Fréttablaðið - 12.05.2014, Page 15
MÁNUDAGUR 12. maí 2014 | SKOÐUN | 15
TÍSTIÐ
Það sem er skemmtilegast við
Evróvisjónkeppnina er að hún er
eitthvað svo innilega evrópsk.
Hún á sér eflaust djúpar
rætur. Eru ekki Meistarasöngv-
ararnir frá Nürnberg eftir
Wagner um einhverja svona
Júróvisjónkeppni á miðöldum?
Voru ekki haldnar svona hátíðir
með tilheyrandi krýningu í
lokin á sigurvegaranum í hverju
þorpi á öldum áður? Þetta er að
minnsta kosti mikil alþýðuhá-
tíð með tilheyrandi sjónarspili,
mikil vegsömun á því hver við
erum og hver hin eru; hvenær
við erum „hin“ og hvenær „við“;
hvenær „við“ erum „hin“. Eða
þannig: Hvernig það er að vera
hinsegin – og viðsegin.
Það eina sem varpaði skugga
á skemmtunina var baulið í
nokkrum áhorfendum á 17 ára
tvíburasystur frá Rússlandi sem
voru með heldur skemmtilegt
ABBA-númer en urðu illilega
fyrir barðinu á baulverjum. Voru
þeir að baula á Pútín? Ekki sá ég
hann á svæðinu. Það er alltaf ljótt
að sjá hóp snúast gegn einstak-
lingum, hvað sem líður málstað;
hópnum skjátlast alltaf gagnvart
einstaklingunum. Það er grund-
vallarregla. Þetta voru ekki menn
ofsóttir af Pútín – þetta voru
menn að ofsækja tvær sautján ára
stúlkur. Það fyrsta sem maður
afsalar sér þegar maður baular
með hóp er sjálfstæð hugsun, þar
með fer mennskan – og fasisminn
ríður í hlað.
Pompið og praktin
Hann er náttúrlega líka svolítið
evrópskur. En annars sem sagt
bara gaman. Söngurinn óneitan-
lega stundum dálítið falskur,
hin ýkta glaðværð hálflam-
andi á köflum, lögin einhvern
veginn endalaus og samt mundi
maður þau ekki fimm mínútum
síðar (hvernig var aftur sigur-
lagið?) – hliðardansinn (skauta-
hlaupið, hamsturshjólið, ról-
urnar) alveg blygðunarlaust
asna legur (ættum við að senda
æfingar á tvíslá með næst?),
lögin öll úr einhverju einnota
efni sem eyðist strax; og hljóm-
uðu eins og sett saman með
sænskum sexkanti eins og ein-
hver orðaði það – en án þess að
því verði bein línis komið í orð er
eitthvað mjög evrópskt við þetta
fólk. Það veit sínu viti. Það veit
hvernig það ætlar að hafa þetta.
Það hefur mjög afdráttarlausar
skoðanir á því hvernig þetta á að
vera. Það á að vera eins og það
hefur alltaf verið.
Eða flest. Því miður hefur sin-
fóníuhljómsveit með virðulegum
og ögn þungbúnum stjórnanda
(„það er ekki þetta sem ég geri,
ég er vanur að stjórna níundu
Mahlers“) ekki lifað af og
keppnin eiginlega ekki borið sitt
barr síðan – en annað er eins og
það hefur alltaf verið. Þó að ég
geti ekki með nokkru móti rifjað
upp sigurlagið man ég þó að það
er eins og það hefur alltaf verið.
Það var sjálft júróvisjón-dívu-
sigurlagið; og gat ekki annað en
sigrað, sungið svona dásamlega
af dragg-Jesú.
Flest hefur sem sagt lifað af
og þess vegna er Evróvisjón-
keppnin síðasta vígi svo margs:
hún er síðasta vígi pompsins
og praktarinnar, sem annars er
bara til í föstu orðatiltæki upp
á Íslandi þar sem allt geymist í
stirðnuðum orðaleppum. Þarna
eru flugeldar og kjólar, glit
og glimmer, eldingar og glær-
ingar, langorðir kynnar og fólk
sem kemst upp með að halda
langar ræður á frönsku. Hún
er líka síðasta vígi sjálfrar lag-
línunnar sem er að mestu horf-
in í nútímatónlist, hvort sem
það er tveggja nótna sönglið í
vinsældatónlist dansgólfanna,
nótnalaust vélaskröltið í raftón-
listinni sem er eins og að hlusta
á þvottavél vinda, taktfastar
drumbudrunurnar í færibanda-
afkastahvatningunum, rapp-
umlið, rokkýlfrið eða flúrsöng-
ur r&b-tónlistarinnar – að ekki
sé talað um afurðir tónskáld-
anna sem skrifa framsækna
músík – melódían er alls staðar
horfin, nema hjá sænsku tækni-
tónfræðingunum sem skrúfa
saman öll Evróvisjón lögin í
einhverri grandprixmelodi-
fabrikku í Skövde, og senda svo
í einingum til annarra landa,
eins og einingahúsin, og svo eru
þessi sænsku einingalög sett
saman aftur í hverju landi – og
úr verður Evrópueining. Nema
þau íslensku. Íslendingar banga
sjálfir saman sínum lögum.
Og kynsegin …
Og árangurinn sjálfsagt eftir
því. Þau eru samt alltaf góð og
umhugsunarverð. Þau tjá eitt-
hvað annað en lýtalaust sænskt
formskyn. Vandfundin er betri
skoðanakönnun um líðan og
afstöðu íslensku þjóðarinnar
en þau lög sem hún ákveður að
senda í Evróvisjónkeppnina,
því þau sýna sjálfsmynd hennar
hverju sinni, þá mynd sem hún
kýs að gefa af sér, hvort sem
það er hin spillta og fordekraða
næturdrottning á hátindi hrok-
ans eða hið ljósa man, í bláum
kjó eins og álfkonan hefur
alltaf verið klædd á Íslandi,
og spyr: is it true – ætlið þið
aldrei að tala við okkur fram-
ar? Og svo núna – fjórir mið-
aldra hvítir karlar, sem ætti að
vera uppskrift að reglufestu og
stífsinna leiðindum, en láta eins
og börn án þess að afsala sér
karlmennsku sinni, klæðast lit-
ríkum búningum sem stundum
eru kjólar og stundum jakka-
föt, stundum krakkaföt, bæði
hinsegin, viðsegin, sniðsegin og
liðsegin, boðberar kærleikans
og friðflytjendur. Hvað táknar
það? Löngun til að stíga út úr
skáldskapnum um sjálfan sig og
faðma næsta mann.
En það er eitthvað evrópskt
við þetta allt saman: Ekki síst
þá gleðiríku vegsömun sem í
þessari keppni er á öllu því sem
kallað er einu orði „ hinsegin“.
Að vera öðruvísi. Það má vera
að inn við b-b-b-b-b-b-einið
séum við eins – öll erum við
vatn, söng Yoko – en það er líka
mikilsvert að leyfa fólki að
vera öðruvísi utan við beinið.
Klæðast litum, skera sig úr án
þess að mega búast við rudda-
legu góni eða aðkasti. Á því er
stundum misbrestur hér á landi.
Evrópa hefur ýmislegt að kenna
okkur um gildi fjölbreytninnar.
Utan við b-b-b-b-b-einið erum við ólík
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Það fyrsta sem
maður afsalar sér
þegar maður baular með
hóp er sjálfstæð hugsun,
þar með fer mennskan–
og fasisminn ríður í hlað.
Felix Bergsson
@felixbergsson
Rússar eru brjálaðir.
Hóta að hætta þátt-
töku í Eurovision. Tel
miklar líkur á að þeir
standi við það. #12stig
Stefán
Hilmarsson
@stefanhilmars
#12stig „Is this the
same Poland that
produced a pope?“, spurði Norton.
Eðlilega.
Karl Pétur
@karlpetur
Kvöldið var stórsigur
fyrir skeggrótina,
en tap fyrir skoruna
.#12stig
Þórir
Sæmundsson
@thorirsaem
Fyndnast er að það
gæti enginn sungið
þetta lag seinna í kvöld. Muna
bara skeggið. Segir allt um þessa
draslkeppni. #12stig
Bragi Valdimar
@bragivaldimar
Niðurstaða. Gott
skegg. Sæmó lag.
#12stig
Reynir
Eurovision
@euroreynir
Pollapönk og No
Prejudice náði besta
árangri Íslands frá 2009. Stoltur af
þeim! Þótt ég skuldi bjór! #12stig
VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ
.
Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir
einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu.
Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn.
MAZDA. DEFY CONVENTION.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is
Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
*
Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
5 stjörnu öryggi!