Fréttablaðið - 04.06.2014, Qupperneq 44
Eftir mánuð mun ég gefa út ljóða-
plötu með ljóðum sem ég samdi
í vinnustofudvöl á Seyðisfirði í
fyrra og samhliða vinnslu plöt-
unnar gerði ég þessi vídeó,“ segir
Ásdís Sif Gunnarsdóttir spurð
hvaða verk það séu sem hún
mun sýna á kaffistofu Listasafns
Íslands á morgun. „Verkið heitir
Surrounded by the purest Blue, I
welcome you og samanstendur af
þremur vídeóum sem eru varía-
sjónir af sama verkinu. Tvö þeirra
verða sýnd í sjónvörpum með
heyrnartólum þar sem fólk getur
hlustað á ljóðin og svo er eitt vídeó
með engu hljóði.“
Fyrsta fimmtudag í hverjum
mánuði er opið lengur í Listasafni
Íslands og einhver listamaður eða
hópur listamanna sýna vídeóverk
í samstarfi við vídeólistahátíðina
700IS Hreindýraland og er Ásdís
Sif fimmti listamaðurinn sem
tekur þátt í verkefninu.
Hún segist hafa skrifað ljóð frá
því hún var unglingur en aldrei
gefið neitt út. Hvers vegna valdi
hún þá leið að gefa ljóðin út á plötu
en ekki í hefðbundinni ljóðabók?
„Ég hef alltaf notað texta mikið í
performönsum og vídeóverkum en
þetta er í fyrsta sinn sem ég gef
út ljóð,“ segir hún. „Ég hef alltaf
flutt textann minn sjálf sem per-
formans og það er réttara fyrir
verkið að það sé lesið upp en prent-
að á bók. Þetta eru ljóð sem þarf
að flytja, ekki bara lesa, og svo á
ég sjálf auðveldara með að hlusta
á ljóð en lesa þau og geri ráð fyrir
að hið sama gildi um marga aðra.“
Ásdís hefur fleiri járn í eldin-
um því fyrir skemmstu tók hún
þátt í sýningunni Hors pistes í
Centre Pompidou í París. „Þetta
er „live performance“ bíó-
myndahátíð þar sem listamenn
eru fengnir til að setja á svið
vídeó verk og performansa. Sýn-
ingin mín var í samstarfi við
RIFF þar sem ég sýndi líka í
haust. Í Pompidou sýndi ég bæði
eldri vídeó, sem voru þýdd yfir á
frönsku, og þennan performans
þar sem ég notaði heilmikið af
ljóðunum sem verða á plötunni,
þannig að það var líka þetta verk
bara í öðru formi.“
Sýningin í kaffistofu Listasafns
Íslands hefst klukkan 17 á morg-
un og stendur til 30. júní.
fridrikab@frettabladid.is
Ljóðaplata, vídeó-
sýning og gjörningur
Ásdís Sif Gunnarsdóttir opnar á morgun sýningu á þremur vídeóverkum í Lista-
safni Íslands. Hún er með ljóðaplötu í smíðum og vídeóin eru varíasjónir við
verk sem einnig var grunnurinn í nýlegri sýningu hennar í Centre Pompidou.
FJÖLHÆF LISTAKONA Úr gjörningi Ásdísar í Centre Pompidou, sem hún segir í grunninn byggja á sama verki og hún sýnir nú.
Ég hef alltaf
notað texta mikið í
performönsum og
vídeóverkum en þetta
er í fyrsta sinn sem ég
gef út ljóð.
MENNING
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR
Það er alltaf gott að koma á Bifröst. Öll aðstaða til náms
er til fyrirmyndar og stuðlar að góðum árangri í námi.
Íbúðarhúsnæði á staðnum er hagkvæmt og fjölbreytt og
hentar jafnt einstaklingum sem fjölskyldum. Á Bifröst er
stutt í óbeislaða náttúru og þar eignast fólk vini fyrir lífstíð.
Nánari upplýsingar á nam.bifrost.is
Öflugur og nútímalegur
háskóli í Borgarfirði
Vandað nám
í heillandi
umhverfi
Kynntu þér nám í Háskólagátt og grunnnámi við
Háskólann á Bifröst.
Sýning á verki Borghildar Ósk-
arsdóttur myndlistarkonu, Þráð-
ur á landi, verður opnuð í Artóteki
Borgarbókasafnsins klukkan 17 á
morgun.
Verkið á sýningunni er um fimm
kynslóðir sömu ættar, sem bjó
á sjö býlum á Rangárvöllum og í
Landsveit frá 1760 til 1941. Þetta
fólk er löngu horfið en víða eru
ummerki um búsetu þeirra, hlaðn-
ir garðar og húsveggir og grónar
tóftir. Sums staðar eru ummerkin
ógreinileg, jafnvel horfin undir
gróður og sand. Fólkið er minning
og býlin eru grónar tóftir. Ein tóft-
in er á Reynifelli á Rangárvöllum.
Þar byrjar sagan og þaðan liggur
söguþráðurinn yfir í Landsveit, að
sex stöðum: Mörk, Gamla-Klofa,
Stóra-Klofa, Gamla-Skarðsseli,
Skarðsseli við Þjórsá og að lokum
að Skarfanesi.
Sýningin er tvískipt og verður
síðari hluti hennar settur upp við
sögustaðina á Rangárvöllum og í
Landsveit seinna í júní.
Sýningin í Borgarbókasafninu
er á 1. hæð í Grófarhúsi. Á opnun-
inni mun Hlynur Helgason, lekt-
or í listfræði við Háskóla Íslands,
segja frá sýningunni og list Borg-
hildar. Sýningin er á dagskrá
Listahátíðar í Reykjavík.
Fimm kynslóðir á sjö býlum
Sýning Borghildar Óskarsdóttur, Þráður á landi, rekur ættarsögu frá 1760 til 1941.
BORGHILDUR ÓSKARSDÓTTIR
Þráður á landi segir sögu fimm kynslóða
sem bjuggu á sjö býlum á Rangárvöllum
og í Landsveit.