Fréttablaðið - 04.06.2014, Síða 2

Fréttablaðið - 04.06.2014, Síða 2
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SPURNING DAGSINS FÓLK „Fólk labbar oft beint inn í garðinn án þess að spyrja um leyfi. Okkur er svo sem alveg sama,“ segir Anna Gunnarsdóttir þar sem hún situr á sólpallinum í fagurlega skreyttum garði sínum á Drangsnesi. Anna segir að óhægt sé um vik með hefðbundna garðrækt á Drangsnesi. Fyrir meira en tíu árum hafi hún og eiginmaður hennar, Birgir Guðmundson trillu sjómaður, byrjað að aka í garðinn möl sem þau handmok- uðu upp á pallbíl í fjörunni í þorp- inu. Síðan hafi bæst við netakúl- ur, bátaskrúfur og margt fleira spennandi. Margir staldra skiljanlega við heimili Önnu og Birgis á Holta- götu. Auk þess sem hjónin hafa sjálf verið ötul við að bæta við skrautmunum hefur Guðbjörn Gunnarsson, bróðir Önnu, lagt hönd á plóg. Guðbjörn vandi komur sína á árlega Bryggjuhátíð á Drangsnesi og skar í hvert skipti út nýjan mun úr rekaviði fyrir garðinn hjá Birgi og Önnu. Þar á meðal er bátslíkneski, maður, kona og köttur. „Svo erum við með fallega steina sem mamma og pabbi tíndu þegar við áttum heima á Fáskrúðsfirði. Eftir að þau fluttu til Reykjavíkur spurðu þau hvort við vildum steinana og þegar við fórum suður tókum við einn og einn kassa með heim. Þannig að við maðurinn minn höfum fengið að njóta þeirra,“ segir Anna, sem hefur augun opin fyrir nýjum hlutum í garðinn. „Ég reyni alltaf að finna eitt- hvað. Í fyrra fann ég gamlan línubala sem ég flísalagði og hef fyrir tjörn með öndum. Maðurinn minn hefur sagað út blóm og ég hef málað þau. Þetta er mikil sam- vinna hjá okkur,“ segir Anna. Lóðin hjá Önnu og Birgi er ekki afgirt og ramba margir forvitnir ferðalangar þangað inn og taka myndir. Í sólskálanum eru ýmsir munir frá ferðalögum þeirra hjóna. Anna segir að stundum hafi fólk verið komið alla leið að gler- inu og horft inn. „Það hefur jafn- vel skeð tvisvar eða þrisvar þegar hurðin á sólskálanum er opin að fólk hefur verið komið inn og spurt hvenær búðin opni,“ segir Anna og hlær innilega. gar@frettabladid.is Stundum liggur fólk á gluggum hjá Önnu Anna Gunnarsdóttir setur sinn svip á Drangsnes með fagurlega skreyttum garði við heimili sitt í þorpinu. Margir staldra við í brekkunni í Holtagötu til að virða munina fyrir sér. Anna segir suma leggjast á gluggana og jafnvel ganga í bæinn. ANNA GUNNARSDÓTTIR Sól skein á húsfreyjuna á Holtagötu 1 og skrautgarðinn hennar um síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR Svo erum við með fallega steina sem mamma og pabbi tíndu þegar við áttum heima á Fáskrúðs- firði. Anna Gunnarsdóttir, garðeigandi á Drangsnesi. REYKJAVÍK Sumarverkin eru hafin hjá starfsmönnum Reykjavíkur- borgar. Meðal annars er ungt fólk í sumarvinnu komið langt með að útbúa merki borgarinnar úr bláum og hvítum stjúpum í brekkunni við Sogamýri. „Þetta er svolítil kúnst að mæla þetta rétt út,“ segir Gunnsteinn Olgeirsson, hjá skrifstofu reksturs og umhirðu Reykjavíkurborgar. „Við reynum að hafa alltaf rétt hlutföll í þessu.“ Hann segir að merkið verði í vinnslu megnið af vikunni en að líklegast náist að klára þetta á föstudaginn kemur. - b á Starfsmenn Reykjavíkur standa nú í sumarverkunum: Borgarmerkið myndað úr blómum GRÆNIR FINGUR Blóm sem mynda merki borgarinnar hafa verið gróðursett á þessum stað að sumarlagi undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PÓLLAND, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti segir að allt að milljarði dala, jafnvirði ríflega 113 milljarða króna, verði varið til að styrkja herafla Bandaríkjanna í austanverðri Evrópu. Tilefnið er ástandið í Úkraínu, þar sem stjórn- arherinn hefur átt í hörðum átökum við uppreisn- armenn í austurhluta landsins. Rússar hafa talað máli uppreisnarmanna og gagnrýnt Úkraínu- stjórn fyrir að beita hervaldi gegn þeim. Obama skoraði jafnframt á aðildarríki NATO að verja meira fé til sameiginlegra varnarmála, þrátt fyrir efnahagssamdrátt undanfarinna ára. „Allir eru færir um að leggja sinn hlut af mörk- um, taka þátt í að sjá til þess að við höfum nægi- legt fé, skipulag, samhæfingu og þjálfun til að geta skilað árangri,“ sagði Obama í Póllandi í gær, þar sem hann hitti Bronislaw Komorowski forseta að máli. Obama hyggst síðan í dag hitta Petro Porosj- enkó, hinn nýkjörna forseta Úkraínu, og sagð- ist í gær vonast til þess að bæði Bandaríkin og Úkraína gætu verið í góðum samskiptum við Rússland. - gb Bandaríkjastjórn ætlar að senda fleiri hermenn og vopn til Evrópu: Obama leggur til milljarð dala BARACK OBAMA Bandaríkjaforseti í Póllandi, þar sem hann kynnti áformin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Er gott silfur gulli betra? „Já, allavega betra en hótel.“ Ylfa Dögg Árnadóttir og Eiríkur Kristinn Júlíusson hafa barist fyrir verndun 100 ára gamals silfurreynis sem stendur við Grettisgötu og á að fella ef áætlanir um hótelbyggingu ganga eftir. KJARAMÁL Félagsmenn Flug- freyjufélags Íslands (FFÍ) sam- þykktu í gær nýjan kjarasamn- ing við Icelandair Group hf. Samningurinn hefur þegar tekið gildi og mun gilda til 31. ágúst 2015. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá félaginu. Kjaradeilum félagsins við samninganefnd Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Icelandair, lauk þann 26. maí síðastliðinn þegar sátt náð- ist og samningur var gerður. Sá samningur hefur nú verið lagður fyrir félagsmenn og sam- þykktur. - sáp Flugfreyjur lýsa yfir sátt: FFÍ samþykkir kjarasamning AKUREYRI Fasteignafélagið Reitir hefur gert „grænan“ leigusamning við stofnanir á Akureyri í forn- frægu húsi í bænum. Eyþing, Vaðlaheiðargöng ehf., Ferðamálastofa og Markaðsstofa Norðurlands hafa flutt saman starfsstöðvar sínar í fyrrverandi höfuðstöðvar Kaupfélags Eyfirð- inga, KEA, á horni Hafnarstrætis og Kaupvangsstrætis. Græn leiga byggist á að leigusali og leigutaki leggi sig fram um vist- væna hætti, til dæmis flokkun sorps og stuðli að því að starfsmenn noti heilsusamlegan og umhverfisvænan samgöngumáta. - sa Umhverfið haft í forgrunni: Græn leiga í fornri KEA-höll FERÐAÞJÓNUSTA Landeigendur Reykjahlíðar hugðust hefja inn- heimtu náttúruverndargjalds við þrjá ferðamannastaði í Mývatns- sveit þann 1. júní. Engin gjaldtaka er þó hafin. Við hverina hefur fjöldi erlendra ferðamanna verið síðustu daga og hafa þeir komist gjaldfrjálst inn á svæðið. Engin merki eru um að gjaldtaka sé í bígerð fyrir utan í Helgavogi þar sem verið er að breyta dælustöð í svefnaðstöðu fyrir starfsfólk. - ebg Ferðamenn fara ókeypis inn: Engin gjaldtaka í Mývatnssveit DÓMSMÁL Salmann Tamimi, varaformaður Félags múslima á Íslandi, ætlar að kæra tvo menn fyrir morðhótanir sem hann fékk frá þeim í gegnum athugasemdir við frétt á Vísi. „Ég þekki ekki þessa menn og hef aldrei haft samskipti við þá,“ segir Salmann. „Konan mín, börn- in og barnabörnin hafa öll áhyggjur af þessu. Þetta er ekki grín og mér finnst að það eigi ekki að taka létti- lega á svona mönnum. Við viljum ekki fá svona í samfélagið okkar.“ Hótanirnar sem um ræðir birtust í athuga- semdakerfi Vísis við frétt um fyrir hugaða byggingu mosku í Sogamýri. Annar mann- anna , Sturla Þórðarson, skrif- ar að lífláta ætti Salmann „eins og svín“ og annar, Guðmundur Ingi Vésteinsson, að drepa eigi „þessa múslima“. Sá síðarnefndi hefur þó beðist afsökunar á ummælunum. Salmann segir umræðuna um byggingu moskunnar undanfarna daga „ógeðslega“ og „lágkúru- lega“. „Mér finnst sorglegast að einn af elstu stjórnmálaflokkum lands- ins gefi þessum fanatíkerum undir fótinn,“ segir hann. „Ég held við eigum að taka okkur saman um að útrýma öllum fordómum í samfélaginu.“ - hþ Salmann Tamimi segir umræðu um mosku í Reykjavík „lágkúrulega“: Kærir tvo fyrir morðhótanir SALMANN TAMIMI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.