Fréttablaðið - 10.04.2014, Side 6
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
300 aðjunktar,
lektorar og dósentar
ÞESSIR HAFA BOÐAÐ VERKFALL VIÐ HÍ
260 sérfræðingar,
fræðimenn og vísindamenn
250 starfsmenn sem
vinna við stjórnsýslu Háskólans
30 starfsmenn
Árnastofnunar
30 starfsmenn
á Háskólabókasafni
30 starfsmenn Raunvísindastofnunar
8 Starfsmenn
á Keldum
Verkfallið myndi bitna á 14.000 nemendum Háskóla Íslands
ALÞINGI Boðaðar gjaldskrárlækk-
anir ríkisins í tengslum við kjara-
samninga í desember eru ekki enn
komnar til framkvæmda. Frum-
varp fjármálaráðherra þar að lút-
andi er til umsagnar í efnahags- og
viðskiptanefnd. Í því er lagt til að
bensíngjald, olíugjald, kílómetra-
gjald og gjald af áfengi og tóbaki
auk umhverfis- og auðlindaskatta
lækki um eitt prósent.
Sjö umsagnir hafa borist um
frumvarpið, meðal annars frá
Alþýðusambandi Íslands (ASÍ).
ASÍ gagnrýnir mjög þá töf sem
hefur orðið á málinu og telur að end-
urskoða hefði átt miklar hækkanir
á gjaldskrám í heilbrigðisþjónustu.
Í sama streng tekur Starfs-
greinasambandið sem segir að
gjaldskrárhækkanir í heilbrigðis-
þjónustu komi harðast niður á
þeim sem hafa lágar tekjur.
Félag atvinnurekenda fagn-
ar frumvarpinu og því að hluti
hækkunar ýmissa gjalda um ára-
mót verði dreginn til baka og sömu
skoðun lýsa Neytendasamtökin.
Samtök atvinnulífsins segja að
frumvarpið sé mikilvægur liður í
að lækka verðbólgu og verðbólgu-
væntingar til lengri tíma og stuðla
að efnahagslegum stöðugleika sem
sé forsenda aukins kaupmáttar.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
fagnar því að gjaldskrárlækkun
verði á eldsneyti.
FÍB lýsir þó vonbrigðum sínum
með að lækkunin er aðeins um
eitt prósent en um síðustu áramót
hækkuðu þessi gjöld um þrjú pró-
sent. - jme
Frumvarp fjármálaráðherra um gjaldskrárlækkanir enn til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd:
Eins prósents lækkun eldsneytisgjalda
LÆKKAR Bensíngjald lækkar um eitt
prósent verði frumvarp fjármálaráðherra
að lögum. FÍB telur að lækkunin hefði
átt að vera meiri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1. Hvað krefjast háskólakennarar mik-
illar hækkunar mánaðarlauna?
2. Hvað stefna Íslandshótel á að bæta
við mörgum hótelherbergjum?
3. Hvar stendur til að opna nýja Ham-
borgarabúllu?
SVÖRIN
VINNUMARKAÐUR „Stúdentum
þykir óvissan verst,“ segir María
Rut Kristinsdóttir, formaður Stúd-
entaráðs Háskóla Íslands.
Fram á síðustu stundu vonuð-
ust stúdentar eftir því að Félag
háskólakennara næði samningum
við ríkið og hætt yrði við formlega
verkfallsboðun. Til að verkfall sé
löglega boðað þarf að boða til þess
með tveggja vikna fyrirvara. Sá
frestur rann út í gær.
Takist ekki
að semja fara
háskólakennar-
ar í verkfall 25.
apríl til 10. maí
að báðum dögum
meðtöldum.
Þetta er á prófa-
tíma háskólans.
„Það fylgir
prófatíma mikið
álag, það bætir ekki úr skák að
vita ekki hvenær próf verða hald-
in. Fólk hefur miklar áhyggjur.
Margir eru áhyggjufullir yfir
námslánum sínum því námslán
eru ekki greidd út fyrr en að lokn-
um prófum,“ segir María Rut og
bætir við að fólk sé búið að ráða
sig í vinnu, eða ætli að fara í nám
til útlanda í sumar og svo framveg-
is. Allar áætlanir fari úr skorðum.
„Það eru allir búnir að skipu-
leggja tíma sinn eftir 10. maí,“
segir hún.
Á fjórða þúsund háskólastúd-
enta hafa skrifað undir áskorun á
netinu til þingmanna um að þeir
leggi sitt lóð á vogarskálarnar til
að koma í veg fyrir verkfall Félags
háskólakennara.
„Verkfall það sem vofir yfir
Háskóla Íslands á prófatímum
er mikið áfall fyrir 14.000 stúd-
enta, 4.400 starfsmenn skólans og
samfélagið allt,“ segir í áskorun-
inni. Þá segir að veruleikinn sem
blasi við stúdentum sé napur og
Stúdentum við HÍ
þykir óvissan verst
Félag háskólakennara tilkynnti formlega verkfallsboðun í gær. Náist ekki samningar
falla próf niður. Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir nemendur áhyggju-
fulla því að allar áætlanir þeirra fari úr skorðum verði af verkfalli kennara.
MARÍA RUT
KRISTINSDÓTTIR
VERKFALL YFIRVOFANDI Félag háskólakennara boðaði í gær formlega til verkfalls
á prófatíma HÍ. Stúdentar eru afar áhyggjufullir yfir gangi mála. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL Skatttekjur af ferða-
þjónustu jukust aðeins um rúm 20
prósent á sama tíma og erlendum
ferðamönnum hingað til lands
fjölgaði um tæp 40 prósent á árun-
um 2008 til 2012. Þetta kom fram í
máli Sigríðar Mogensen hagfræð-
ings á fundi efnahagssviðs Sam-
taka atvinnulífsins í gær.
Meðfram því sem sviðið birti
nýja hagspá sína kynnti Sigríður
athugun þess á framleiðni og lífs-
kjörum innan ferðaþjónustunnar.
Í máli Sigríðar kom einnig fram
að skatttekjur á hvern ferðamann
hefðu dregist saman um ellefu
prósent að raunvirði á sama tíma
og greiðslukortanotkun erlendra
ferðamanna hefur vaxið um rúm
þrjátíu prósent. Þetta telja samtök-
in gefa vísbendingar um að mikið
sé um svarta atvinnustarfsemi í
greininni.
„Þetta segir okkur að skatttekj-
urnar fylgja ekki aukinni neyslu
ferðamanna og er ein stærsta vís-
bending þess efnis að mikið sé um
svarta atvinnustarfsemi í grein-
inni,“ segir Sigríður í samtali við
Fréttablaðið.
Hún segir enn fremur að þetta
sé mikið áhyggjuefni þar sem ekki
hafi verið gerðar neinar stórvægi-
legar breytingar á skattkerfinu á
sama tíma.
- fbj
SA segja að þrátt fyrir fjölgun ferðamanna skili þeir minni skatttekjum:
Segja mikið af svartri starfsemi
ÁHYGGJUEFNI Sigríður segir vísbendingar
um umfangsmikla svarta atvinnustarfsemi
í ferðaþjónustunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
afleiðingarnar yrðu hörmuleg-
ar; verkfall eyðileggi prófatíma-
bil stúdenta, útborgun námslána,
sumarvinnu og kostnaðarsamar
ferðaáætlanir.
María Rut segir að stúdentar
ætli ekki að láta þar við sitja.
„Við ætlum að boða til aðgerða
og þrýsta á að menn semji. Ég held
að allir leggi kapp á að samningar
náist fyrir 25. apríl svo hægt verði
að halda próf á réttum tíma,“
segir hún.
Samni nga nefndir Félags
háskólakennara og ríkisins hittust
á sáttafundi hjá ríkissáttasemjara í
gær og áfram verður fundað næstu
daga.
Háskólakennarar krefjast þess
að laun þeirra verði leiðrétt og
telja að þau eigi að hækka um 10
til 14 prósent. Auk þess vilja þeir
sömu kauphækkanir og önnur
félög BHM koma til með að semja
um.
johanna@frettabladid.is
1. Sextíu og átta þúsund króna. 2. Átta hundr-
uð tuttugu og fi mm. 3. Í Kaupmannahöfn.
VEISTU SVARIÐ?
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð
1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna.
Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er
að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða
munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú
ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf,
sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.