Fréttablaðið - 04.06.2014, Síða 51
MIÐVIKUDAGUR 4. júní 2014 | SPORT | 31
ALLIR VELKOMNIR!
Nemandi Braut Verkefni kl. Stofa
Erla Björk Sigurgeirsdóttir MSc orkuvísindi
Financial benefit for Icelandic companies
by implementing ISO 14001
10:00 M104
Harpa Rún Garðarsdóttir MSc rekstrarverkfræði Reliability of jet engines 10:00 M208
Birna Markúsdóttir MSc íþróttavísindi og þjálfun
A novel exercise intervention on transversus abdominis
recruitment and pain perception using EMG feedback
in people with low back pain
10:00 M105
Oddný Björgvinsdóttir MSc heilbrigðisverkfræði
Investigating the effects of pulsed electromagnetic
fields (PEMFs) on bovine nucleus pulposus cells 11:00 M104
Sunna Björg Helgadóttir MSc rekstrarverkfræði
Cost and optimization model of aluminium
billets production at ISAL Straumsvik
11:00 M208
Guðmundur Þorsteinn Bergsson
MSc byggingarverkfræði/
mannvirkjahönnun
Samanburður bormótstöðu við niðurrekstur
og burðarþols staura
11:00 M209
Þórhallur Siggeirsson MSc íþróttavísindi og þjálfun
Þróun matskerfis fyrir afreksstarf yngri flokka
í knattspyrnu á Íslandi
11:00 M105
Sigurbjörg Jónsdóttir MSc heilbrigðisverkfræði
Validation and biomechanical measurement
using a novel inertial measurement unit
13:00 M104
Skúli Magnús Sæmundsen MSc rekstrarverkfræði Innritun í leikskóla 13:00 M208
Dagný Dís Magnúsdóttir MSc rekstrarverkfræði
Risk-based analysis of operational procedures
used by the Control Centre of Landsnet
13:00 M209
Anna Berglind Sigurðardóttir MSc framkvæmdastjórnun
Þarfagreining á flugvélastæðum
Keflavíkurflugvallar
14:00 M209
Nils Óskar Nilsson MSc íþróttavísindi og þjálfun
Movement analysis of side step cutting motion
in agility testing for elite athletes
15:00 M105
Heimir Þór Gíslason
MSc byggingarverkfræði/
umferð og skipulag
Verkbeiðna- og verkáætlanakerfi fyrir
vegagerðarverk
15:30 M104
Ninna Björg Ólafsdóttir MSc rekstrarverkfræði Lateral flight optimization with respect to wind 15:30 M208
Við látum verkin tala
Opnar meistaravarnir við tækni- og verkfræðideild
í Háskólanum í Reykjavík 5. júní.
HM stöðin
HANDBOLTI Ungverska
félagið Veszprém tilkynnti
á heimasíðu sinni í dag að
það væri búið að semja við
íslenska landsliðsmanninn Aron
Pálmarsson.
Samningur Arons við félagið
er til þriggja ára og Aron gengur
í raðir félagsins næsta sumar en
hann á eitt ár eftir af samningi
sínum við Kiel.
Aron fékk aðeins að kynnast
tilvonandi liðsfélögum sínum
um helgina er hann mætti
Veszprém í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar. Þar hafði
Kiel betur í hörkuleik. Aron
var svo kosinn besti leikmaður
úrslitahelgarinnar en hann er
heldur betur búinn að stimpla sig
inn í hóp bestu handboltamanna
heims. - hbg
Aron samdi
við Veszprém
NÝTT ÆVINTÝRI Aron kveður Kiel eftir
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VINÁTTULANDSLEIKUR
ÍSLAND - PORTÚGAL 29-26(13-11)
Ísland - Mörk (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 7
(10/1), Arnór Atlason 6 (10), Róbert Gunnarsson
5 (8), Bjarki Már Elísson 3/2 (3/2), Snorri Steinn
Guðjónsson 3/1 (4/2), Alexander Petersson 3
(5), Ólafur Guðmundsson 1 (1), Þórir Ólafsson
1 (2), Bjarki Már Gunnarsson (1), Ásgeir Örn
Hallgrímsson (3),
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 5 (20, 25%),
Sveinbjörn Pétursson 3 (14/2, 21%),
Hraðaupphlaup: 9 (Guðjón 5, Alexander 2, Arnór,
Þórir)
Fiskuð víti: 4 ( Arnór, Róbert, Snorri, Alexander)
Utan vallar: 6 mínútur.
Portúgal - Mörk (skot): Pedro Solha 5 (5), Tiago
Rocha 5 (5), Wilson Davyes 5 (6), Pedro Portela
4/2 (5/2), Gilberto Duarte 3 (4), Fabio Antunes
1 (1), Nuno Roque 1 (2), Ricardo Moreira 1 (2),
Fabio Magalhaes 1 (4), Ricardo Pesqueira (1),
Pedro Cruz (4),
Varin skot: Hugo Figueira 10/2 (33/4, 30%),
Ricardo Candeias 2 (8/1, 25%),
Hraðaupphlaup: 8 (Solha 3, Davyes 3, Portela,
Duarte)
Fiskuð víti: 2 ( Rocha, Roque )
Utan vallar: 6 mínútur.
HANDBOLTI Ísland lagði Portúgal
29-26 í þriðja leik þjóðanna á jafn
mörgum dögum. Portúgal byrjaði
leikinn betur en eftir um 20 mínútna
leik tók Ísland öll völd á vellinum.
Liðið vann upp fjögurra marka for-
ystu gestanna og var tveimur mörk-
um yfir í hálfleik 13-11.
„Ég var hræðilegur fyrstu 20 mín-
úturnar og svo hitnaði þetta aðeins
hjá okkur flestum. Það er kannski
eðlilegt miðað við að menn eru komn-
ir aðeins fram úr sér og með hausinn
lengra en þennan leik,“ sagði Guðjón
Valur Sigurðsson, fyrirliði Íslands.
„Þetta eru lok langs tímabils og
við erum búnir að horfa á þessu
Bosníu-leiki lengi. Ég ætla ekki
að leita að afsökunum. Við vorum
lélegir til að byrja með.
„Við sýndum í hálftíma, 35 mín-
útur, tiltölulega góðan handbolta.
Svo misstum við aðeins dampinn í
lokin aftur. Það er ekkert til að hafa
áhyggjur af.“
Guðjón kvaddi lið sitt Kiel um
helgina þegar liðið tapaði í úrslit-
um Meistaradeildarinnar. Það var
síðasti leikur Guðjóns Vals fyrir
félagið en hann segist ekki mega
gefa upp hvert hann fer fyrr en á
mánudaginn eftir viku.
Guðjón sagði erfitt fyrir sig að
sætta sig við úrslit helgarinnar en
hann lofaði því að vera klár í slag-
inn þegar Ísland mætir Bosníu í
umspilinu um laust sæti á HM.
„Ég verð klár í slaginn. Það er
ekkert val. Helgin var ömurleg og
er enn þá ömurleg en maður lítur
fram á veginn. Lífið heldur áfram.
„Mér líst vel á Bosníu-leikina. Ég er
ekki betur gefinn en það að ég trúi
alltaf að við vinnum.“
- gmi
Ísland gerði það sem þurft i til
Guðjón fór á kostum tveimur dögum eft ir tapið í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Í BANASTUÐI Guðjón Valur átti frábæran leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN