Fréttablaðið - 12.05.2014, Qupperneq 2
12. maí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
TÓNLIST „Þetta var rosalega
gaman. Okkur fannst pressunni
af okkur létt þegar við komumst
áfram úr undanriðlinum þannig að
við vöknuðum brosandi, hressir og
glaðir á laugardag. Dagurinn var
ótrúlega auðveldur – bara eitt gott
og stórt partí,“ segir appelsínu-
guli pollinn Snæbjörn Ragnars-
son í Pollapönki.
Sveitin lenti í 15. sæti í Euro-
vision-keppninni í Kaupmanna-
höfn á laugardagskvöld með lagið
Enga fordóma, eða No Prejudice.
Snæbjörn segir þá Pollapönkara
ekki hafa velt sér upp úr spám.
„Eina sem við vissum var að við
færum á svið og gerðum það sem
við gerum best,“ segir hann.
Austurríska draggdrottn ingin
Conchita Wurst fór með sigur úr
býtum í Eurovision. Segir Snæ-
björn íslenska hópinn hæst-
ánægðan með það. „Hún er alger-
lega glæsileg. Það var mikið talað
um að hún væri öðruvísi en hún
vann ekkert út af því að hún þótti
skrýtin heldur var lagið gott og
hún er svo mikill listamaður. Þetta
val skapar líka umræðu og við
fögnum því klárlega.“
Aðspurður um hvernig Polla-
pönkarar hafi eytt kvöldinu eftir
úrslitin segir Snæbjörn að þeir
hafi fagnað hóflega enda verið
dálítið þreyttir. „Við skáluðum
og fórum upp á hótel þar sem við
vorum með samsæti í lobbýinu.
Síðan fór fólk bara sína leið,
sumir fóru á klúbb en aðrir fóru
upp á herbergi. Við vorum flest-
ir búnir að sofa lítið og fundum
fyrir spennufallinu þannig að
daginn eftir tékkuðum við okkur
út af herbergjunum og röltum um
niðri í bæ, hver í sínu lagi. Verk-
efnið er búið og við erum ánægðir
með okkur.“
Snæbjörn segir Pollapönkara
vissulega hafa aflað sér aðdáenda
víða um Evrópu. „Við höfum verið
stoppaðir af alls konar fólki, alls
staðar að, sem veit hverjir við
erum. Ég vissi að þetta væri risa-
stórt batterí en ég áttaði mig ekki
á því hve ofboðslega stórt þetta
væri. Ég held að Pollarnir hafi
haft áhrif á ansi marga. Við höfum
fengið fullt af persónulegum póst-
um þar sem fólk þakkar fyrir að
við séum að vekja athygli á þessu
málefni sem er bara frábært.“
Nú tekur raunveruleikinn við og
Snæbjörn mættur aftur til vinnu á
auglýsingastofunni Pipar/TBWA.
„Nú er sápukúlan sprungin. Ég get
örugglega ekki séð appelsínu gulan
lit aftur án þess að fá Eurovision-
fíling. Það kom skemmtilega á
óvart hvað var gaman að vera með
naglalakk og ég á örugglega eftir
að vera með naglalakk aftur til
hátíðabrigða. En nú er ég kominn
aftur í hermannaklossana,“ segir
Snæbjörn Ragnarsson.
liljakatrin@frettabladid.is
Pollar hæstánægðir
með sigurvegarann
Appelsínuguli pollinn Snæbjörn Ragnarsson er ánægður með hvernig fór í Euro-
vision. Hann segir Pollapönkara hafa fengið ótal bréf frá fólki sem þakkar þeim
fyrir mikilvægan boðskap og er alveg hæstánægður með sigurvegara keppninnar.
HÖFÐU ÁHRIF Snæbjörn heldur að Pollapönk arar hafi haft áhrif á ansi marga.
MYND/EUROVISION
GÓÐGERÐARMÁL Hjón sem ekki
vilja láta nafna sinna getið gáfu
eina milljón króna til þjarkasöfn-
unarinnar á Landspítala.
„Að baki liggur mikið þakklæti
fyrir góða þjónustu þvagfæra-
skurðdeildarinnar við eigin-
manninn sem færði lífi hans nýtt
gildi,“ segir á vef Landspítalans.
Þjarki er vélmenni sem nota við
þvagfæraskurðlækningar. „Segja
má að þjarkinn sé framlenging á
fingrum skurðlæknisins þannig
að allar hreyfingar hans verði
nákvæmari,“ segir á vef spítal-
ans. - gar
Þakklát fyrir læknishjálp:
Gáfu 1 milljón
til Landspítala
20% héldu að
Ísland myndi
lenda í 16. sæti.
9% tippuðu á 10.
sæti og 8% á 20. sæti.
Að meðaltali héldu
Íslendingar að lagið myndi
lenda í 15. sæti sem varð
raunin.
Nú er sápukúlan
sprungin.
Snæbjörn Ragnarsson í Pollapönki.
STJÓRNMÁL Björt framtíð skýrði í
gær frá því að framboð á vegum
hennar til sveitarstjórnarkosn-
inga nú í vor verði í níu sveitar-
félögum.
Flokkurinn býður fram á
Akureyri og Akranesi, í Árborg,
Hafnarfirði, Kópavogi, Garða-
bæ og Snæfellsbæ, á Ísafirði og í
Reykjavík.
Þá hefur verið ákveðið að
flokkurinn bjóði fram undir
listabókstafnum Æ, sama bók-
staf og Besti flokkurinn notaði í
síðustu sveitarstjórnarkosning-
um. - gb
Björt framtíð staðfestir:
Býður fram á
níu stöðum
HESTAMENNSKA Hestamennska getur verið harla
dýrt sport, en um þessar mundir er hópur nemenda
í nýsköpun við Háskólann í Reykjavík að stofna
fyrirtæki sem gerir fólki kleift að stunda hesta-
mennsku án mikils tilkostnaðar.
Meiningin er að bjóða fólki upp á áskrift að hestum.
Þannig þarf fólk hvorki að kaupa hest né leigja pláss
fyrir hann. Fólk losnar einnig við að þurfa að láta
járna hann og fara með hann til dýralæknis.
Fyrirtækið, sem heitir Hestavinir, hyggst sjá
um allt þetta stúss en veitir áskrifendum reglu-
legt aðgengi að hesti. Innifalið í áskriftinni verður
aðgangur að sama hestinum, hnakkur, beisli og
hjálmur, auk þess sem fóður, hirðing og annar
rekstrarkostnaður er innifalinn.
„Með því að gerast áskrifandi færðu aðgang að
hesti og þarft ekki að hugsa um neitt annað en að
hreyfa hestinn og sinna honum á þínum tíma,“ segir
Anna Bára Teitsdóttir, einn nemanna í nýsköpun, en
hún er talsmaður fyrirtækisins.
„Þannig getur fólk kynnst hestamennskunni
betur og stundað þetta skemmtilega áhugamál af
þeim krafti sem hver og einn treystir sér til.“ - gb
Fyrirtækið Hestavinir fer af stað með nýstárlega þjónustu í Víðidal:
Boðið upp á áskrift að hestum
HESTAR Áskrifendur fá reglulegan aðgang að sama hestinum,
en losna við umstang og aukakostnað af hestahaldinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ORKUMÁL Eykon Energy hefur
valið Reyðarfjörð úr fimm bæjar-
félögum sem þjónustumiðstöð
fyrir olíuleit og olíuvinnslu á
Drekasvæðinu.
Haukur Óskarsson, stjórnar-
maður Eykon, segir staðsetningu,
innviði og reynslu bæjarfélagsins
af stórum verkefnum hafa skipt
sköpum. Jens Garðar Helgason,
formaður bæjarráðs Fjarðar-
byggðar, segir þessa ákvörðun
Eykon skapa gríðarleg tækifæri
fyrir bæjarfélagið. -ih
Olíuleit á Drekasvæðinu:
Eykon velur
Reyðarfjörð
HEILBRIGÐISMÁL Í dag milli
klukkan átta og fjögur skellur
á verkfall hjá á fimmta hundrað
sjúkraliðum og ófaglærðum
starfsmönnum hjúkrunarheim-
ila fyrir aldraða.
Gísli Páll Pálsson, formaður
Samtaka fyrirtækja í velferðar-
þjónustu, segir þó að enginn
verði í hættu á morgun og öllum
verði sinnt.
„Það verður ekki neyðar-
ástand. Allir munu fá mat-
inn sinn og lyfin sín. Vaktin
verður mönnuð
hjúkrunar-
fræðingum,
ófaglærðum
starfsmönnum
og einhverjum
sjúkraliðum
á undanþágu
frá verkfalli.
Einhverjir
aðstandendur
munu einnig
hjálpa til,“ segir Gísli.
Önnur átta tíma vinnustöðvun
verður á fimmtudaginn og aftur
þann 19. maí. Verði ekki samið
fyrir 22. maí skellur á verkfall.
Deilan snýst ekki um laun
heldur vilja sjúkraliðar fá rétt-
indi líkt og aðrir ríkisstarfs-
menn.
Gísli segir Samtök fyrirtækja
í velferðarþjónustu til búin til
samninga. Hann telur um helm-
ingslíkur á að samið verði áður
en næstu verkfallsaðgerðir
skella á, á fimmtudaginn.
-ih
Sjúkraliðar og ófaglærðir starfsmenn deila við hjúkrunarheimili um réttindi:
Verkfall á hjúkrunarheimilum
TAÍLAND, AP Stuðningsmenn stjórnar Yinglucks Shinawatra segja
hættu á því að borgarastyrjöld brjótist út, ákveði dómstólar og öld-
ungadeild þingsins að koma til valda nýrri stjórn, sem ekki er kosin í
lýðræðislegum kosningum.
Stjórnlagadómstóll landsins komst í síðustu viku að þeirri niður-
stöðu að Yingluck gæti ekki lengur gegnt embætti forsætisráðherra
vegna spillingarmáls, sem hún er sögð sek í.
Bráðabirgðastjórn landsins, sem tók við af stjórn Shinawatra, bað
fólk hins vegar um að taka ekki þátt í mótmælum til stuðnings Shina-
watra.
Bæði stuðningsmenn og andstæðingar hennar hafa efnt til mótmæla
í höfuðborginni Bangkok nú um helgina. - gb
Stuðningsmenn stjórnar Yinglucks Shinawatra mótmæla:
Segja hættu á borgarastyrjöld
Í RAUÐUM SKYRTUM Stuðningsmenn stjórnar Yinglucks Shinawatra mæta til leiks
í einkennisklæðnaði sínum, nefnilega rauðum skyrtum og bolum. NORDICPHOTOS/AFP
GÍSLI PÁLL
PÁLSSON
SPURNING DAGSINS
Kringlunni
heyrnarstodin.is
HEYRNARSTÖ‹IN
Baldvin, er það von þín að
vonarstjörnur Vonarstrætis
valdi ekki vonbrigðum?
„Ég bind miklar vonir við það.“
Baldvin Z er leikstjóri kvikmyndarinnar
Vonarstræti sem er frumsýnd í kvikmynda-
húsum landsins 16.maí.
20%
9%
15