Fréttablaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.04.2014, Blaðsíða 24
19. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Þann 1. janúar 2014 voru íbúar hins sameinaða sveitarfélags Garða- bæjar og Álftaness, undir nafni þess fyrrnefnda, 14.180 talsins. Sameining þessara sveitarfélaga varð að veruleika þann 1. janúar 2013 eftir að bæði sveitarfélögin samþykktu sameininguna í íbúa- kosningu þann 20. október árið áður. Íbúaþróun hefur verið á þá leið að bæjarbúum hefur fjölgað umtalsvert á síðustu 10 árum eða um 31 prósent. Garðabær er í dag sjötta fjölmennasta sveitarfélag landsins. Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar í sveitarstjórnarmálum síðan síðast var kosið til sveitarstjórn- ar árið 2010 í Garðabæ. Í júlí árið 2010 kom út skýrsla Ríkisendur- skoðunar um fjárhagsvandræði Álftaness. Þá var komin fjárhags- stjórn yfir rekstur þess sveitarfé- lags og talið einsýnt að skatttekjur sveitarfélagsins dygðu ekki til að reka sveitarfélagið. Gerðir höfðu verið óuppsegjanlegir leigusamn- ingar undir formerkjum einka- framkvæmdar sem skuldbundu sveitarfélagið Álftanes til langs tíma. Álftanes var þá í þeirri stöðu að skuldir og skuldbindingar sveit- arfélagsins voru um 7,5 milljarð- ar króna. Söguna þekkja flestir og samhliða kosningum til stjórnlaga- ráðs árið 2012 var einnig kosið um sameiningu sveitarfélaganna. Vegna sameiningar þessara tveggja sveitarfélaga er því lands- lagið í kosningunum í vor nokkuð öðru vísi en það var fyrir fjórum árum. Bæjarfulltrúum mun fjölga í Garðabæ um fjóra, fara úr sjö í ellefu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft gríðarlega góða stöðu í báðum þess- um byggðarlögum. Í síðustu kosn- ingum hlaut flokkurinn hreinan meirihluta í báðum sveitarstjór- nunum, hlaut 47,3 prósent greiddra atkvæða á Álftanesi. Í Garðabæ fékk flokkurinn nærri tvö af hverj- um þremur greiddum atkvæðum og fimm menn af sjö í bæjarstjórn. Þreifingar áttu sér stað í vetur milli flokkanna í Garðabæ um að bjóða fram einn sameiginlegan lista gegn Sjálfstæðisflokknum. Þær umræður runnu fljótlega út í sandinn. Á síðasta kjörtímabili hefur Garðabær verið nokkuð í umræðunni. Vegarlagningu um Gálgahraun, nýrri vegtenging milli Álftaness og Garðabæjar, var harð- lega mótmælt og fóru „Hraunavin- ir“, samtök sérstaklega stofnuð til að verja Gálgahraun, þar fremst í flokki. Náttúruverndarsamtök mótmæltu einnig harðlega og voru skipulögð mótmæli viðhöfð þannig að lögregla þurfti að skerast í leik- inn. Líklegt er að fjögur framboð bjóði fram krafta sína í komandi kosningum í hinu sameinaða sveit- arfélagi. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru tilbúnir með framboðslista. Björt fram- tíð ætlar sér að bjóða fram lista sameiginlega með M-listanum sem bauð fram til sveitarstjórnar í Garðabæ árið 2010. Einnig ætlar Samfylkingin að tilkynna sinn lista fljótlega eftir páska. Fleiri framboð hafa ekki gert sig líkleg til að bjóða fram lista. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ stillti upp lista og hafn- aði þar þremur reyndum bæjar- fulltrúum flokksins og stillti Gunn- ari upp í efsta sæti listans. Mikillar óánægju gætti meðal sumra sjálf- stæðismanna með niðurstöðu upp- stillingarnefndar. Gunnar kom þá fram með málamiðlunartillögu á sáttafundi í Sjálfstæðisflokknum þess efnis að hann færði sig úr odd- vitasætinu í það áttunda. Gunnar telur uppstillinguna ekki skaða flokkinn í komandi kosning- um. „Ég er ánægður með þann lista sem var stillt upp. Auðvitað er eftir sjá að reyndum bæjarfulltrú- um en á endanum var þetta lýð- ræðisleg niðurstaða. Ég er í senn oddviti og bæjarstjóraefni Sjálf- stæðisflokksins þó ég hafi ákveðið að fara niður í áttunda sæti listans. Um leið og ég skynjaði ákveðin von- brigði með útkomu uppstillingar- nefndar kom ég fram með lausn á málinu og þá fann ég að andrúms- loftið róaðist til muna.“ Einar Karl Birgisson er oddviti Framsóknarflokksins í komandi kosningum. Framsóknarflokkur- inn náði ekki inn manni í kosning- unum í Garðabæ en Einar Karl sat í sveitarstjórn Álftaness árið 2010. Að hans mati hefur sameiningin tekist með ágætum, sameiningar- ferli sem þetta taki oft langan tíma og halda verði þeirri vinnu áfram. Sameiningin hafi þó gengið stór- áfallalaust fyrir sig og sveitarfé- lögin passi vel saman. „Mikilvægt er að góð staða Garðabæjar nýtist íbúum sem best og að þjónusta við íbúana verði aukin,“ segir Einar Karl. „Við leggjum einnig áherslu á að farið verði vel yfir samgöngumálin innan sveitarfélagsins því flösku- hálsar eru víða.“ Einar Karl telur að hlúa þurfi áfram vel að íþrótta- og tómstunda- málum í bæjarfélaginu. Marka þurfi skýra stefnu til framtíðar í uppbyggingu íþróttamannvirkja og svæða svo flestar íþróttagrein- ar geti blómstrað í Garðabæ Steinþór Einarsson var kosinn í bæjarstjórn Garðabæjar fyrir Samfylkingu. Flokkurinn hefur ekki sett saman lista en von er á að það klárist í næstu viku. Hann gefur ekki upp hvort hann haldi áfram. Steinþór telur að skipulags- mál verði efst á baugi í kosninga- baráttunni í vor. „Hér eru menn að reyna að koma upp miðbæ, það hefur tekið lang- an tíma en hillir undir það núna. Einnig hafa verið langir biðlistar eftir félagslegu húsnæði og hjá fötl- uðum. Ekkert hefur miðað í þeim málum þrátt fyrir fjármuni í fjár- hagsáætlun til verksins. Einnig skiptir máli fyrir þróun sveitar- félagsins að við hugsum hvernig byggðin þróist. Það skiptir máli að leyfa byggðakjörnunum að mætast í stað þess að byggja til fjalla.“ Sameiningin gengið áfallalaust Sameining sveitarfélaganna Garðabæjar og Álftaness var samþykkt í íbúakosningu þann 20. október árið 2012. Bæjar- fulltrúum fjölgar um fjóra, fara úr sjö í ellefu talsins. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut í síðustu sveitarstjórnarkosningum hreinan meirihluta í báðum bæjarfélögunum. Garðabær er sjötta stærsta sveitarfélag landsins, 10.472 eru á kjörskrá. Garðabær SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014 GARÐABÆR Sveinn Arnarsson sveinn@frettabladid.is 10.643 manns bjuggu í Garðabæ árið 2010 14.182 manns búa í Garðabæ í dag 10.472 eru á kjörskrá 7,5 milljarðar Skuldir og skuldbindingar Álft aness árið 2010 FRAMBOÐSLISTAR Í MOSFELLSBÆ Sjálfstæðisflokkur 1. sæti Áslaug Hulda Jónsdóttir framkv.stjóri 2. sæti Sigríður Hulda Jónsdóttir framkv.stjóri 3. sæti Sigurður Guðmundsson lögfræðingur 4. sæti Gunnar Valur Gíslason framkv.stjóri 8. sæti Gunnar Einarsson bæjarstjóri Framsókn 1. sæti Einar Karl Birgisson svæðisstjóri Latabæjar 2. sæti Þórunn K. Matthíasdóttir forstöðumaður 3. sæti Björn Þorfinnsson sölufulltrúi 4. sæti Anna Lena Halldórsdóttir kennari D B Samfylkingin og Björt framtíð hafa ekki sett saman lista en úr þeirra her- búðum er það að frétta að listarnir séu að verða tilbúnir. D-listi Sjálfstæðisflokkurinn 5 fulltrúar 63,5% B-listi Framsóknarflokkurinn 0 fulltrúar 5,4% Auðir og ógildir seðlar 6% S-listi Samfylkingin 1 fulltrúi 15,3% M-listi Fólksins í bænum 1 fulltrúi 15,9% Kosningaúrslit 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.