Fréttablaðið - 12.05.2014, Síða 54
12. maí 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
UPPÁHALDS-
TEIKNI MYNDAPERSÓNAN
„Ég verð að segja Tasmaníudjöfull-
inn eða Tási vegna þess hversu líkir
við erum í fasi og útliti, sérstaklega
um helgar.“
Þórður Gunnar Þorvaldsson tónlistarmaður.
„Þetta er mjög góð hugmynd að
maður geti valið það sem maður
hefur áhuga á að starfa við í fram-
tíðinni“, segir Daníel Gunnarsson,
nemandi í Háaleitisskóla Álfta-
mýri, en hann lauk nýverið við for-
vitnilega starfsfræðslu á vegum
skólans, þegar hann fékk að fylgj-
ast með störfum tónlistarmanna.
Hann heimsótti Eyþór Inga og
Atómskáldin á dögunum.
Daníel spilar á gítar og hefur mik-
inn áhuga á tónlist og starfsfræðsl-
an því kærkomin. „Ég lærði mikið
um starf tónlistarmanna og einnig
mikið um hvernig hljóðver virka,“
bætir Daníel við.
Fanný Gunnarsdóttir, náms-
og starfsráðgjafi skólans, leggur
mikla áherslu á að koma nemend-
um sínum í starfsfræðslu þangað
sem þau vilja helst komast. „Ég
reddaði öllu sem krakkarnir báðu
um. Þau vildu kynna sér störf tón-
listarmanna, fyrirsætna, flug-
manna, störf landhelgisgæslunnar
og fjölda annarra starfa,“ útskýrir
Fanný.
Hún segir þó að nemendafjöldi
hafi þau áhrif að hægt sé að verða
við bón krakkanna. „Það eru um
35 til 40 krakkar í tíunda bekk hjá
okkur en ef ég ætti að skipuleggja
fyrir stærri skóla þá gerði ég ekkert
annað hálft árið,“ segir Fanný.
Daníel var hæstánægður með
samveruna með tónlistarmönnun-
um og stefnir ótrauður á að starfa
sem tónlistarmaður. - glp
Kynnti sér starf tónlistarmannsins
Daníel Gunnarsson fór í starfsfræðslu til hljómsveitar og fékk að kynnast því
hvernig tónlistarmenn vinna. Hann langar að starfa við tónlist í framtíðinni.
SÆLL OG SÁTTUR Daníel Gunnars-
son fór í nýstárlega starfsfræðslu á
dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR LEÓ
„Við pabbi keyptum okkur saman
Canon 60D-myndavél og ég byrj-
aði fyrst á því að mynda. Síðan
kviknaði áhugi hjá mér fyrir
kvikmyndagerð. Ég er búinn að
æfa mig mikið og hef mjög gott
auga fyrir þessu,“ segir hinn 17
ára Davíð Goði Þorvarðarson
sem stundar nám í Verslunarskól-
anum. Hann setti nýverið mynd-
band inn á Youtube þar sem hann
sýnir hæfileika sína, bæði í kvik-
myndatöku og klippingu.
„Þetta sýnir örlítið minn stíl
en myndbandið getur táknað
hvað sem er fyrir hvern og einn.
Það getur táknað lífið, dauðann
og alla þá hringrás,“ segir Davíð
Goði.
„Síðasta sumar var ég að vinna
sem aðstoðarmaður á setti við bíó-
myndina Harry og Heimi því ég
vildi ólmur öðlast meiri reynslu
í bransanum. Einhvers staðar
verður maður að byrja,“ bætir
hann við. Eftir að hafa verið
aðstoðarmaður á setti, borið
fram kaffi, fært til muni og sett
leikmuni í kassa ákvað hann að
stofna sitt eigið fyrirtæki ásamt
vini sínum sem þeir kalla Dead-
flowers Studio. Þá er hægt að bóka
þá félaga í tökur í brúðkaup, gæsa-
og steggja partí eða önnur verkefni
sem mikilvægt er að eiga til minn-
ingar. Þrátt fyrir ungan aldur
stefnir Davíð Goði hátt og hyggst
fara í kvikmyndanám erlendis
eftir Verslunarskólann. - mm
Vildi ólmur öðlast meiri reynslu
Davíð Goði Þorvarðarson er ungur og efnilegur kvikmyndagerðamaður.
ÁHUGASAMUR Davíð Goði vill læra
meira. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það voru ekki til neinir skólar eða
kennarar þegar ég var að byrja,
allir sem voru að dansa voru í
raun bara að kenna hver öðrum,“
segir götudansarinn Natasha
Monay Royal en hún hefur verið að
dansa síðan hún var tíu ára gömul.
„Við flökkuðum á milli hverfanna
í New York að dansa við hipphopp
og búa til okkar eigin spor og kenna
þau síðan,“ segir Natasha sem
bætir því við að hún hafi lært mikið
af stóra bróður sínum sem dansaði
götudans ásamt svonefndu „crewi“.
„Hann varð oft mjög pirraður að
litla systir hans væri að elta hann
og fylgjast með,“ segir Natasha og
hlær. „Þeir æfðu sig alltaf í tómu
húsi sem var verið að byggja, settu
bara pappakassa á gólfið og döns-
uðu á því,“ segir dansarinn sem
ákvað einn daginn að hlaupa inn á
æfinguna og sýna þeim hvað hún
gat. „Ég var svo ung þá, þeim brá
því þeir höfðu ekki hugmynd um
að ég hafði verið að æfa,“ segir
dansarinn en í kjölfarið var henni
hleypt inn í „crewið“.
Natasha hefur búið á Íslandi í tæp
fimmtán ár en hún segir að þetta
hafi allt byrjað þegar hún var stödd í
partíi í Kolaportinu í kringum 1998.
„Þeir tæmdu Kolaportið því það var
einhver stór hipphopp plötu snúður að
spila um kvöldið. Síðan fannst mér
tónlistin svo góð að ég einhvern veg-
inn missti mig í dansinum,“ segir
Natasha og hlær en stuttu eftir að
hún hóf að rifja upp gamla takta
frá götunum í New York þá tók hún
eftir því að allir aðrir voru hættir að
dansa og voru bara að horfa á hana.
„Þau héldu örugglega að ég væri ein-
hver brjálæðingur, ég var farin að
snúa mér á hausnum og allt,“ segir
götudansarinn en eftir at vikið kom
maður til hennar og bauð henni starf
sem danskennari við dansskólann
sinn.
„Það var algjörlega engin menn-
ing í götudansinum áður en ég byrj-
aði að kenna hérna. Mér fannst það
mjög skrítið fyrst en ég byrjaði
með átta nemendur og síðan stækk-
aði hópurinn alltaf jafnt og þétt.
Þetta voru mest krakkar, ég kenndi
Brynju Péturs frá því að hún var
mjög ung, hún var mjög áhugasöm
um götudans. Ég er farin að lenda
mjög oft í því þegar ég er á gangi
niðri í bæ að ég er stoppuð af ein-
hverjum stelpum eða strákum sem
segja mér að ég hafi kennt þeim
götudans einhvern tíma,“ segir hún
og viðurkennir að sér þyki mjög
vænt um það.
„Það er mjög mikilvægt fyrir
mér að fólk sem hefur áhuga á að
læra götudans læri hann af alvöru.
Það eru svo margir dansskólar að
auglýsa að þeir kenni götudans en
það er síðan ekkert eins og hann
á að vera,“ segir Natasha sem
kennir í Kramhúsinu. „Ísland hefur
gríðar lega marga góða hipphopp og
house-plötusnúða, en Íslendingar
verða að læra að dansa við tónlist-
ina, ekki bara að standa og hlusta!“
Götudansinn er í blóðinu
Natasha Monay Royal hefur verið að kenna götudans á Íslandi síðan um
aldamótin en hún segir þetta allt hafa byrjað í partíi í Kolaportinu.
KENNIR AF ALVÖRU
Natasha Monay Royal
lærði sín fyrstu götu-
dansspor á götunum í
New York.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Það eru svo margir
dansskólar að auglýsa að
þeir kenni götudans en
það er síðan ekkert eins
og hann á að vera.
➜ Davíð setti nýverið mynd-
band inn á Youtube þar sem
hann sýnir hæfileika sína,
bæði í kvikmyndatöku og
klippingu.
#BYLGJANBYLGJAN989
HLUSTAÐU
HVAR SEM ER,
HVENÆR SEM ER
ÞORGEIR, KRISTÓFER OG BRAGI
OG MÁLEFNI LÍÐANDI STUNDAR
REYKJAVÍK
SÍÐDEGIS
ER Í LOFTINU
MILLI KL. 16:00 - 18:30VIRKA DAGA