Fréttablaðið - 04.06.2014, Page 46

Fréttablaðið - 04.06.2014, Page 46
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26 Rihanna tískufyrirmynd ársins Hin árlegu bandarísku fatahönnunarverðlaun, CFDA, voru veitt á mánudagskvöldið í Alice Tully Hall í Lincoln Center í New York. Fata- valið var í takt við tilefnið þar sem stjörnurnar gengu rauða dregilinn. Tvíburasysturnar smekklegu Mary-Kate og Ashley Olsen fengu verðlaun fyrir fylgihlutamerki ársins fyrir merki sitt The Row og Rihanna var valin tískufyrirmynd ársins. Hún gerði sér lítið fyrir og klæddist demantakjól sem skildi lítið eft ir fyrir ímyndunarafl ið. SUMARLEG Heidi Klum mætti í kjól frá DKNY. SMART Blake Lively í stuttum kjól frá Michael Kors. DRAPPAÐ Keri Russ- ell í kjól frá Rosie Assoulin. DRAMA- TÍSKT Coco Rocha í Christian Siriano. ÁHUGAVERT Leikkonan Lupita Nyongo í umdeildum klæðnaði frá Suno. GEGNSÆTT Rihanna í kjól frá Adam Selman sem vakti heldur betur athygli. ÖXLIN BER Rachel Zoe í kjól sem hún hann- aði sjálf. SIGURVEG- ARAR Ashley og Mary-Kate Olsen í eigin hönnun. GLITRANDI Solange Knowl- es í einföldum en fallegum kjól frá Calvin Klein. NO RD IC PH O TO S/ G ET TY „Ég mun nota styrkinn í það að þróa línuna enn lengra. Ég hef verið að vinna með laxaroð og þeirri vinnu hefur verið mjög vel tekið. Við munum því halda áfram með þessa vinnu og ætlum að setja enn meiri fókus á íslensk og vistvæn hráefni,“ segir fatahönnuðurinn Bóas Krist- jánsson sem hlaut hæstu úthlut- un, 2,5 milljónir, úr hönnunarsjóði í gær. Bóas hannaði tvær línur í fyrra undir merkinu KARBON by Bóas Kristjánsson og vakti merkið þó nokkra athygli erlendis. „Ég hef mikið verið að vinna með vistvæna textíla. Það var því ákveðin tilraun að sjá hvernig þetta myndi leggjast í hátískuheiminn, þar sem búðirn- ar eru allar hálfgerð listagallerí og vörurnar mjög dýrar,“ segir Bóas og bendir á að hann sé sá eini í heim- inum sem notar þessi hráefni í hönn- un á fatnaði. „Það er alltaf áhætta að mæta með eitthvað sem eng- inn hefur áður séð. Laxaroð hefur kannski verið notað í töskur og skó en nú býð ég fólki að klæðast efn- inu. Þessu hefur þó verið tekið alveg svakalega vel og fötin úr þessu hrá- efni eru mest selda varan okkar.“ Bóas hefur í nægu að snúast þessa dagana en hann heldur á tískuvikuna í París í lok þessa mán- aðar. „Ég ætla að fara og hitta á fólk sem ég verslaði við í fyrra og við- halda tengslunum við þær búðir sem við erum í samstarfi við. Á svona tískuvikum kynnist maður einnig fólki alls staðar að úr heiminum og myndar ný tengsl.“ - ka Hátískuheimurinn lofar fatnað úr laxaroði Fatahönnuðurinn Bóas Kristjánsson hlaut 2,5 milljóna króna styrk úr hönnunarsjóði í gær. Styrkinn ætlar hann að nota til þess að þróa fatalínuna KARBON enn frekar en uppistaða línunnar eru vistvænir textílar. HÆSTÁNÆGÐUR Fatahönnuðurinn Bóas Kristjánsson hlaut hæstu úthlutun úr hönnunarsjóði í gær en styrkurinn hljóðar upp á 2,5 milljónir. LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.