Fréttablaðið - 12.05.2014, Page 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
14
BLÓM OG BLÍÐANú er tíminn fyrir vorverkin í garðinum. Hreinsa beð og bera á
pallinn. Gott er að hafa allt tilbúið til að snæða utandyra þegar
sólin skín og hitatölur hækka. Tími sumarblómanna er að
renna upp. Gaman er að raða þeim fallega saman í útipotta.
N ú er komin viðbót við vörulínu Masterline á markað, sólarlínan Solaire og BB-krem fyrir hendur og fætur. Allar Masterline-vörurnar eru án parabena.
Masterline-sólarlínan verndar hárið
gegn skaðlegum áhrifum sólar, klórs og saltvatns. Vörurnar gefa hárinu þá
vernd sem það þarf í sumar og halda raka og lit í hárinu.Þórunn Ívarsdóttir mælir bæði með
sólarlínunni og BB-kreminu fyrir hendur
og fætur. „Ég nældi mér í Repair-sjampóið frá Masterline en það hreinsar
hárið vel eftir sólardag og gefur fallegan
gljáa. Einnig á ég Spray Conditioner-hárnæringuna sem kemur í sprey-formi og maður þarf ekki að skola úr sem gefur auka næringu og raka og er
einnig mjög gott flókasprey. Síðan er það uppá haldið mitt úr línunni en það
er Protective Spray Oil sem er vörn í hárið áður en maður fer út í sólina. Hún
verndar hárið og hárlitinn fyrir útfjólu-
bláum geislum og neikvæðum áhrifum
klórs og sjós. Mér finnst mjög góð lykt
af vörunum og eru þær án parabena og
SLES (sodium laureth sulfate) en ég er
einmitt með ofnæmi fyrir SLES. Spreyið
er eitthvað sem é
skemmir fyrir að það veitir góðan raka
um leið. Ilmurinn af kreminu er mildur
og góður. Kremið skolast svo af í sturt-
unni,“ segir Þórunn
ALLT SEM ÞARF FYRIR SUMARIÐHALLDÓR JÓNSSON EHF. KYNNIR Masterline hefur nú bætt við vörulínu sína
sólarlínu sem kallast Solaire og BB-kremum fyrir hendur og fætur.
ÁNÆGÐ
Þórunn er ánægð með Masterlin ö
FASTEIGNIR.IS
12. MAÍ 2014
19. TBL.
Fasteignamarkaðurinn hefur
til sölu bjarta fimm herbergja
efri sérhæð við Lindarbraut á
Seltjarnarnesi.
Íbúðin sem er fimm herbergja og
134,6 fm er í þríbýlishúsi og bíl-
skúrsréttur fylgir.
Gengið er upp flísalagðan
stiga upp á efri hæð. Þar er sjón-
varpshol með parketi og fata-
skápum. Á svefngangi eru þrjú
barnaherbergi og hjónaherbergi.
Öll eru herbergi parketlögð og
fata skápar í hjóna erbergi og
Björt íbúð vi Lindarbraut
Finndu okkur
á Facebook
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Ásdís Írena
Sigurðardóttir
skjalagerð
Brynjólfur
Snorrason
sölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali
Gústaf Adolf
Björnsson
lögg. fasteignasali
Stefán Már
Stefánsson
sölufulltrúi
Guðbjörg G.
Blöndal
lögg. fasteignasali
Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is
Elín Viðarsdó r Lögg. fasteignasali
Safamýri 47
Vantar
eignir á skrá
Frí
verðmat
Sér inngang
Opið hús þriðjudaginn 13. maí kl. 18:00-18:30
19,9m
2 SÉRBLÖÐ
Fasteignir | Fólk
Sími: 512 5000
12. maí 2014
110. tölublað 14. árgangur
SKOÐUN Guðmundur Andri
Thorsson um Eurovision,
fordóma og fjölbreytni. 15
MENNING Sjö verkefni
hlutu styrk úr Hönnunar-
sjóði Auroru í ár. 22
SPORT Man. City er
Englands meistari en Liver-
pool fékk silfur. 26
rjóminn af
sýrða rjómanum
gottimatinn.is
NÝTT
Sími 512 4900 landmark.is
FLJÓTLEGT OG ÞÆGILEGT
FJÁRMÁL Í tillögum um framtíðar-
skipan húsnæðismála, sem félags-
og húsnæðismálaráðherra kynnti á
þriðjudaginn, segir að stefnt skuli
að því að varanlega verði hægt
að nýta séreignarsparnað til fast-
eigna kaupa. Kára Arnóri Kárasyni,
framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins
Stapa, líst illa á tillögurnar.
„Það er nokkurn veginn verið
að ganga af viðbótarlífeyris-
sparnaðar kerfinu dauðu. Þetta er
ekki lífeyrissparnaður ef þetta á
að vera varanlegur valkostur. Að
mínu viti kemur það ekki til álita
að lífeyrissjóðir séu nýttir í að inn-
heimta iðgjöld af launagreiðendum
til þess að greiða einhverjum lána-
stofnunum fyrir einstaklinga. Líf-
eyrissjóðirnir eru ekki til þess.
Ef menn vilja búa til eitthvað sem
heitir húsnæðissparnaður á það
ekki að fara í gegnum lífeyrissjóð-
ina,“ segir Kári Arnór.
Þórey S. Þórðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka líf-
eyrissjóða, hefur einnig efasemdir.
„Það vekur spurningar að lagt
sé til að séreignarsparnaðarkerf-
inu verði nánast breytt í varan-
legt húsnæðissparnaðarkerfi. Það
er andstætt upphaflegu hugmynd-
inni sem gengið var út frá með
stofnun viðbótarlífeyrissparnaðar-
kerfis,“ segir Þórey og bætir við
að Landssamtök lífeyrissjóða muni
stofna starfshóp á næstu dögum til
að fara yfir tillögurnar og áhrif
þeirra á lífeyrissjóðina.
Í tillögunum kemur einnig fram
að stefnt skuli að því að ný neyt-
endalán til fasteignakaupa verði
óverðtryggð. Verðtryggð skulda-
bréf Íbúðalánasjóðs eru einn
stærsti eignaflokkur lífeyrissjóða.
Verði fasteignalán ekki lengur
verðtryggð mun Íbúðalánasjóður
eða arftaki hans ekki gefa út verð-
tryggð skuldabréf.
Því segir Kári: „Ef það verða
engar útgáfur af verð tryggðum
skuldabréfum mun það gera okkur
erfiðara um vik að greiða verð-
tryggðan lífeyri.“ Kári bendir
einnig á að verðtrygging sé mjög
víðtæk í íslensku samfélagi.
„Eðlilegast væri, ef afnema á
verðtryggingu af einum lið, að
taka hana út úr öðrum liðum líka.
Vandamál lífeyrissjóðanna er að
allar okkar skuldbindingar eru
verðtryggðar en ekki nema um
helmingur af eignunum er verð-
tryggður,“ segir Kári Arnór.
- ih
Tillögur sagðar kollvarpa
séreignarsparnaðarkerfinu
Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Stapa segir tillögur um framtíðarskipan húsnæðismála ganga af séreignar-
sparnaðarkerfinu dauðu. Framkvæmdastjóri Landsamtaka Lífeyrissjóða tekur í svipaðan streng.
LÍFIÐ Natasha Monay
Royal er með götudansinn í
blóðinu. 30
Bolungarvík 3° NA 6
Akureyri 4° NA 3
Egilsstaðir 4° A 4
Kirkjubæjarkl. 6° SA 3
Reykjavík 8° S 6
Hæg breytileg átt víða um land og súld
á köflum SV- og V-lands. Hiti á bilinu 2-11
stig, hlýjast SV-lands. 4
Þetta er ekki lífeyris-
sparnaður ef þetta á að vera
varanlegur valkostur.
Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri
lífeyrissjóðsins Stapa.
VORVERK Í REYKJAVÍK Garðeigendur eru í óðaönn að koma lóðum sínum úr vetrarhamnum enda skriður kominn á vorið og
sumarið á næsta leiti. Trjágreinabingurinn hjá Sorpu í Gufunesi var orðinn býsna myndarlegur síðdegis í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fordæma kosningu
Úkraínustjórn og Vesturlönd for-
dæma kosningu um sjálfstæði
tveggja héraða í Úkraínu. Efna á til
atkvæðagreiðslu um næstu helgi um
innlimun héraðanna í Rússland. 8
Skoða lög um myglusveppi Lög
og reglur verða tekin til skoðunar af
starfshópi vegna myglusveppa og tjóns
af völdum þeirra. Dæmi um að fólk
missi aleigu sína meðan aðrir missa
heilsuna. 6
Vilja samning á borðið Hafnar-
fjarðar bær hefur krafið Stálskip um
afrit af kaupsamningi vegna sölu fyrir-
tækisins á togaranum Þór Hf-4. 6
Upplausn í Nígeríu Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna segir að
flótta manna straumurinn frá Nígeríu
muni aukast mjög á næstunni vegna
ofbeldisverka Boko Haram. 12
KÓPAVOGUR Næst besti flokkurinn
í Kópavogi gagnrýnir að umboðs-
maður Sjálfstæðisflokksins, Bragi
Michaelsson, óski eftir því við kjör-
stjórn að fá meðmælendalista ann-
arra framboða. Það lýsi miklu van-
trausti á störf kjör stjórnar.
„Leyfum við okkur að efast um
að tilgangur beiðni Braga Michaels-
sonar sé ærlegur heldur séu hér á
ferðinni gamaldags aðferðir í anda
austurþýsku leyniþjónustunnar
Stasi, til þess að stunda persónu-
njósnir um kjósendur,“ segir í yfir-
lýsingu.
„Okkur ber skylda til að sjá til
þess að meðmælendur og meðmæli
með öllum framboðum séu rétt,“
svarar Bragi og útskýrir að list-
arnir gagnist í kosningaundirbún-
ingnum. „Mér finnst engin ástæða
þess að Sjálfstæðisflokkurinn sé að
hafa samband við fólk sem hefur
mælt með öðrum framboðum.“ - gar
Næst besti flokkurinn í Kópavogi sakar sjálfstæðismenn um njósnir:
Skylt að kanna meðmælendur
SAMGÖNGUMÁL Icelandair kennir
skæruhernaði flugmanna um að
21 flug félagsins hafi fallið niður
í gær.
Hafsteinn Pálsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflug-
manna, hafnar því en segir Ice-
landair hafa fellt niður fjögur
flug þrátt fyrir að hafa mannaða
áhöfn.
Upplýsingafulltrúi Icelandair,
Guðjón Arngrímsson, neitar því.
Hann segir málið eiga sér eðli-
legar skýringar.
Guðjón bætir við að flug muni
geta fallið niður með stuttum
fyrir vara ef samningar nást ekki.
Þó er ekki gert ráð fyrir að flug
falli niður í dag.
Samningafundur verður hjá
ríkissáttasemjara í dag. Guðjón
segir launakröfur flugmanna
mjög háar.
Innanríkisráðherra útlokar ekki
að setja lög á verkfallið. -ih/sjá síðu 4
Launadeilur hjá Icelandair:
Kenna hvorir
öðrum um