Fréttablaðið - 04.06.2014, Blaðsíða 16
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Til hægri og vinstri
Björt framtíð getur unnið bæði til
hægri og vinstri. Framsóknarflokkurinn
hefur þar með fengið skæðan keppi-
naut. Framsóknarmenn hafa lengst af
haft miklu meiri áhrif í íslenskri pólitík
en fylgi þeirra hefur gefið til kynna.
Þrátt fyrir að Björt framtíð sé í oddaað-
stöðu í þremur stórum bæjarfélögum
um myndun meirihluta þá hafa
þeir hvergi krafist þess að fá æðstu
embætti, það er borgarstjóra- eða
bæjarstjóraembætti. Björt fram-
tíð leggur hins vegar áherslu
á að fá sem flesta til að taka
þátt í samstarfi, til að mynda í
Hafnarfirði þar sem þeir hafa
rætt við alla flokka um sam-
starf á breiðum grundvelli.
Guðlaug Kristjánsdóttir,
oddviti Bjartrar framtíðar
í Hafnarfirði, segir að ef þetta takist
sé verið að nýta krafta allra til góðra
verka í bæjarfélaginu. Mörgum finnst
hins vegar pólitík þar sem allir eru vinir
fremur bragðdauf pólitík.
Sjaldan séð annað eins kjaftæði
Dagur B. Eggertsson benti á það um
helgina að Framsóknarflokkurinn væri
ekki stjórntækur, hvorki í borgarstjórn
né á landsvísu, vegna afstöðu sinnar
til moskumála og innflytjenda.
Dagur sagði að flokkurinn yrði
að skýra stefnu sína í málinu.
Fleiri hafa tekið undir það,
þeirra á meðal er Áslaug
Friðriksdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálf-
stæðismanna,
í fréttum
Stöðvar 2.
Jóhannes Þór Skúlason fer hamförum á
fésbókarfærslu þar sem hann gagnrýnir
fréttaflutninginn harðlega og segir að
það sé af veikum mætti reynt að krafsa
það út úr hinum og þessum sjálf-
stæðismönnum að Framsókn í heild
sé orðinn slíkur öfgaflokkur að það sé
ekki hægt að eiga við hann samstarf.
Sjaldan hefur Jóhannes séð annað eins
kjaftæði. Hann segir að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, hafi tjáð
sig skýrt um málið, Sigmundur
geri engar athugasemdir við að
múslimar byggi mosku. Fram-
sóknarflokkurinn er sennilega
misskildasti flokkur á Íslandi. Það
gæti verið vegna þess að
flokknum er ekki mjög
lagið að tala skýrt og
skilmerkilega.
johanna@frettabladid.is
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
F
orysta Framsóknarflokksins barmar sér enn yfir
að vera krafin um skýra afstöðu til kosningaútspils
frambjóðenda flokksins í borgarstjórn; að krækja sér í
atkvæði með því að höfða til andúðar á útlendingum og
fólki sem er annarrar trúar en meirihluti Íslendinga.
Skoðum fyrst hvað Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir sagði
fyrir kosningar. Í fyrsta viðtalinu sem tekið var við hana eftir
að hún sagðist á Facebook hafa fengið fyrirspurnir um afstöðu
sína til mosku í Reykjavík, sagði hún: „Á meðan við erum með
þjóðkirkju eigum við ekki að úthluta lóðum undir hús eins og
moskur eða kirkjur fyrir grísku [svo] rétttrúnaðarkirkjuna.“
Sveinbjörg sneri þessu síðar upp í að hún vildi íbúakosningu
um hvort úthluta ætti lóð fyrir
mosku. Það er reyndar hug-
mynd frá Danska Þjóðarflokkn-
um, hægrilýðskrumsflokki sem
gerði slíkar atkvæðagreiðslur
að kosningamáli fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar 2009, af
því að moskur væru griðastaður
trúarofstækismanna og stuðningsmanna hryðjuverka. Þjóðar-
flokkurinn blés nýju lífi í þetta stefnumál sitt í febrúar síðast-
liðnum vegna deilna um mosku í Haderslev.
Næst reyndi oddvitinn að halda því fram að þetta snerist bara
um lóðamál í Reykjavík, en þá hafði fræjum útlendingaandúðar-
innar verið sáð og fylgið, sem vissulega er að sækja á þeim
miðum, byrjað að skila sér. Í sjónvarpsumræðum kvöldið fyrir
kosningar bætti hún rækilega í og spurði hvort við vildum búa í
samfélagi þar sem fólk væri þvingað í hjónaband.
Skoðum næst hvað Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, sagði um málflutning oddvitans fyrir
kosningar. Lengst af ekki neitt, enda gengu atkvæðaveiðarnar
augljóslega vel. Svo kom loks pistill frá formanninum, þar sem
hann tók enga efnislega afstöðu, heldur bætti enn í efnismiklar
kvartanir sínar yfir því að flokkurinn hans væri gagnrýndur.
Skoðum þá hvað Sigmundur hefur sagt eftir kosningarnar,
eftir að metfjöldi atkvæða Framsóknar í Reykjavík í fjörutíu ár
var kominn í hús. Jú, hann hefur sagt að múslimar megi alveg
byggja sér mosku, ef hún falli bara að umhverfinu. Ekki samt
á lóðinni sem Reykjavíkurborg hefur úthlutað henni, hún eigi
áfram að vera grænt svæði. En skipulagsferlinu er lokið, engar
athugasemdir bárust og borginni ber bæði að lögum og mann-
réttindasáttmálum að útvega múslimum lóð fyrir helgidóm sinn.
Svo hefur Sigmundur líka sagt að Framsókn geri ekki upp á
milli trúarbragða og starfi á grundvelli jafnréttis. Um atkvæða-
veiðar flokksins í krafti fordóma og útlendingaandúðar hefur
hann hins vegar ekki sagt nokkurn skapaðan hlut nema að gagn-
rýnin misbjóði honum. Hann vill ekki styggja nýja fylgið.
Þetta er prinsipplaus og lágkúruleg pólitík, sem skortir alla
reisn. Það er eðlilegt að fulltrúar samstarfsflokks framsóknar-
manna í ríkisstjórn geri kröfu um að flokksforystan tali skýrar,
eins og Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, gerði til dæmis í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld.
Allir kjósendur eiga raunar kröfu á að Framsóknarflokkurinn
svari því skýrt hvort taktík flokksins í borginni hafi verið for-
ystu flokksins að skapi og hvort Framsókn hyggist áfram spila
inn á andúð á minnihlutahópum í leit sinni að nýju fylgi.
Forysta Framsóknarflokksins þarf að tala skýrar:
Lágkúrupólitík
Auðvitað urðu það mikil vonbrigði þegar
ljóst varð á kosninganótt að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi ekki halda fimmta
manninum í borginni. Það er sárt að sjá að
flokkurinn skuli hafa misst yfirburðastöðu
sína, UM SINN. Stóru fréttirnar voru hins
vegar þær að meirihluti Besta flokksins/
Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinn-
ar féll.
Vonandi verður þessi niðurstaða til þess
að sjálfstæðismenn þétti raðirnar í Reykja-
vík. Grundvallaratriði er að bæði konur og
karlar skipi aðalsæti listans. Halldór Hall-
dórsson oddviti hefur allt til að bera sem
prýða má góðan stjórnmálamann og mann-
eskju og hann hefur ekki sagt sín lokaorð
í íslenskri pólitík, að mínum dómi. En list-
inn verður að endurspegla samfélagið.
Sjálfstæðisflokkinn skoraði hátt víða um
land, sem er virkilega fagnaðarefni. Það
er afar glæsilegt að Sjálfstæðisflokkur-
inn skuli fá hreinan meirihluta í stórum
bæjarfélögum, eins og Mosfellsbæ, Vest-
mannaeyjum, Garðabæ, Seltjarnarnesi,
Árborg, Hveragerði og Akranesi. Mjög
góður árangur náðist einnig í Hafnar-
firði, Kópavogi og á Akureyri. Konur eru
oddvitar framboðanna á Seltjarnarnesi,
í Hafnarfirði og í Hveragerði: Ásgerður
Halldórsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir og
Aldís Hafsteinsdóttir.
Hvað umræðuna um mosku og fleira hér
heima áhrærir þá hlustaði ég á Michael
Bloomberg, fyrrverandi borgarstjóra New
York-borgar, lýsa því í frábærri ræðu á
dögunum hvers vegna New York-borg
ákvað að leyfa byggingu á bænahúsi mús-
lima skammt frá þeim stað sem tvíbura-
turnarnir stóðu. Rétturinn til trúfrelsis,
tjáningarfrelsis og rétturinn til að hafa
skoðanir almennt, án þess að aðrir geri
lítið úr þeim eða reyni að þagga þær niður,
er ofar öðru.
Bloomberg lýsti því einnig í ræðunni
hvernig virtir háskólar í Bandaríkjun-
um hefðu verið staðnir að því að ritskoða
hverjir fengju að halda ræður við útskrift-
ir vegna þess að skoðanir viðkomandi féllu
ekki að/eða voru ekki þóknanlegar „vinstri
sinnuðum“ skoðunum háskólasamfélags-
ins. Menn eigi að bera fulla virðingu fyrir
skoðunum hver annars, hlusta á önnur
sjónarmið og temja sér víðsýni. Eða eins
og í málshættinum segir: Háð er heimskra
gaman.
Háð er heimskra gaman
STJÓRNMÁL
Elín Hirst
alþingismaður
➜ Menn eiga að bera fulla virðingu
fyrir skoðunum hver annars, hlusta
á önnur sjónarmið og temja sér
víðsýni.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU