Fréttablaðið - 04.06.2014, Page 34
| 8 4. júní 2014 | miðvikudagur
„Það sem er á borðinu hjá mér
núna er að fylgja eftir þessari
viljayfi rlýsingu um stofnun rann-
sóknarseturs í áli og efnisvísind-
um sem skrifað var undir á árs-
fundi Samáls fyrir stuttu síðan
af iðnaðarráðherra og fulltrúum
Háskólans í Reykjavík, Háskóla
Íslands, Nýsköpunarmiðstöðvar
og Samáls,“ segir Pétur Blöndal,
framkvæmdastjóri Samáls (Sam-
taka álframleiðenda).
Pétur var ráðinn framkvæmda-
stjóri samtakanna í júlí í fyrra.
Hann hafði þá gegnt starfi rit-
stjórnarfulltrúa á Morgunblaðinu
frá 2006 og stýrt menningardeild
blaðsins, auk þess að ritstýra
Sunnudagsmogganum. Pétur byrj-
aði í blaðamennsku 1994 og vann
við fagið til ársins 2000 þegar
hann kláraði BA-nám í heimspeki
í Háskóla Íslands. Þá hafði hann
farið í skiptinám til Berlínar og
lokið áföngum í þremur stærstu
háskólum borgarinnar.
„Þegar ég kom heim hóf ég
störf á auglýsingastofunni Gott
fólk þar sem ég stýrði almanna-
tengsladeild fyrirtækisins í tvö ár.
Eftir það fór ég aftur á Moggann
og kláraði MBA-nám við Háskól-
ann í Reykjavík samhliða því,“
segir Pétur.
Hann starfaði sem forstöðumað-
ur fjárfestatengsla og kynningar-
mála hjá Íslandsbanka frá 2004-
2005.
„Ég hætti þar til að klára Sköp-
unarsögur, viðtalsbók við rithöf-
unda um sköpunarferlið og eftir
það lá leiðin aftur á Moggann.“
Pétur er einnig stjórnarformað-
ur Stofnunar um fjármálalæsi og í
stjórn Forlagsins. Hann segist vera
með ólæknandi bakteríu sem lýsi
sér þannig að hann þurfi að skrifa
um allt sem hendir hann í lífi nu.
„Þannig að ég er með þrjár til
fjórar bækur sem ég sinni í hjá-
verkum. Eitthvað er á vísnasviði,
ein er um ferðalög og svo er eitt-
hvað um þjóðmál. Þannig að þetta
eru ólíkar bækur sem ég er að
skrifa,“ segir Pétur.
Hann er giftur Önnu Sigríði
Arnardóttur lögfræðingi. Þau eiga
tvö börn, Ólöfu Kristrúnu, 12 ára,
og Örn Óskar, sem er níu ára.
„Ég reyni að verja miklum tíma
með fjölskyldunni og um leið að
vera duglegur að hreyfa mig.
Krakkarnir voru að komast inn í
Nesklúbbinn í golfi og ég og Anna
Sigga erum sömuleiðis í klúbbn-
um. Svo voru tengdaforeldrarn-
ir að komast inn líka þannig að
ef þetta verður ekki golfsumarið
mikla þá held ég að ég selji kylf-
urnar mínar.“
Pétur fer á hverju ári í um
þriggja vikna ferðalag með fjöl-
skyldunni um landið og hann er
augljóslega spenntur fyrir fríinu.
„Ég hlakka mikið til þess augna-
bliks þegar við keyrum út úr
bænum um miðjan júlí og snúum
ekki aftur í fl óttamannabúðirnar í
Reykjavík fyrr en í byrjun ágúst.
Þetta er sá tími þegar maður hleð-
ur batteríin fyrir skammdegið og
álagið sem fylgir íslenskum vetri.“
Spenntur fyrir golfsumrinu mikla
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, lærði meðal annars heimspeki og vann sem ritstjórnarfulltrúi á Morg-
unblaðinu. Hann er með þrjár til fjórar bækur í smíðum og hlakkar til þriggja vikna ferðalags með fjölskyldunni.
STÝRIR SAMÁLI Pétur tók við sem framkvæmdastjóri samtakanna af Þorsteini Víglundssyni,
núverandi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Markaskorari og stórskáld
„Pétur er stórkostlegur! Alltaf í góðu skapi, stór-
skáld, einstakur vinur og gott að leita til hans. Þó er
ómögulegt að vera farþegi með honum í bíl, þar sem
hann veit aldrei hvaðan hann kemur eða hvert hann er
að fara. En á sama tíma er Pétur samt ótrúlega næmur
á umhverfi sitt og tekst á einhvern stórundarlegan
hátt að vera alltaf réttur maður á réttum stað á réttum
tíma. Það er einstaklega falleg lógík og mennsk í hinni litríku óreiðu í
kringum Pétur. Eitt það allra besta við Pétur er samt hversu vel giftur
hann er.“
Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi.
„Við Pétur hittumst fyrst sumarið þegar við vorum bæði
sjö ára og hann flutti í húsið mitt frá Akureyri. Urðum
strax bestu vinir og lékum okkur saman alla daga næstu
ár. Þá var ég betri en hann í fótbolta en nú malar hann
mig, enda mikill markaskorari með Gróttu Old Boys.
Pétur spilar nýja sóknartaktík fyrir Samál með myndun
álklasans sem hefur tekist stórvel. Hann er flottur
fagmaður í öllu sem hann snertir og næmur fyrir öllu athafnalífi í landinu,
jafnt iðnaði sem ljóðlist. Ótrúlega gaman að vera nú aftur saman í húsi.
Pétur er bara frábær.“
Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Það hefur verið nefnt að Gló eigi möguleika á
alþjóðlegum vexti. Er Gló að fara í útrás?
„Þetta eru Evrópa og Bandaríkin. Ég fer til Kaliforníu
nokkrum sinnum á ári og það er svo merkilegt, eins og
það er mikið af góðum stöðum þar, þá er Gló og sú hug-
myndafræði sem staðurinn byggist á ekki mikið til staðar,
aðeins svipað. (...) Eftir að við opnuðum Gló á Laugavegi
byrjuðum við að fá svo ofboðslega flottar umsagnir á
TripAdvisor. Síðan fáum við mjög mikið af tölvupósti þar
sem við erum beðin um að opna Gló hér og þar.“
SVIPMYND
HARALDUR GUÐMUNDSSON
haraldur@frettabladid.is
Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@365.is
Viðtalið við Sólveig Eiríksdóttir
er hægt að sjá í þættinum
Klinkinu á www.visir.is.
SÓLVEIG EIRÍKSDÓTTIR
Viðbrögð á TripAdvisor
hreyfðu við eigendum Gló
Sólveig Eiríksdóttir, oft nefnd
Solla á Grænum kosti eða Solla á
Gló, hefur óvenjulegan bakgrunn
því hún er lærður kennari og
textílhönnuður sem hellti sér út
í veitingabransann af krafti árið
1994. Solla var valin besti hrá-
fæðiskokkur í heimi árin 2011 og
2012 og núna eru þrír veitinga-
staðir reknir undir merki Gló.
Í lok apríl var tilkynnt um að
Birgir Þór Bieltdvedt athafna-
maður og eiginkona hans hefðu
keypt helmingshlut í Gló en þess
var getið að Gló ætti möguleika
á alþjóðlegum vexti vegna sér-
kenna sinna. Þá njóta vörur
undir merkinu Himneskt mikilla
vinsælda. Solla er gestur okkar í
nýjasta Klinkinu.
Birgir Þór Bieltvedt
hefur séð tækifæri
í alþjóðlegum vexti
Gló?
„Það sem okkur líkaði
við hann er að hann
er erlendis. Ég held að
hann sé að setja upp
Domino‘s í Noregi.
Þar sem hann fer, eftir
að hafa haft áhuga á
þessum mat og verið
fastagestur hjá okkur
á Íslandi, þá sér hann
tækifæri á þeim vett-
vangi þar sem hann er
að setja upp aðra staði.“
VIÐ FÁUM MIKLA SVÖRUM
FRÁ VIÐSKIPTAVINUM. EINS OG
ÞEGAR BIRGIR ÞÓR BIELTVEDT
BANKAÐI Á DYRNAR.
Velta Himneskt ehf. í ársreikningum fyrirtækisins endurspeglar
engan veginn framboðið af þessum vörum í búðum Haga.
„Himneskt er bara mitt fyrirtæki. Ég fæ bara ákveðna upphæð á mánuði við
vinnu mína í vörumerkinu. Ég þarf að velja vörurnar.“
Hversu mikils virði er Himneskt
vörumerkið, sem almenningur
tengir við þig?
„Í ofboðslega mikilli einlægni, ég hef
passað mig að vera eins hrein og
heiðarleg og mögulegt er. Ég er með
mína hugsjón og ég reyni að vera henni
eins trú og ég get. Ég lifi þennan lífsstíl.
Ég get sagt, þetta er mín reynsla.“
Rekstrarvörur
- vinna með þér