Fréttablaðið - 04.06.2014, Síða 4

Fréttablaðið - 04.06.2014, Síða 4
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 30.338 vöruflutninga- og sendiferða- bílar voru skráðir á Íslandi í árslok 2012. Áratug fyrr voru þeir alls 20.278. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN AÐGANG AÐ TÓNLISTINNI Í ÖLLUM HERBERGJUM Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. UTANRÍKISMÁL Ísland leggur til fulltrúa í nýja stöðu innan Atlants- hafsbandalagsins (NATO) sem er hluti af auknum viðbúnaði banda- lagsins vegna innlimunar Rúss- lands á Krímskaga og stuðnings Rússlands við aðgerðir aðskilnað- arsinna í austurhluta Úkraínu. Mikil áhersla er lögð á það innan NATO að öll aðildarríkin 28 taki þátt í viðbrögðunum, sem sýna eiga samstöðu bandalagsins. Ekki er búið að tilkynna um það opin- berlega hvert hlutverk íslenska fulltrúans verður, en líklegt er að hann muni starfa í höfuðstöðvum NATO í Brussel. „Þetta er sannarlega einn fyrir alla og allir fyrir einn,“ sagði Anders Fogh Rasmussen, fram- kvæmdastjóri NATO, á fundi með blaðamönnum við upphaf tveggja daga fundar varnarmálaráðherra NATO, sem hófst í Brussel í gær. Aðildarríki NATO hafa þegar brugðist við aðgerðum Rússlands með því að stöðva alfarið hernað- arsamstarf við Rússland og auka viðbúnað í aðildarríkjum NATO sem eiga landamæri að Rússlandi, til dæmis Eystrasaltsríkjunum, Póllandi og Rúmeníu. Rasmussen lagði á það áherslu í gær að aðgerðir Rússlands væru ólöglegar og að aðildarríki NATO viðurkenndu ekki innlimun Krím- skaga. Hann sagði hernaðarað- gerðir ekki á dagskrá, heldur yrði reynt að beita diplómatískum leið- um. Rasmussen sagði Rússa verða að draga enn meira úr við- búnaði sínum á landamærum Úkraínu, hætta stuðningi við vopnuð „gengi“ í Austur-Úkraínu og standa við alþjóðlegar skuld- bindingar landsins ef finna ætti diplómatíska lausn á deilunni. Á fundi varnarmálaráðherrana, sem stóð fram á kvöld í gær og heldur áfram í dag, á meðal ann- ars að ræða langtímaviðbrögð við innlimun Krímskaga og aðgerð- um Rússlands í Austur-Úkraínu. Ekki er búist við því að teknar verði afdrifaríkar ákvarðanir um framtíðarsamskipti NATO og Rússlands eða tilfærslu á herafla NATO-ríkjanna. Þær ákvarðanir munu væntanlega bíða leiðtoga- fundar NATO-ríkjanna sem fara mun fram í Wales í Bretlandi í september. NATO þarf að bregðast við algerlega nýrri stöðu í öryggis- málum eftir aðgerðir Rússlands í Úkraínu. „Ógnum við öryggi okkar er að fjölga, og þær eru að verða óútreiknanlegri,“ segir Rasmus- sen. Það er ljóst að það kom NATO gersamlega í opna skjöldu þegar Rússland innlimaði Krímskaga með því að beita fyrir sig ómerkt- um hermönnum og rússneskumæl- andi íbúum Úkraínu. NATO hafði fram að því talið samstarfið við Rússland á réttri leið. Leiðtogafundur NATO-ríkjanna í september átti upphaflega að marka tímamót þar sem hernað- araðgerðum aðildarríkja NATO í Afganistan mun ljúka í lok árs eftir lengstu hernaðaraðgerðir bandalagsins frá upphafi. Nú er ljóst að ástandið í Úkraínu og við- brögðin við aðgerðum Rússlands verða þar efst á blaði. brjann@frettabladid.is Ísland mannar stöðu hjá NATO vegna Krímskaga Mikil áhersla er lögð á að öll aðildarríki NATO leggi í púkkið í viðbrögðum vegna aðgerða Rússlands í Úkraínu. Einn fyrir alla og allir fyrir einn, segir framkvæmdastjóri bandalagsins. Varnarmálaráðherrar ræða langtíma- áhrif krísunnar í Úkraínu. Rússar eru sagðir verða að draga enn meira úr viðbúnaði á landamærum Úkraínu. Brjánn Jónasson Skrifar frá Brussel brjann@frettabladid.is ÍSRAEL, AP Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segist hafa miklar áhyggjur af því að Bandaríkin hafi ákveðið að vera áfram í sambandi við Palestínu- stjórn. Ísraelar slitu öllum tengslum við Palestínumenn eftir að tvær helstu fylkingar þeirra, Fatah og Hamas, kynntu sameiginlega rík- isstjórn sína á mánudag. Ísraelar neita að ræða við Hamas-sam- tökin á þeim forsendum að þar séu hryðjuverkamenn á ferðinni. - gb Bandaríkin vilja viðræður: Netanjahú furðar sig Ógnum við öryggi okkar er að fjölga, og þær eru að verða óútreiknanlegri. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO. VIÐBRÖGÐ Leiðtogar aðildarríkja NATO munu ákveða langtímaviðbrögð banda- lagsins við aðgerðum Rússlands í Úkraínu sagði Anders Fogh Rasmussen, fram- kvæmdastjóri NATO, við upphaf fundar varnarmálaráðherra aðildarríkja NATO, sem hófst í Brussel í gær. Nordicphotos/AFP Vordís Eiríksdóttir veðurfréttamaður Veðurspá ÞAÐ ERU HLÝINDI í kortunum næstu daga og fram yfir helgi og má þá reikna með bjartviðri um land allt. Úrkoma S- og V-lands í dag en á morgun á NA- og A-landi og birtir þá til S- og V-lands. Vindur verður áfram fremur hægur og hiti 8-18 stig. 8° 5 m/s 11° 4 m/s 12° 6 m/s 10° 11 m/s Fremur hægur NA- og A-lægur vindur. Hæg breytileg eða NA- læg átt. Gildistími korta er um hádegi 25° 31° 17° 18° 17° 17° 20° 19° 19° 23° 15° 28° 28° 22° 24° 23° 20° 20° 10° 10 m/s 11° 8 m/s 10° 6 m/s 9° 7 m/s 12° 5 m/s 10° 4 m/s 7° 3 m/s 12° 14° 11° 8° 10° 9° 13° 12° 12° 11° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra átti í gær fund með Elzbieta Bienk- owska, aðstoðarforsætisráðherra Póllands, sem er einnig ráðherra innviða og þróunar. Á fundi ráðherranna í Varsjá var rætt um leiðir til að efla tví- hliða samvinnu ríkjanna fyrir tilstilli uppbyggingarsjóðs EES, einkum á sviði jarðhitanýting- ar, en einnig á sviði mennta- og menningarmála og rannsókna og vísinda. Þetta kom fram í til- kynningu frá utanríkisráðuneyt- inu. - fb Efla á tvíhliða samvinnu: Horft til jarð- hitanýtingar DÓMSTÓLAR Maður sem grunaður er um líkamsárás í Selbrekku síð- astliðinn föstudagmorgun, verður í gæsluvarðhaldi og einangrun til 6. júní næstkomandi. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðs- dóms Reykjaness þar að lútandi. Samkvæmt greinargerð barst lögreglu tilkynning klukkan níu um morguninn um mann sem lá í blóði sínu við Selbrekku. Mað- urinn var með mikla áverka og mat læknir á slysadeild þá svo að árásin hefði verið kröftug, eins og henni hefði verið ætlað að valda sem mestum skaða. Tvö vitni sáu tvo menn sem þóttu grunsamlegir í háttum. Lög- reglan leitar nú að hinum mannin- um. - skó Grunaður um líkamsárás: Í gæsluvarð- haldi til 6. júní LEIÐRÉTT Í frétt í gær um tvöfaldar vaktir hjúkr- unarfræðinga á Landspítalanum var missagt að hjúkrunarfræðingar tækju að meðaltali eina tvöfalda vakt á mán- uði. Hið rétta er að hjúkrunarfræðingar taka að meðaltali eina tvöfalda vakt á ári. KJARAMÁL Ekkert verður af fyr- irhuguðu verkfalli náttúrufræð- inga á Landspítalanum í dag eftir að Félagsdómur úrskurðaði seint í gær að boðun verkfallsins væri ólögmæt. „Vandamálið er ekki úr sögunni,“ segir Páll Halldórsson, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, en niðurstaðan þýðir að náttúru- fræðingar þurfa að kjósa á ný um hvort boða eigi verkfall. „Nú förum við yfir það. Við þurfum að skoða dóminn betur, hvað í honum felst og á hvað þeir hengja hatt sinn.“ Páll segir úrskurðinn helst byggja á að verkfallið var boðað til að fylgja eftir gerð stofnanasamnings. Það gangi ekki upp í augum Félags- dóms. Hvorki stjórnvöld né stjórn- endur Landspítalans hafni réttmæti launakröfu félagsins. „Það er frekar að spítalinn segir að ríkið eigi að leysa þetta,“ segir Páll. „Og ríkið segir að spítalinn eigi að leysa þetta.“ Páll segir að fundað verði snemma í dag með lögfræð- ingum um næstu skref í málinu. - bá Úrskurður Félagsdóms í gær kom í veg fyrir fyrirhugað verkfall FÍN: Vandamálið ekki úr sögunni AF LANDSPÍTALA Flestir náttúrufræð- ingar spítalans starfa í Blóðbankanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.