Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 102
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 66
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
Save the Children á Íslandi
Ég hef ekki stundað spilavíti en ég ímynda mér að ef ég væri í Las Vegas
væri það þannig að ég gengi að afgreiðsl-
unni og skipti á dollurunum mínum fyrir
spilapeninga. Fer svo að spila 21 og læt
mig dreyma um að vera í svindlteymi þar
sem við laumum að hvort öðru stöðunni á
spilastokknum eins og í bókinni Bring-
ing Down the House. Þrátt fyrir að
vera í engu svindlteymi gengur mér
vel í 21 og nota spilapeningana til að
kaupa mér mat og drykk og bikiní.
Áður en ég lalla mér út í sólina man
ég að ég þarf að skipta þessum spila-
peningum í gjaldmiðil sem tilveran
utan spilavítisins samþykkir.
Á Íslandi er staðan ekki ósvipuð.
Fólk kemur til landsins með pen-
inga og skiptir yfir í krónur sem
það getur notað til að leika sér
með og versla við innfædda á
góðum kjörum, jafnvel hagn-
ast eitthvað út af góðum dílum
í gegnum Seðlabankann – the
House. Nema munurinn á Íslandi
og spilavítunum er að hér er
miklum vandkvæðum bundið að
skipta spilapeningunum aftur í doll-
ara. Ef húsið vinnur ekki er fólki einfald-
lega bannað að fara með dollarana sína.
ÉG játa að ég skil ekki alveg íslenska pen-
ingamálastefnu. Enn ruglaðri varð ég um
daginn þegar ég reyndi að vega og meta
þessa Auroracoins sem mér voru gefnir.
Íslensk stjórnvöld vöruðu fólk við þess-
ari nýju mynt. Eitthvað um að þetta sé
óstöðugur gjaldmiðill og engin trygging
fyrir að hann haldi verðgildi sínu. Hljómar
reyndar kunnuglega. Við erum eðlilega
skeptísk gagnvart því sem við skiljum ekki
en kannski er þetta aðallega hræðsla við
það sem er nýtt – því rétt upp hönd sem
skilur krónuna.
NÝTT frumvarp um spilavíti á Íslandi er
líka gagnrýnt (þrátt fyrir að landið með
spilapeningamyntina ætti í raun að vera
Gósenland spilavítanna). Við höfum nefni-
lega líka tilhneigingu til að hræðast ekki
bara það sem er óskiljanlegt eða nýtt, held-
ur einnig það sem einhverjir gætu mögu-
lega meitt sig á. Hvað með börnin?
ÉG er með tillögu. Af hverju byrjum við
ekki bara á að leyfa fjárhættuspil með
Auroracoin?
Krónuspil
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
LAUGARDAGUR 5. APRÍL
14:00 Sju brödre, Finnland (2012)
Á sænsku.
16:00 Mormor Og De Åtte ungene,
Noregur (2013)
18:00 Monica Z, Svíþjóð (2013)
20:00 Dom över död man, Svíþjóð
(2012)
NORRÆN
KVIKMYNDA
HÁTÍÐ
3.–15. APRÍL 2014
NORRÆNA HÚSIÐ
KYNNIR:
Allar kvikmyndirnar eru sýndar með
enskum texta og er frítt inn á hátíðina.
Nánari upplýsingar á norraenahusid.is.
............................................................................................................................................................................................................................
FJÖLSKYLDUPAKKINN
Allir borga barnaverð
CAPTAIN AMERICA 3D 2, 5, 8, 10:45
NOAH 6, 8, 9, 10:45
HNETURÁNIÐ 2D 2, 4, 6
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D 2, 4
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
THE HOLLYWOOD REPORTER
VARIETY
EMPIRE
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
KEFLAVÍK
AKUREYRI
VILLAGE VOICETHE PLAYLIST
THE HOLLYWOOD REPORTER
L.K.G - FBL. EMPIRE
EMPIRE ENTERTAINMENT WEEKLYTOTAL FILMTHE GUARDIAN
NYMPHOMANIAC PART 2
HEILD
GRAND BUDAPEST HOTEL
HNETURÁNIÐ 2D / 3D
DEAD SNOW - RED VS DEAD
ONE CHANCE
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D
KL. 6 - 9
KL. 6 - 8
KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 9 - 10.15
KL. 3.30
KL. 10.15
KL. 5.40
KL. 3.30
CAPTAIN AMERICA
CAPTAIN AMERICA LÚXUS
NOAH
GRAND BUDAPEST HOTEL
HNETURÁNIÐ 2D
DEAD SNOW - RED VS DEAD
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS ÍSL. TAL 2D
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS ÍSL. TAL 3D
RIDE ALONG
KL. 1 - 5 - 8 - 10.50
KL. 1 - 5 - 8 - 10.50
KL. 5 - 8 - 10.50
KL. 5.45 - 8
KL. 1 - 3 - 5.40
KL. 10.15
KL. 1 - 3.20
KL. 1 - 3.20
KL. 8 - 10.15 Miðasala á:
- THE TELEGRAPH
- FRÉTTABLAÐIÐ
- THE GUARDIAN- EMPIRE
FRÁ ÞEIM SÖ MU OF FÆRÐU OKKUR AVENGERS