• Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra
og annað fagfólk.
Hæfniskröfur:
• Menntun og hæfni til kennslu á öllum aldursstigum
grunnskóla.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Faglegur metnaður.
• Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Sæberg, skólastjóri, i síma 4117700 eða með því að senda fyrirspurnir
á thorsteinn.saeberg@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknarfrestur er til 23. apríl 2014.
GUÐMUNDUR JÓNASSON EHF
óskar eftir að ráða
FORSTÖÐUMANN REKSTRARSVIÐS
Guðmundur Jónasson ehf er eitt af elstu ferðaþjón-
ustufyrirtækjum landsins. Fyrirtækið rekur öfluga
ferðaskrifstofu, gerir út fjölda hópferðabifreiða og rekur
auk þess gistiheimili. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur
hópur starfsfólks með breiða þekkingu og reynslu af
ferðaþjónusturekstri.
Til rekstrarsviðs heyrir rekstur hópferðabifreiða, rekstur
verkstæðis og rekstur fasteigna félagsins. Hlutverk
forstöðumanns er að leiða starf rekstrarsviðs undir
yfirstjórn framkvæmdastjóra félagsins.
Helstu verkefni forstöðumanns eru eftirfarandi:
- dagleg stjórnun og rekstur sviðsins
- gerð rekstrar- og viðhaldsáætlana
- þátttaka í stefnumótun og innleiðing gæðakerfa
- mannauðsmál
Menntunar og hæfniskröfur:
- víðtæk reynsla og þekking af rekstri og stjórnun
- menntun sem nýtist í starfi
- hæfni í að leiða verkefni og innleiða breytingar
- reynsla í áætlanagerð og færni í notkun töflureikna
(excel)
- nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- samskipta- og leiðtogahæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl.
Umsókn um starfið þarf að fylgja kynningarbréf á
umsækjanda ásamt ítarlegri starfsferilskrá.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir
Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri, en umsóknum
skal skilað á netfangið stefan@gjtravel.is
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
Borgartún 34, 105 Reykjavík, S: 511 1515
Hjallastefnan auglýsir ef tir körlum og konum til starfa
með leik- og/eða grunnskólakennaramenntun.
Einnig er óskað eftir fólki til starfa sem er með aðra
sambærilega menntun sem og ófaglærðum barngóðum
einstaklingum.
Hjallastefnan rekur nú tólf leikskóla og fimm grunnskóla
víða um land. Allir skólar Hjallastefnunnar star fa að
sameiginlegu markmiði en sjálfstæði skólanna
er mikið.
Jafnrét tisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun,
félagsþjálfun og einstaklings styrking eru innviðir í
hugmyndafræði Hjallastefnunnar, öllum börnum
til hagsbóta.
Starfsfólk Hjallastefnunnar trúir því staðfastlega að
starf þeirra skipti miklu máli og að það sé með vinnu
sinni að skapa betri framtíð fyrir komandi kynslóðir.
Hæfniskröfur og viðhorf
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Gleði og jákvæðni.
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
• Frumkvæði, áræðni og metnaður.
• 18 ára aldurstakmark.
• Brennandi áhugi fyrir jafnrét ti.
• Stundvísi.
• Snyr timennska.
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2014.
Vinsamlegast sækið um starf með því að senda
tölvupóst á starf@hjalli.is. Ef óskað er ef tir að
vinna í ákveðnum skóla Hjallastefnunnar þá eru
umsækjendur beðnir um að senda umsókn á
netfang þess skóla sem um ræðir.
Nánari upplýsingar um hvern skóla má finna á
heimasíðunni www.hjalli.is
Um er að ræða framtíðarstarf.
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Hlökkum til að fá umsókn frá þér!
www.hjalli.is
Vörður leitar að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til að vinna í
hópi metnaðarfullra starfsmanna sem sinna sölu og þjónustu við fyrirtæki,
einstaklinga og stofnanir. Starfið er í senn fjölbreytt og krefjandi. Sölustjóri
starfar undir stjórn framkvæmdastjóra sölu og þjónustu og í samvinnu við
önnur svið fyrirtækisins.
Starfssvið
• Uppbygging og stýring á sölumálum félagsins.
• Greining á markaði og þörfum viðskiptavina.
• Utanumhald sem snýr að innri og ytri dreifileiðum.
• Aðkoma að fræðslu er varðar sölu og þjónustumál.
Hæfniskröfur
• Menntun á sviði viðskiptafræða eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af sölu- og þjónustumálum nauðsynleg.
• Samskiptahæfni.
• Frumkvæði og árangurssækni.
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 11. APRÍL.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs,
atli@vordur.is og Harpa Víðisdóttir mannauðsstjóri, harpa@vordur.is
Vinsamlega fyllið út umsóknir á vordur.is.
Vörður tryggingar hf. er alhliða vátryggingafélag í eigu BankNordik. Félagið hefur vaxið
hratt á undanförnum árum og í dag starfa um 70 starfsmenn hjá félaginu. Vörður er
áhugaverður vinnustaður fyrir fólk sem vill taka þátt í frekari uppbyggingu og vexti
félagsins á komandi árum. Hjá Verði er gildandi jafnréttisstefna sem stuðlar að því að
einstaklingar njóti sömu launakjara og starfstækifæra óháð kyni. Félagið hefur hlotið
Jafnlaunavottun VR sem staðfestir það launajafnrétti sem ríkir hjá félaginu.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
V
O
R
6
86
10
0
4/
14
VIÐ VILJUM KYNNAST ÞÉR BETUR
SÖLUSTJÓRI
VEISTU
HVAÐ ÞÚ VILT?