Fréttablaðið - 04.06.2014, Qupperneq 8
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
SKIPULAG Verði niðurstaðan sú að
silfurreynirinn á Grettisgötu 17,
sem talinn er vera frá árinu 1908,
verði að víkja vegna fyrirhugaðr-
ar hótelbyggingar milli Laugavegs
og Grettisgötu verður skoðað hvort
hægt verði að finna honum nýjan
stað, að sögn Þórólfs Jónssonar
garðyrkjustjóra.
„Það er tæknilega mögulegt að
flytja tréð. Svona stór tré og jafnvel
stærri tré hafa verið flutt en árang-
urinn er óviss. Fyrst á eftir verður
tréð druslulegt en það gæti hjarnað
við. Svo gæti það líka gerst að það
veslaðist upp á nokkrum árum,“
tekur Þórólfur fram.
Að sögn garðyrkjustjórans má
reikna með að rótarkerfi silfurreyn-
isins við Grettisgötu sé jafnstórt
krónu trésins. „Ef vel ætti að vera
þyrfti að ná jafnstóru rótarkerfi og
krónan teiknar sig. Við vitum hins
vegar ekki hvert ræturnar hafa
farið. Sennilega eru þær í framlóð-
inni eða jafnvel undir húsinu sem
það stendur við hliðina á. Langbest
væri þó að tréð fengi að standa þar
sem það er. Þar mun því örugglega
farnast best.“
Þórólfur segir borgaryfirvöld
og byggjendur hótels á horni Aðal-
strætis og Túngötu hafa lagt mikið
á sig til að vernda gamalt tré inni
á lóð hótelsins. „Þar er álmur frá
1902 á bak við hótelið sem sést
þegar gengið er upp Túngötu. Það
tókst ágætlega að halda því tré þótt
þrengt hafi verið að því.“
Flottasta tréð sem borgin á er
silfurreynirinn í Fógetagarðinum
við Aðalstræti, að því er Þórólfur
greinir frá. „Silfurreynirinn þar er
líklega frá 1886. Þar eru líka flottir,
gamlir hlynir.“
Hlynurinn á horni Vonarstrætis
og Suðurgötu er frá 1917. „Við eigum
hann ekki frekar en álminn í Aðal-
stræti. Þessi hlynur er á lóð Happ-
drættis Háskóla Íslands en í hugum
margra er hann aðaltréð í borginni,“
segir Þórólfur.
Elstu trén í Hólavallagarði,
kirkjugarðinum við Suðurgötu, eru
frá því upp úr aldamótunum 1900.
Almenn gróðursetning varð þar
ekki fyrr en á árunum milli heims-
styrjalda, að því er segir á vef
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma.
Þórólfur bendir á að hægt sé að
reikna aldur trjáa út frá aldri byggð-
arinnar. „Ef trén eru stór og gömul
eru þau frá því skömmu eftir að húsin
voru byggð. Margir dást að gömlum
trjám sem eru víða á einkalóðum við
Laufásveg. Í Norðurmýri eru líka
gömul, flott tré.“ ibs@frettabladid.is
Hægt að flytja tréð
en árangur óviss
Garðyrkjustjóri segir tæknilega hægt að flytja silfurreyninn við Grettisgötu 17
sem fyrirhugað er að víki vegna hótelbyggingar. Best væri að tréð fengi að standa
þar sem það er. Álmi við Aðalstræti var bjargað þegar byggt var hótel þar.
Á AUSTURVELLI Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri segir að á Austurvelli séu nokkrir
gráelrar frá því um 1960. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skoðaðu úrvalið á Bilaland.is
KOMDU Í
HEIMSÓKN OG
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
TOYOTA LAND CRUISER 150
Nýskr. 05/12, ekinn 36 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 8.980 þús.
Rnr. 130829.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
LAND ROVER EVOQUE
Nýskr. 03/12, ekinn 16 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 131092
NISSAN MICRA VISIA
Nýskr. 06/13, ekinn 27 þús km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.990 þús.
Rnr. 281483
RENAULT MEGANE BERLINE
Nýskr. 05/12, ekinn 71 þús km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.390 þús.
Rnr. 320038.
NISSAN QASHQAI+2 SE - 7 sæta
Nýskr. 04/12, ekinn 52 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 4.290 þús.
Rnr. 281682.
HONDA CIVIC SPORT
Nýskr. 07/12, ekinn 36 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.790 þús.
Rnr. 281734.
CHEVROLET CAPTIVA
Nýskr. 09/11, ekinn 40 þús. km.
dísil, sjálfskiptur. Verð 5.390 þús.
TILBOÐ kr. 4.590 þús.
Rnr. 151751.
Frábært verð
9.980 þús.
TILBOÐ
Ekinn aðeins
16 þús. km.
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR GÖMUL TRÉ Í MIÐBORGINNI SEM HAFA VERIÐ VERNDUÐ:
Tj
ar
na
rg
at
a
Vonarstræti
Kirkjustræti
Tjönin
Ráðhúsið
Kirkjugarður
Su
ðu
rg
at
a
Túngata
Að
als
træ
ti
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/VILH
ELM
SVEITARSTJÓRNARMÁL Nýkjörn-
ir borgarfulltrúar Framsóknar-
flokksins, Sveinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir og Guðfinna Jóhanna
Guðmundsdóttir, hafa verið boðað-
ar á eins konar nýliðafund í ráðhúsi
Reykjavíkur í næstu viku ásamt
öðru nýju borgarstjórnarfólki og
varamönnum. Þar verður starf-
semin kynnt fyrir þeim.
Framsókn hefur ekki verið í borg-
arstjórn síðustu fjögur ár og hefur
því ekki átt fulltrúa í nefndum og
ráðum sem manna þarf á næstunni.
„Þó svo að við höfum ekki verið í
borgarstjórn áður þá er þetta ekki
alveg nýtt fyrir okkur. Við erum
vanar nefndarstörfum í gegnum
vinnu okkar sem lögmenn,“ segir
Guðfinna Jóhanna.
Þá eru Píratar í fyrsta sinn í borg-
arstjórn. „Maður þarf alveg á þessu
að halda,“ segir Þórgnýr Thorodd-
sen, sem var í öðru sæti á lista
Pírata í Reykjavík.
Starfið í nefndunum og ráðun-
um leggst vel í hann. „Þetta verð-
ur ótrúlega spennandi að fá að taka
þátt í þessu starfi með þessu fína
fólki. Við erum ofsalega spennt og
gríðarlega jákvæð fyrir þessu.“ - fb
GUÐFINNA JÓH.
GUÐMUNDSD.
ÞÓRGNÝR
THORODDSEN
Allir nýir borgarfulltrúar hafa verið boðaðir á kynningarfundi í næstu viku:
Sækja nýliðafundi í ráðhúsinu
ELSTU TRÉN FRÁ ÞVÍ STUTTU EFTIR
ALDAMÓTIN 1900. Hólavallagarður.
HLYNUR FRÁ 1917 Horn Vonarstrætis
og Suðurgötu.
ÁLMURINN ER FRÁ 1902.
Horn Túngötu og
Aðalstrætis.
FÓGETAGARÐURINN Silfurreynir frá
1886 auk gamalla hlyna.
SILFURREYNIR FRÁ 1908 ER EKKI VERND-
AÐUR. Grettisgata 17.