Fréttablaðið - 12.05.2014, Side 50

Fréttablaðið - 12.05.2014, Side 50
12. maí 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26 Heimsmeistarakeppnin í fótbolta fer nú fram í tuttugasta sinn frá upphafi og að þessu sinni verður hún á heimavelli sigursælustu HM-þjóðarinnar frá upphafi, Brasilíu. Það eru 64 ár síðan Brasilíumenn héldu HM síðast (1950) og enn fremur 36 ár síðan HM-keppnin fór fram í Suður-Ameríku (Argentína 1978). Tvær aðrar keppnir hafa farið fram í Suður-Ameríku því sú fyrsta fór fram í Úrúgvæ 1930 og sú sjöunda var haldin í Síle árið 1962. Að þessu sinni taka 32 þjóðir þátt eða tvöfalt fleiri en þegar HM var síðast í Suður-Ameríku í júní 1978. Heimsmeistarakeppnin í ár hefst með opnunarleik Brasilíu og Króatíu í Sao Paulo 12. júní næstkomandi og lýkur með úrslita- leiknum á Maracana-leikvanginum í Ríó 13. júlí. > 31 dagur í HM í Brasilíu FORMÚLA 1 Lewis Hamilton er hrein- lega óstöðvandi í Formúlunni þessa dagana en hann vann sinn fjórða kappakstur í röð á Spáni í gær. Hann er fyrir vikið orðinn efstur í stigakeppni ökuþóra en Hamilton er með þriggja stiga forskot á liðsfélaga sinn, Nico Rosberg, en báðir keyra þeir fyrir Mercedes. Hamilton leiddi keppnina í gær frá upphafi til enda. Rosberg andaði ofan í hálsmálið á honum allan tímann en aðrir bílar voru víðs fjarri. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji og heimsmeistarinn Sebastian Vettel fjórði. „Ef ég á að segja eins og er þá keyrði ég ekki nógu hratt í dag. Nico var að keyra hraðar en ég. Sem betur fer fékk ég góðar ráðleggingar frá mínu fólki og okkur tókst að púsla þessu saman,“ sagði Hamilton eftir keppnina. „Hann er að keyra betur en ég almennt en ég hef náð að byrja keppnirnar vel og það hefur reynst mér mjög dýrmætt.“ Rosberg var svekktur að hafa ekki náð félaga sínum. „Einn hringur í viðbót og þá hefði ég getað látið á það reyna að komast fram úr Lewis. Ég er frekar svekktur en það er engu að síður gott að hafa náð öðru sæti. Það eru enn margar keppnir eftir,“ sagði Rosberg. - hbg Hamilton búinn að vinna fj ögur mót í röð GLAÐUR Hamilton brosti breitt á verðlaunapallinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Það var mikil spenna fyrir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni en bæði Man. City og Liverpool áttu möguleika á meistaratitlinum. Man. City stóð betur að vígi og sigldi bikarnum heim með sannfærandi sigri á West Ham. Gestirnir náðu ekki einu sinni skoti á markið og Man. City varð verðskuldaður Englandsmeistari. Þeirra annar titill á þremur árum. „Ég er stjóri frábærra leik- manna sem eru í frábæru félagi og spila fyrir enn betri áhorf endur,“ sagði stoltur stjóri City, Manuel Pellegrini, eftir leikinn en hann gerði liðið að meisturum á sínu fyrsta ári með liðið. „Þegar upp er staðið þá erum við að uppskera allt sem við gerðum í vetur. Við höfum lagt mikið á okkur og gengið í gegnum mikið. Það er frábært að hljóta þennan titil og ég tel okkur eiga það skilið.“ Það gekk brösuglega framan af hjá City en þegar liðið fór í gang var það ekki stöðvað. „Þetta var mjög sérstakt tímabil fyrir okkur. Við stokkuðum spilin eftir að hafa aðeins fengið eitt stig í fyrstu sex útileikjunum okkar. Þá sagði ég strákunum að við þyrftum að gera ákveðnar breytingar. Þeir trúðu á það sem ég hafði fram að færa og ekkert lið fékk fleiri stig á útivelli eftir þetta. Það skipti sköpum að þeir tryðu á mig og það sem ég hafði fram að færa.“ Liverpool stimplaði sig aftur inn í hóp bestu liða Englands í vetur og árangur liðsins frábær. Hann er þó súrsætur í ljósi þeirrar stöðu sem liðið var komið í. „Þetta hefur verið ótrúlegt tímabil. Að vinna tólf af fjórtán leikjum þessa árs er ótrúlegt afrek hjá strákunum,“ sagði Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, en hann er búinn að koma liðinu í Meistara- deildina á nýjan leik. „Við erum með ungt lið og okkur hefur tekist að fá stuðningsmenn- ina til þess að trúa á liðið. Það er okkar hlutverk. Við munum styrkja okkur í sumar og verðum klárir í baráttuna næsta vetur. Nú trúum við því að við getum farið alla leið.“ henry@frettabladid.is Man. City gerði engin mistök 24 ára bið Liverpool eft ir Englandsmeistaratitlinum lauk ekki í gær. Liverpool kláraði sinn leik en þurft i að treysta á tap hjá Man. City en það var aldrei í kortunum. Leikmenn City öruggir og fögnuðu titlinum. MEISTARAR Vincent Kompany, fyrirliði Man. City, lyftir hér bikarnum eftirsótta. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY EITT SKREF ENN Stjarnan getur tryggt sér titilinn í næsta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPORT ÚRSLIT CARDIFF CITY - CHELSEA 1-2 1-0 Craig Bellamy (14.), 1-1 Andre Schürrle (71.), 1-2 Fernando Torres (74.). FULHAM - CRYSTAL PALACE 2-2 0-1 Dwight Gayle (27.), 1-1 Cauley Woodrow (61.), 1-2 Dwight Gayle (83.), 2-2 David (90.+4). HULL CITY - EVERTON 0-2 0-1 James McCarthy (8.), 0-2 R. Lukaku (45.). LIVERPOOL - NEWCASTLE 2-1 0-1 Martin Skrtel, sjm (20.), 1-1 Daniel Agger (62.), 2-1 Daniel Sturridge (64.) MAN. CITY - WEST HAM 2-0 1-0 Samir Nasri (38.), 2-0 Vincent Kompany (48.) NORWICH CITY - ARSENAL 0-2 0-1 Aaron Ramsey (52.), 0-2 Carl Jenkinson (61.) SOUTHAMPTON - MAN. UTD 1-1 1-0 Rickie Lambert (28.), 1-1 Juan Mata (53.) SUNDERLAND - SWANSEA 1-3 0-1 Nathan Dyer (6.), 0-2 Marvin Emnes (14.), 1-2 Fabio Borini (50.), 1-3 Wilfried Bony (54.) TOTTENHAM - ASTON VILLA 3-0 1-0 Paulinho (13.), 2-0 Baker (34.), 3-0 Adeb (37.) WBA - STOKE CITY 1-2 0-1 Gareth McAuley (22.), 1-1 Stephane Ses- segnon (55.), 1-2 Charlie Adam (87.). LOKASTAÐAN Manchester City 38 27 5 6 102-37 86 Liverpool 38 26 6 6 101-50 84 Chelsea 38 25 7 6 71-27 82 Arsenal 38 24 7 7 68-41 79 Everton 38 21 9 8 61-39 72 Tottenham 38 21 6 11 55-51 69 Man. United 38 19 7 12 64-43 64 Southampton 38 15 11 12 54-46 56 Stoke City 38 13 11 14 45-52 50 Newcastle 38 15 4 19 43-59 49 Crystal Palace 38 13 6 19 33-48 45 Swansea City 38 11 9 18 54-54 42 West Ham 38 11 7 20 40-51 40 Sunderland 38 10 8 20 41-60 38 Aston Villa 38 10 8 20 39-61 38 Hull City 38 10 7 21 38-53 37 West Brom 38 7 15 16 43-59 36 Norwich 38 8 9 21 28-62 33 Fulham 38 9 5 24 40-85 32 Cardiff 38 7 9 22 32-74 30 Mörkin: 0-1 Kolbeinn Kárason (78.), 1-1 Einar Karl Ingvarsson (84.) FJÖLNIR (4-3-3): Þórður Ingason 7 - Gunnar Valur Gunnarsson 6 (71., Einar Karl Ingvarsson -), Atli Már Þorbergsson 6, Bergsveinn Ólafsson 7, Guðmundur Þór Júlíusson 6 - Illugi Gunnarsson 6, Gunnar Már Guðmundsson 5, Guðmundur Karl Guðmundsson 6 - Ragnar Leósson 3 (81., Guð- mundur Böðvar Guðjónsson -), Aron Sigurðarson 7* (64., Christopher Tsonis 6), Þórir Guðjónsson 6. VALUR (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson 7 - James Hurst 6, Magnús Már Lúðvíksson 6, Mads Nielsen 6, Bjarni Ólafur Eiríksson 6 - Haukur Páll Sigurðsson 6 (24., Kristinn Ingi Halldórsson 4), Halldór Hermann Jónsson 4, Kristinn Freyr Sigurðsson 6 - Lucas Ohlander 4 (75., Kolbeinn Kárason -), Sigurður Egill Lárusson 5 (86., Arnar Sveinn Geirsson -), Indriði Áki Þorláksson 5. Skot (á mark): 12-8 (4-5) Horn: 3-7 Varin skot: Þórður 4 - Fjalar 3 1-1 Fjölnisvöllur Áhorf.: 736 Valdimar Pálsson (6) ÚRSLIT OLÍS-DEILD KVENNA STJARNAN - VALUR 26-23 Stjarnan-kvenna - Mörk (skot): Jóna Margrét Ragnarsdóttir 10/3 (14/4), Helena Rut Örvarsdóttir 6 (8), Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2 (2), Þórhildur Gunnarsdóttir 2 (3), Hildur Harðardóttir 2 (3), Nataly Sæunn Valencia 2 (4), Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2 (8), Sólveig Lára Kjærnested (2), Varin skot: Florentina Stanciu 23/1 (46/7, 50%), Hraðaupphlaup: 2 ( Þórhildur 2 ) Fiskuð víti: 4 ( Jóna, Hildur, Esther, Sólveig) Valur-kvenna - Mörk (skot): Kristín Guðmunds- dóttir 10/4 (16/5), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 5/2 (7/2), Morgan Þorkelsdóttir 3 (3), Sigurlaug Rúnarsdóttir 2 (2), Karólína Lárudóttir 2 (5), Bryndís Elín Wöhler 1 (3). Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 14 (39/2, 36%), Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir (1/1, 0%), Hraðaupphlaup: 2 ( Morgan, Karólína ) Fiskuð víti: 7 (Kristín, Anna 2, Morgan 2, Bryndís, Rebekka Rut ) Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Stjörnuna. OLÍS-DEILD KARLA HAUKAR - ÍBV 26-19 Haukar - Mörk (skot): Einar Pétur Pétursson 5 (6), Sigurbergur Sveinsson 5/4 (7/4), Brynjólfur Snær Brynjólfsson 3 (5), Árni Steinn Steinþórsson 3 (7), Tjörvi Þorgeirsson 3 (8), Jón Þorbjörn Jóhannsson 2 (2), Elías Már Halldórsson 2 (4), Einar Ólafur Vilmundarson 1 (1), Þröstur Þráinsson 1 (1), Jónatan Ingi Jónsson 1 (2). Varin skot: Giedrius Morkunas 25/2 (44/5, 57%) ÍBV - Mörk (skot): Agnar Smári Jónsson 4 (9), Theodór Sigurbjörnsson 4/3 (9/5), Einar Gauti Ólafsson 2 (3), Grétar Þór Eyþórsson 2 (6/1), Róbert Aron Hostert 2 (8), Andri Heimir Frið- riksson 1 (1), Magnús Stefánsson 1 (1), Svavar Grétarsson 1 (1), Hallgrímur Júlíusson 1 (2), Guðni Ingvarsson 1 (5) Varin skot: Kolbeinn Aron Ingibjargarson 10 (26/2, 38%), Henrik Vikan Eidsvag 1 (11/2, 9%), Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Hauka. Mikið úrval af stuðningshlífum frá Sporlastic. Vandaðar vörur á góðu verði. Sporlastic vörurnar fást einnig í Lyfju Lágmúla, Reykjavíkurapóteki og Apóteki Vesturlands, Akranesi. FA S TU S _H _2 7. 05 .1 4 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16, 2.h. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.