Fréttablaðið - 10.04.2014, Síða 60

Fréttablaðið - 10.04.2014, Síða 60
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 48 ➜ Já sæll! Hvað er í snyrtibuddu leikkonunnar Emmu Roberts? LÍFIÐ 2048 er tölvuleikur en einnig getur einn leikmaður spilað hann í farsíma. Það var hinn ítalski Gabriele Cirulli sem skapaði hann og setti á markað í mars á þessu ári en Gabriele er aðeins nítján ára gamall. Leikurinn gengur út á að tengja saman sömu tölur og markmið leiksins er að enda með reit með tölunni 2048. Hljómar frekar ein- falt en er fáránlega erfitt. Gabriele bjó leikinn til að sjá hvort hann gæti forritað leik frá grunni. Það kom honum svo sann- arlega í opna skjöldu þegar fjór- ar milljónir manna spiluðu leik- inn í fyrstu vikunni sem hann var aðgengilegur almenningi. Margir hafa líkt 2048 við leik- inn Flappy Bird, aðallega út af því að þeir eru báðir afar ávana- bindandi. Margir vita kannski að Flappy Bird var tekinn af mark- aðinum af skapara sínum, Ngu- yên Hà Ðông, í febrúar á þessu ári því hann var með gríðarlegt samviskubit yfir því hvað leik- urinn var í raun ávanabindandi. Nú á eftir að koma í ljós hvort sama verði upp á teningnum með 2048 en Flappy Bird var aðeins aðgengilegur í minna en ár. ➜ Í HNOTSKURN: Til bæði í verslun iTunes og Google Play Ókeypis 2,1 MB Til á ensku og frönsku Fær að meðaltali 4 stjörnur hjá notendum Ávanabindandi heilaleikur Leiknum 2048 hefur verið líkt við Flappy Bird sem var tekinn af markaðinum. VARALITUR FRÁ NETUROGENA.FÖRÐUNARBURSTAR FRÁ MAC. NAGLALAKK FRÁ ESSIE. ILMVATNIÐ SANTAL 33. Broadway - Hótel Ísland Partý ársins Lokaball á Broadway 11. april 2014 Forsala aðgöngumiða er á Broadway dagana 9. & 10. apríl frá kl. 16.00 - 19.00 Allur ágoði rennur til Barnaspítala Hringsins Húsið opnar kl. 22.00 með fordrykk frá kl. 22.00 - 23.00 Miðaverð aðeins 1.500 kr. allar nánari upplýsingar á Broadway - Hótel Ísland Eyjólfur Kristjánsson Ari Jónsson Bjarni Arason Regina Ósk Bryndís Ásm undsdóttir Alan Jones Þórunn Clausen Jói Bachmann & Rósa Helga Möller Stjórnin ásamt Diskótek Dísa sjá um fjörið „Við tókum okkur frí frá námi í eitt ár til þess að safna kröftum fyrir háskólann í haust og fannst tilvalið að nýta árið í að safna pening til að gera eitthvað sem okkur hefur allt- af dreymt um,“ segir Sæmundur Hrafn Linduson þegar blaðamaður nær tali af honum þar sem hann er staddur í Kína. Eftir menntaskólann fengu grunnskólavinirnir Ástmund- ur Kolbeinsson, Jónas Atli Gunnars- son og Sæmundur Hrafn Linduson þá hugmynd að kynnast annarri menningu og siðum í von um að víkka sjóndeildarhringinn. Eftir að hafa unnið myrkranna á milli í tíu mánuði lögðu þeir land undir fót og hófu heimsreisu sína. Áætluð heimkoma er um miðjan júní en þangað til stefna þeir á að deila upplifunum sínum í gegnum tónlistina og semja nýtt lag um hvert land sem þeir heimsækja. „Við höfum allir gaman af því að spila á hljóðfæri og syngja og þessi hug- mynd kom upp stuttu fyrir brott- för. Við vildum líka gera eitthvað skemmtilegt og frumlegt til að skapa minningar,“ segir Ástmundur. Þrímenningarnir hafa nú þegar samið fjögur lög en þeir hafa ferðast til Svíþjóðar, Danmerkur, Dúbaí og Japans og eru staddir í Kína um þessar mundir. Félag- arnir segja ferðalagið hafa verið ævintýri líkast og vonast til að halda sínu striki peningalega séð. Hins vegar hafi menningarsjokkið gert vart við sig þegar komið var til Asíu. „Í Dúbaí var horft illilega á okkur þegar við löbbuðum um í stuttbuxum. Í Japan var okkur sýnd ótrúleg gestrisni og hjálp- semi sem við höfum aldrei kynnst áður. Sæmi spurði mann úti á götu hvar væri hægt að kaupa bjór og maðurinn fylgdi Sæma í næstu matvörubúð, fann bjórinn fyrir hann, beið með honum í röðinni, fylgdi honum alla leið að hótelinu okkar og hneigði sig svo. Í Kína er mikið starað á okkur vegna þess að við erum hvítir og hávaxn- ir. Við höfum einnig lent í því að vera stoppaðir úti á götu svo að fólk geti tekið mynd af sér með okkur,“ segir Jónas Atli Gunn- arsson. Búast má við fleiri lögum frá félögunum því framundan er ferðalag til Taílands, Kambódíu, Víetnams, Malasíu, Indónesíu og Bretlands. -marinmanda@frettabladid.is Söngelskir félagar í heimsreisu Ástmundur Kolbeinsson, Jónas Atli Gunnarsson og Sæmundur Hrafn Linduson ferðast um heiminn og semja lög í hverju landi um upplifun sína til að skapa minningar. Lögin eru orðin fj ögur. Textarnir í lögunum eru byggðir á upplifun félaganna á ferðalaginu. Þeir blogga um ferðina á Facebook á síðunni Asía, Já sæll! SEMJA LÖG Ástmundur Kolbeinsson, Jónas Atli Gunnarsson og Sæmundur Hrafn Linduson skemmta sér í heimsreisu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.