Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 94
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR
Vel til fallið sem gjöf til vina,
ættingja eða viðskiptavina...
Mappa með 6 myndum eftir Tryggva Ólafsson,
Gallerí Fold gefur út í 50 tölusettum eintökum.
Tryggvi lætur þrykkja myndir sínar hjá GuðjónÓ.
Gallerí Fold · Rauðarárstígur 12 - 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Heildarljóðasafn
Gerðar Kristnýjar,
eins ástsælasta
skálds okkar tíma
„Ég ætla að ræða um samband
Íslands og Evrópu á seinni hluta
18. aldar. Hvaða samskipti áttu sér
stað og hvaða áhrif bárust frá Evr-
ópu til Íslands,“ segir Anna Agn-
arsdóttir, prófessor í sagnfræði
við HÍ, um erindi sem hún heldur á
málþingi Félags um 18. aldar fræði
í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Til-
efnið er að 20 ár eru liðin frá því
félagið var stofnað.
„Ísland var vissulega landfræði-
lega einangrað á 18. öld en evr-
ópsk áhrif bárust þó til Íslands,“
segir Anna og nefnir sem dæmi
að Almenna bænaskráin frá
1795 sé greinilega skrifuð undir
áhrifum frá orðræðu frönsku
byltingarinnar. „Íslendingar
sendu Danakonungi þessa bæna-
skrá, krafan var að fá frjálsa
verslun við Evrópu en hann var
nú ekki aldeilis á því og húð-
skammaði helstu embættismenn
þjóðarinnar.“
Anna nefnir líka erlenda vís-
indaleiðangra sem hér voru á
ferð, tvo franska og einn bresk-
an. Einnig danska vísindamenn
sem ekki létu sér nægja að skoða
landið heldur skrifuðu líka um
það. „Margar ferðalýsingar á
vísindalegum grunni komu út
og þær voru þýddar á ensku,
frönsku, þýsku og hollensku,“
útskýrir hún.
Klæðnaður Íslendinga í lok
18. aldar er eitt af því sem Anna
minnist á. „Á myndum sjást
íslenskir karlar klæddir eins og
Mozart enda ferðuðust þeir utan
en mér sýnist þeir ekki hafa
keypt nýjustu tísku á konurnar
sínar!“
Auk Önnu flytur Guðrún Laufey
Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri á
Árnastofnun, erindi á málþinginu
og talar um söngfróð sálmaskáld.
Loks munu Spilmenn Ríkínís flytja
íslenska tónlist frá 17. og 18. öld og
boðið verður upp á léttar veigar og
aðrar veitingar. gun@frettabladid.is
Íslenskir karlar voru
klæddir eins og Mozart
Félag um 18. aldar fræði heldur málþing og hóf í Þjóðmenningarhúsinu í dag
klukkan 13.30. Tvær konur fl ytja erindi og Spilmenn Ríkínís sjá um tónlistina.
PRÓFESSORINN
Ísland var vissulega
landfræðilega ein-
angrað á 18. öld en
var samt hluti af
Evrópu og evrópsk
áhrif bárust fljótlega
til Íslands,“ segir
Anna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNING