Fréttablaðið - 05.04.2014, Side 110
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 74
VINSÆLUSTU VERKIN
SÝND Á ÍTALÍU
Í kvöld sýnir Íslenski dansflokkurinn
í Bolzano á Ítalíu. Boðið verður upp
á þrjú ólík verk sem öll hafa slegið
í gegn hjá áhorfendum og gagn-
rýnendum. Verkin eru Svanurinn eftir
Láru Stefánsdóttur sem nýlega lét
af störfum sem listrænn stjórnandi
flokksins, Farangur eftir Valgerði
Rúnarsdóttur sem frumsýnt var í
febrúar síðastliðnum
og verkið Gros-
stadtsafari eftir
Norðmanninn Jo
Strömgren sem
samið hefur
nokkur verk fyrir
flokkinn á undan-
förnum árum. - ebg
„Eiginlega. Orðum þetta þannig að
ég hef fengið fullnægingu í háloft-
unum. Ein. Og með einhverjum.“
– FYRIRSÆTAN MIRANDA KERR ÞEGAR
HÚN VAR SPURÐ Í BRESKA GQ HVORT HÚN
VÆRI MEÐLIMUR Í HÁLOFTAKLÚBBNUM.
„Blaz er allavega kominn í buff-
alo-skóna og klár á Selfoss,“ segir
rapparinn Erpur Eyvindarson,
betur þekktur sem Blaz Roca en
hann kemur fram á 800 Bar Sel-
fossi í kvöld. Hann ætlar þó ekki
aðeins að halda tónleika þar, því
hann ætlar að afhenda staðnum
einstaka rommflösku til ættleið-
ingar, en staðurinn er kominn með
gott safn af merkilegum munum úr
tónlistarlistarsögu Íslands. „Það
er hellingur af flottu stöffi þarna.
Þetta er að verða eitt flottasta tón-
listarsafn landsins, til dæmis er
mínípilsið sem Einar Ágúst klædd-
ist í Eurovision á safni staðarins,“
bætir Erpur við.
„Þegar listamaður kemur að spila
hjá okkur, þá kemur hann með hlut
með sér. Ætlunin er að búa til flott
safn sem hefur að geyma merkilega
hluti úr tónlistarsögunni og því gott
að fá þessa einstöku rommflösku frá
Erpi, hann er jú andlit rommsins á
Íslandi,“ segir Eiður Birgisson, eig-
andi 800 bars.
Erpur kemur fram með nýrri sveit
sinni, Clanroca, og fleiri félögum.
800 Bar brann árið 2012 en hefur
nú verið opnaður í sömu byggingu
og Hótel Selfoss og er í mikilli sókn.
„Ég ætli að brenna 800 Bar niður
aftur í kvöld,“ bætir Erpur við létt-
ur í lundu.
- glp
Fer í buff alo-skónum á Selfoss
Erpur Eyvindarson ætlar að gefa 800 Bar einstaka rommfl ösku en á staðnum er komið
mikið safn með munum úr tónlistarsögunni. Hann kemur fram með nýrri hljómsveit.
FERÐABÚINN
Hanni Bach,
trommari
Skítamórals,
afhendir hér
Erpi Eyvindar-
syni lyklana
að borginni,
Buffalo-skóna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BLENDIN-APPIÐ
VÆNTANLEGT
Íslenska djamm-appið Blendin verður
aðgengilegt fyrir iPhone- og Android-
notendur 11. apríl. Davíð Örn Símon-
arson, Kristján Ingi Mikaelsson, Ásgeir
Vísir og Daníel Björn Sigurbjörnsson
standa á bak við Blendin.
Appið gerir þér kleift að
fylgjast með hvar vinir
þínir eru á djamminu.
Fólk tékkar sig inn á
skemmtistaði og þá er
einnig hægt að sjá
hvar manneskjan
er inni á staðnum
með hjálp GPS-
tækninnar.
- glp
ÞJÓÐVERJAR HRIFNIR
AF HERÐI SVEINSSYNI
Högni Egilsson, Sigtryggur Magnason,
sviðakjammar og tónlistarhúsið Harpa
prýða heila opnu í nýjasta tölublaði
Rolling Stone Magazine í Þýskalandi.
Myndaþátturinn er eftir ljósmyndarann
Hörð Sveinsson, en sá hefur skapað
sér nafn í Þýskalandi. Hann lauk til að
mynda nýverið við myndband
tónlistarmannsins Rea
Garvey, sem gefinn er út í
Þýskalandi. Hörður hefur
látið að sér kveða í mynd-
bandagerð og ljósmyndun
á Íslandi og leikstýrði meðal
annars myndbandi
Hjaltalín við lagið I
Feel You sem vakti
mikla athygli. - ósk
„Það er bara spennandi að breyta
til,“ segir leikarinn Hallgrímur
Ólafsson en samningi hans við
Borgarleikhúsið var rift í vikunni.
„Þetta gerist oft þegar nýir leik-
hússtjórar byrja,“ bætir Hallgrím-
urvið. Hann útskrifaðist frá Leik-
listardeild Listaháskóla Íslands
vorið 2007 og fékk í kjölfarið fast-
ráðningu hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Þar var hann í ár og fyrir
uppsögnina hafði hann verið fast-
ráðinn hjá Borgarleikhúsinu síðan
árið 2008.
„Maður er náttúrulega alltaf
hissa þegar manni er sagt upp. En
ég leit bara á þetta sem tækifæri,
ég hef alveg verið að hugsa þetta
í vetur,“ segir leikarinn sem velti
því fyrir sér hvort það hefði verið
kominn tími til þess að breyta til.
„Það langar alla til að leika í Þjóð-
leikhúsinu,“ segir Hallgrímur en
honum barst samningstilboð frá
Þjóðleikhúsinu tæpum sólarhring
eftir að honum var sagt upp.
Varðandi uppsögnina sjálfa seg-
ist Hallgrímur skilja þörf á breyt-
ingum mjög vel.
„Breytingar eru af hinu góða
eins og dæmin sanna,“ segir Hall-
grímur. „Minn tími í Borgarleik-
húsinu var frábær og ég er búinn
að vinna í mjög skemmtilegum
verkefnum þar,“ en hinn ungi leik-
ari lék meðal annars í sýningum á
borð við Fólkið í blokkinni, Hótel
Volkswagen, Gullregn og Óska-
steinar.
Hallgrímur á nú von á öðru
barni sínu með unnustu sinni,
Matthildi Magnúsdóttur, en hann
á eitt barn fyrir. „Þetta er rosa-
lega spennandi,“ segir Hallgrímur
sem á von á barninu í ágúst.
„Ég á eina fimmtán ára stelpu
og síðan eigum við Matthildur
saman einn þriggja ára strák,“
segir leikarinn knái sem hlakkar
til framtíðarinnar.
baldvin@frettabladid.is
Nýtt barn, ný vinna
Hallgrímur Ólafsson er bjartsýnn maður og lítur á uppsögn sína hjá Borgar-
leikhúsinu sem tækifæri auk þess sem hann á von á barni með unnustu sinni.
Maður er náttúrulega alltaf hissa þegar manni er
sagt upp. En ég leit bara á þetta sem tækifæri, ég hef
alveg verið að hugsa þetta í vetur.
Hallgrímur Ólafsson
JÁKVÆÐUR Hallgrímur Ólafsson og unnusta eiga von á barni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SUNNUDAGUR 6. APRÍL
20:00 Skytten, Danmörk
(2013)
Allar kvikmyndirnar eru sýndar með
enskum texta og er frítt inn á hátíðina.
Nánari upplýsingar á norraenahusid.is.
NORRÆN
KVIKMYNDA
HÁTÍÐ
3.–15. APRÍL 2014
NORRÆNA HÚSIÐ
KYNNIR:
ht.is
SELFOSS • REYKJANESBÆR • AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • REYKJAVÍK
Nikon School
námskeið fylgir!
24,2 Megapixla
C-MOS myndflaga
Nikon D3200KIT1855VR
Stafræn SLR myndavél með 24,2 milljón punkta
upplausn, 24,2 mm CMOS flögu á DX-sniði,
EXPEED 3, ISO 100-6400 (fer í 12800), 3” LCD
skjá, Active D-Lighting, D-Movie FHD hreyfimynd,
umhverfis- og brellustillingum, hraðri raðmyndatöku,
tvöföldu rykhreinsikerfi, HDMI C út ofl.
VR LINSA MEÐ HRISTIVÖRN
STAFRÆN SLR MYNDAVÉL
TILBOÐ
FULLT VERÐ 109.995
99.995
NIKON FERMINGARTILBOÐ
Þráðlaust farsímatengi
að verðmæti 11.990 fylgir!
Nú með nýrri
og léttari
linsu!