Fréttablaðið - 12.05.2014, Blaðsíða 40
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður aug lýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson,
kolli@365.is, s. 512-5447
Ég var lengi búin að horfa á krabbagildrurnar fyrir utan vinnustofuna mína en
á neðri hæðinni við hana er út-
gerð. Ég velti fyrir mér hvernig
væri hægt að nota þær og þegar
veiðimennirnir gáfu mér tvær
gildrur lét ég sink- og pólýhúða
þær, setti þær saman og úr varð
mjög flottur borðfótur. Svolítið
eins og krínólín,“ útskýrir Guðný
Hafsteinsdóttir keramiker, en
að Strandgötu 43 í Hafnarfirði
stendur yfir sýning á munum
eftir hana, borði úr krabbagildr-
um og viði og leirmunum. Viður-
inn í borðinu er ævagamall.
„Mér áskotnaðist tvö hundruð
ára gamall rauðviður úr Reykja-
víkurhöfn, frá smið sem var
að vinna fyrir mig í sumarbú-
staðnum mínum. Hann klauf við-
inn niður fyrir mig og við unnum
úr honum borðplötu. Viðurinn
fer vel með gildrunum en hvort
tveggja hefur sterka tengingu
við sjóinn,“ segir Guðný.
Sömu sögu má segja um leir-
munina á sýningunni en Guðný
sýnir nýja liti í matarstelli sem
hún hannaði fyrir veitingastað-
inn Mar á sínum tíma. Stellið ber
heitið Skarfur, eins og sjófugl-
inn svarti, og hefur Guðný bætt
við stellið skálum í tveimur
stærðum og einnig bætt við
litaflóruna.
Þá sýnir Guðný litla báta úr
leir sem nota má undir salt og
sítrónu.
Hún segist alltaf hafa verið
veik fyrir endurvinnslu. „Ég hef
mjög gaman af að finna eitthvað
og gera upp. Ég er einmitt með
gamlan stól úr Góða hirðinum
í bílnum núna,“ segir Guðný
sposk. „Ég tálga líka mikið úr
greinum sem ég finn, til dæmis
tálga ég fætur og stél og set á
postulínsfugla sem ég bý til. Mitt
aðalfag er þó ávallt keramik.“
Sýning Guðnýjar stendur til
maíloka.
■ heida@365.is
200 ÁRA GAMALL VIÐUR
VERÐUR AÐ BORÐI
ÍSLENSK HÖNNUN Guðný Hafsteinsdóttir hannaði borð úr 200 ára gömlum rauðvið úr Reykjavíkurhöfn
og krabbagildrum. Borðið sýnir hún að Strandgötu 43 í Hafnarfirði ásamt matarstelli og munum úr keramik.
RAUÐVIÐUR ÚR REYKJAVÍKUR-
HÖFN Viðurinn í borðplötunni er um tvö
hundruð ára gamall. Borðfóturinn er úr
tveimur krabbagildrum.
MYND/GUÐNÝ HAFSTEINSDÓTTIR
SÓTT TIL SJÁVAR Bæði borðið og
matarstellið tengjast sjónum.
LITIR Guðný bætti við litaflóruna í matarstellinu Skarfur. Salt- og sítrónubátarnir draga
form sitt frá netamöskvum.
SKARFUR Matarstellið hannaði Guðný fyrir veitingastaðinn Mar en það dregur nafn
sitt af sjófuglinum svarta.
SÝNIR Í HAFNARFIRÐI Guðný
Hafsteins dóttir keramiker frumsýndi
borðið á HönnunarMars. Sýning stendur
nú yfir að Strandgötu 43 í Hafnarfirði.
MYND/VALLI
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
NÝTT – NÝTT
8 rétta
hlaðborð í
hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.390.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga.
ekki um helgar.
Eru flugur, flær eða
maurar að ergja þig
og bíta?
áhrifaríkur
og án
allra
eiturefna.
Allt að
8 tíma
virkni.
Fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hjá N1
www.gengurvel.is
Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is
/Kokulist
Ábendingahnappinn
má finna á
www.barnaheill.is