Fréttablaðið - 12.05.2014, Page 12

Fréttablaðið - 12.05.2014, Page 12
12. maí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 12 SUÐUR-SÚDAN, AP Í gær hófust átök í Suður- Súdan, innan við tveimur sólar- hringum eftir að Salva Kiir forseti og Riek Machar, leiðtogi uppreisnarmanna, samþykktu vopnahlé. Uppreisnarmenn hafa átt í hörðum átökum við stjórnarherinn síðan í des- ember, en bæði Ban Ki-Moon, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, höfðu lagt hart að Kiir og Machar að semja um frið. Átökin virðast tengjast ágreiningi milli þjóðflokka, en Kiir er af þjóðflokki Dinka en Machar er af Nuer-þjóðflokknum. Þeir Kiir og Machar hafa hins vegar verið sakaðir um að láta persónuleg ágreinings- mál sín brjótast út í bardögum liðsmanna sinna. Báðir saka þeir hvor annan um að hafa ekki haft stjórn á liðsmönnum sínum, með þeim afleiðingum að vopnahléið hélt ekki nema í tæpa tvo sólarhringa. Þúsundir manna hafa fallið í átökunum síðan í desember. Í síðustu viku sögðu Sameinuðu þjóðirnar að mannréttinda- brot hefðu verið framin í stórum stíl í tengslum við þessi átök. - gb Átök hófust í Suður-Súdan, tveimur sólarhringum eftir að samkomulag um vopnahlé var gert: Ekkert mark virðist tekið á vopnahléinu VOPNAHLÉ SAMÞYKKT Þeir Salva Kiir forseti, sá með hatt- inn, og Riek Machar, leiðtogi uppreisnarmanna, sem er lengst til hægri, fóru með bænir ásamt tveimur fulltrúum kirkjunnar þegar samkomulagið var undirritað á föstudag. NORDICPHOTOS/AFP NÍGERÍA Goodluck Jonathan Nígeríu forseti neitaði vikum saman að þiggja aðstoð erlendis frá við leitina að meira en 300 stúlkum, sem öfgasamtökin Boko Haram rændu í síðasta mánuði. Það var ekki fyrr en í síðustu viku sem Jonathan féllst á að þiggja aðstoð frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Kína við að hafa uppi á stúlkunum og bjarga þeim. Breska utanríkisráðuneytið segist fyrst hafa formlega boðið honum aðstoð þann 18. apríl, fjórum dögum eftir að stúlk- unum var rænt. Bandaríkin segj- ast einnig hafa allt frá fyrsta degi boðið aðstoð og verið í sambandi við Nígeríustjórn vegna málsins. Nú í þessari viku er eitt ár liðið frá því að neyðarástandi var lýst yfir í norðaustanverðri Nígeríu, í ríkjunum Adamawa, Borno og Yobe, en í þessum ríkjum hafa öfgasamtökin Boko Haram haft sig mest í frammi. Ofbeldisverk samtakanna hafa orðið æ tíðari og alvarlegri með hverjum mánuðinum sem líður, með þeim afleiðingum að flótta- fólki fjölgar jafnt og þétt. Flóttamannastofnun Samein- uðu þjóðanna segir að 250 þúsund manns séu á vergangi innan landa- mæra Nígeríu, eftir að hafa hrak- ist að heiman vegna ofbeldis og átaka í landinu undanfarið. Auk þess hafa rúmlega 60 þús- und flúið til nágrannalandanna Kamerún, Tsjad og Níger. „Þetta fólk er að flýja árásir uppreisnarmanna eða af ótta við hefndaraðgerðir nígeríska hersins,“ segir Adrian Edwards, talsmaður Flóttamannastofn- unarinnar, í tilkynningu frá stofn- uninni nú fyrir helgi. Hann segir stofnunina óttast mjög að flóttamannastraumurinn muni aukast til muna. Frásagnir þeirra flóttamanna sem rætt hafa við fulltrúa Flóttamannastofn- unarinnar eru ófagrar. „Grimmd og tíðni þessara árása á sér engin fordæmi,“ segir Edwards. Árásarmennirnir hafa brennt heilu þorpin til grunna. Þeir hafa kastað handsprengjum inn á markaðs torg, þar sem fjöldi fólks var staddur. Sumir hafa orðið vitni að því að vinir þeirra eða ætt ingjar hafa, að því er virðist af handahófi, verið valdir úr hópi fólks og drepnir úti á götu. Ein af stúlkunum sem rænt var í síðasta mánuði hefur sagt fjöl- miðlum að hún sé of hrædd til að fara aftur í skólann sem hún gekk í áður en henni var rænt. Stúlkunum var öllum rænt úr skólanum, en Boko Haram segjast andvíg því að stúlkur njóti vest- rænnar menntunar. gudsteinn@frettabladid.is Nígeríustjórn hafnaði hjálp Flóttamannastofnun S.Þ. hefur varað við því að flótta manna straumurinn frá Nígeríu muni aukast mjög á næstunni vegna ofbeldisverka Boko Haram. MÓTMÆLI Ættingjar stúlknanna hafa harðlega gagnrýnt stjórnvöld fyrir seinagang. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÍBÍA Tugir manna drukknuðu út af strönd Líbíu í síðustu viku. Fólkið reyndi að komast frá Afríku til Evrópu í von um betra líf. Liðs- mönnum sjóhers Líbíu tókst að bjarga rúmlega 50 manns, en allt að 130 manns voru um borð. Í gær var búið að finna 36 lík, en rúm- lega 50 manns að auki var saknað. Frá þessu var skýrt á vefsíðu BBC sem vitnar í Saleh Mazek, innanríkisráðherra Líbíu, um að Líbía ráði ekki lengur við flótta- mannastrauminn til Evrópu. - gb Flóttafólk í Miðjarðarhafi: Tugir drukkna við Líbíuströnd PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 41 41 9 Viðskiptafræði með vinnu Kynningarfundur þriðjudaginn 13. maí kl. 12.10–12.50, í stofu 102 í Gimli. Nánar á vmv.hi.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.