Fréttablaðið - 05.04.2014, Síða 70
FÓLK|HELGIN
Þetta er afskaplega fljótlegt þegar sætuþörfin gerir vart við sig og okkur langar í
eitthvað gott en um leið erum við
að fá góða fitu úr hnetusmjörinu,
ásamt and oxunarefnum og vítam-
ínum úr mórberjunum og sól-
berjunum. Það má að sjálfsögðu
setja það sem til er í skápunum
og leika sér með uppskriftina.“
Oddrún heldur úti blogginu Heilsu-
mamman.com þar sem hún birtir
reglulega uppskriftir að alls konar
kræsingum, í hollari kantinum.
HNETU-HRÍSKEX
6 msk. kókosolía (við stofuhita)
4 msk. kakó
4 msk. hlynsíróp
2,5 msk. hnetusmjör (án sykurs)
3 hrískökur
2 msk. sólblómafræ eða pekan-
hnetur
2 -3 msk. mórber (má sleppa en
hvet ykkur til að prufa)
AÐFERÐ
Blandið saman kókosolíu, hlyn sírópi,
kakói og hnetusmjöri. Myljið hrís-
kökurnar saman við og blandið vel.
Bætið sólblómafræjum eða smátt
söxuðum pekanhnetum saman við
ásamt mórberjunum.
Setjið blönduna í sílíkonmót eða
leggið bökunarpappír ofan í mót
og setjið blönduna ofan á bökunar-
pappírinn. Setjið inn í frysti í a.m.k.
30 mínútur.
Best að geyma inni í frysti (ef það
verður afgangur).
Það má alveg sleppa hnetusmjörinu
og setja þá aðeins minna af hrís-
kökunum.
LAUGARDAGSNAMMIÐ
Þetta er nýjasta æðið á heimilinu, hnetu-hrískex,“ segir Oddrún Helga
Símonardóttir matgæðingur og eldheit áhugamanneskja um hollustu.
Við fengum hana til að gefa okkur uppskrift að laugardagsnamminu.
HEILSUMAMMAN Oddrún Helga Símonardóttir heldur úti síðunni heilsumamman.com og birtir þar uppskriftir að girnilegum mat í
hollari kantinum. Hún gefur uppskrift að laugardagsnammi. MYND/VILHELM
Hugtakið samlíðan (empathy) hefur verið notað innan sálfræðinnar í um
hundrað ár, en heimspekingar og listamenn hafa velt fyrirbærinu fyrir sér
um aldir. Umræða um samlíðan í fræðaheiminum og rannsóknir á henni
hafa aukist verulega síðustu ár og hugtakið hefur líka fengið meiri athygli í
fjölmiðlum og í samfélagslegri umræðu.
Skrif taugasér-
fræðinga, heim-
spekinga og sál-
fræðinga um tengsl
samlíðunar og
taugaboða kalla
á nýja nálgun á
spurninguna um
hvernig bókmennt-
ir og tungumál kalla
fram samlíðan.
Á ráðstefnunni
verður sjónum
meðal annars beint
að því hvernig sam-
líðan birtist í eldri
textum og menn-
ingu svo og í bókmenntum og fræðitextum í samtímanum.
Á þriðja tug fyrirlestra eru á dagskrá. Þeir eru haldnir í samstarfi við
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og eru öllum opnir. Aðalfyrirlesarar
eru þau Dirk Geeraerts frá Leuven-háskóla í Belgíu og Suzanne Keen frá
Washington og Lee University í Bandaríkjunum. Nánari upplýsingar er að
finna á www.hi.is.
Á ÞRIÐJA TUG FYRIR-
LESTRA UM SAMLÍÐAN
Ráðstefnan Empathy in language, literature and
society eða Samlíðan í máli, bókmenntum og
samfélagi hófst í Háskóla Íslands í gær og stendur
til morguns. Markmiðið er að beita aðferðum bók-
menntafræði, málfræði og sálfræði til að varpa ljósi
á ýmsa þætti samlíðanar.
UMRÆÐAN UM SAMLÍÐAN AÐ AUKAST Fyrirlestrarnir í
dag og á morgun verða í Árnagarði.
Einföld lausn sem kemur í veg fyrir þurrk
á kynfærasvæðinu og viðheldur raka húðarinnar
Fyrir konur á öllum aldri
Ellen kremið fæst í apótekum
Iceprakt ehf.
Netfang: iceprakt@iceprakt.is I www.iceprakt.is
Sigrún Arnardóttir
kvensjúkdómalæknir mælir
með Ellen kreminu til að
sporna gegn þurrki og
á kynfærasvæðinu.
Mjólkursýrugerlar
Viðhalda eðlilegu pH-gildi
Rakagefandi krem
Mýkir og viðheldur raka +
- Inniheldur ekki vatn.
- Smýgur vel inn í húðina.
- Drjúgt og auðvelt í notkun.
- Án ilmefna.
- Án rotvarnarefna.
- Án estrógen.
Eiginleikar Ellen kremsins:
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is