Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 6

Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 6
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 SVEITARSTJÓRNIR Byggðaráð Dal- víkurbyggðar hefur samþykkt að hækka laun kjörinna fulltrúa. Föst laun óbreytts sveitarstjórnarfull- trúa og byggðaráðsmanna hækka um 40 prósent, úr 35.727 krónum í 50 þúsund. Laun formanns byggða- ráðs og forseta sveitarstjórnar hækka um 26 prósent, verða 90 þúsund krónur í stað 71.455 króna. Hækkunin er sögð taka mið af kjörum kjörinna fulltrúa í sveitar- félögum af sambærilegri stærð og Dalvíkurbyggð. - gar Byggðaráð Dalvíkurbyggðar hækkar laun: Fá 40 prósent hækkun NOREGUR Samfélagsgerðin í Nor- egi fellur miklu betur að gildum íslamstrúar heldur en samfélags- gerðin í Sádi-Arabíu og Íran. Þetta er mat nokkurra af helstu íslamfræðingum heims sem borið hafa saman 208 lönd. Noregur er sjötta efsta landið á listanum en Sádi-Arabía í 131. sæti. Íran og Írak eru ekki langt fyrir neðan á listanum, að því er greint er frá á fréttavef norska ríkisútvarpsins. Íraninn Hossein Askari, sem er prófessor við George Wash- ington-háskólann í Bandaríkj- unum, segir að grunngildi íslam snúist ekki um sjaríalögin eða trúarríki. Hann og aðrir íslamfræðingar lásu Kóraninn og rit múslíma til þess að rannsaka íslömsk gildi. Þeir komust fljótt að því að fæst ríki múslíma hafa lagað samfélög sín að gildum íslam. Haft er eftir prófessornum að við lestur ritanna hafi fræðing- arnir komist að því að í íslam sé lögð áhersla á góða stjórnarhætti og góðar og virkar stofnanir. Leiðtogar eiga að fylgja sömu lögum og borgararnir. Samfé- lagið á að byggja á efnahagslegu og pólítísku frelsi. Það á að vera skipulagt þannig að það stuðli að hagvexti. Spilling er ekki í sam- ræmi við gildi íslam. Allir íbúar eiga að njóta góðs af auði samfélagsins og vera jafn- ir. Kúgun er stranglega bönnuð samkvæmt Kóraninum. Askari segir ljóst að flestum íslömskum ríkjum sé ekki stjórnað í sam- ræmi við íslömsk gildi. - ibs Íslamfræðingar segja samfélög fæstra múslímaríkja samræmast trú þeirra: Noregur fellur að gildum íslam BRETLAND, AP Í sumum löndum heims hafa stjórnvöld beinan aðgang að fjarskiptakerfum Voda- fone án þess að biðja þurfi um leyfi hjá fyrirtækinu. Fjarskipta- risinn, sem er með starfsemi um heim allan, upplýsti í gær, í nýrri skýrslu, hvert umfang afskipta ríkis stjórna víða um heim væri með starfsemi fyrirtækisins. Markmið Vodafone með skýrsl- unni er sagt að stemma stigu við auknum þrýstingi frá yfirvöldum vegna hlerana og styðja við bar- áttu þeirra sem vilja auka gagnsæi í samskiptum þegna og stjórnvalda. Fyrirtækið skorar á yfirvöld í ríkj- unum að auka gagnsæi og láta af hlerunum á þegnum sínum. Skýrslan er sú fyrsta sinnar teg- undar og nær til 29 landa í Evrópu, Afríku og Asíu, þar sem Vodafone er með starfsemi. Ekki er tekið til starfsemi Vodafone á Íslandi. Í skýrslu Vodafone er að finna ítarlega greiningu á lagaumhverfi hlerana á milli landa, en stefnt er að því að uppfæra hana reglulega. Einna mesta athygli hefur vakið að í sex ríkjum hið minnsta eru yfirvöld með tengingar til hler- ana beint inn í fjarskiptakerfi allra símafyrirtækja sem í lönd- unum starfa og er símafélögun- um skylt að lúta vilja stjórnvalda í þessum efnum. Þessi lönd eru hins vegar ekki nafngreind í skýrslunni. Shami Chakra- ba r t i , fra m- kvæmdastýra mannréttinda- samtakanna Liberty, segir upp- ljóstranirnar í skýrslunni dæmi um allra svörtustu brot á borgara- legum réttindum fólks. „Að ríkis- stjórnir skuli með einföldum hætti geta komist í símtöl fólks er for- dæmalaust og ógnvekjandi,“ sagði Chakrabarti í yfirlýsingu í gær. Fyrri uppljóstranir, svo sem frá Edward Snowden, sýndu að stjórn- völd litu þegar á netsamskipti sem opinn leikvöll. Hún segir þörf á gagngerri endurskoðun allra laga sem snúa að stafrænum samskipt- um. olikr@frettabladid.is SHAMI CHAKRA- BARTI VODAFONE-VERSLUN Vegfarendur í Lundúnum við útibú Vodafone, sem er eitt stærsta farsímafjarskiptafyrirtæki heims. Fyrirtækið upplýsti í gær um reglur um aðgang stjórnvalda í nokkrum löndum að kerfum þess. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Stjórnvöld sex ríkja hlera fjarskiptakerfin Með skýrslu sem birt var í gær leitast fjarskiptarisinn Vodafone, sem starfar um heim allan, við að stemma stigu við hlerunum stjórnvalda víða um heim. Skýrslan nær til 29 landa. Í nokkrum löndum hafa stjórnvöld óheftan aðgang að símkerfum. Hér á landi þarf að leggja beiðnir um hlerun á fjarskiptum fyrir dómstól. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segir að samþykki dómstóll slíka beiðni sé fjarskiptafyrirtækjunum skylt að framfylgja dómsúrskurðinum, með því að tengja rannsóknaraðila við símanúmer þess sem á að hlera. „Hlustun og upptökur á samskiptum fara fram hjá rann- sóknaraðila sem einnig annast alla úrvinnslu gagna,“ segir hann. Starfsmenn fjarskiptafyrirtækja framkvæmi eftirlitið sjálfir og veiti bara tæknilega aðstoð samkvæmt dómsúr- skurði. „Mikilvægi þess að stjórnvöldum hvar í heiminum sem er sé skylt að gefa út skriflegar heimildir verður ekki ofmetið,“ segir Hrannar. Sýnileiki hlerana sé enginn nema með skriflegum heimildum líkt og á Íslandi. „Án skriflegra heimilda er erfiðara fyrir fjarskiptafyrirtæki að andmæla hlerunum og því eru formleg samskipti mikilvæg leið til þess að opinbera notkun valdsins sem beitt er í þágu hins opinbera í hlerunum.“ Ákvæði um hleranir eru í fjarskiptalögum og lögum um meðferð sakamála. Dómsúrskurð þarf til hlerana hér Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is Costa del Sol Frá kr. 73.600 Frá kr. 73.600 án fæðis Myramar Tropicana B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . 39.900 Flugsæti frá kr. Netverð á mann frá kr. 73.600 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 97.400 m.v. 2 fullorðna í stúdíóíbúð. 16. júní í 10 nætur. Netverð á mann frá kr. 103.900 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 119.700 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 16. júní í 10 nætur. Frá kr. 103.900 m/hálft fæði innifalið E N N E M M / S IA • N M 63 15 4 SVANFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR Sveitarstjóri lagði til launahækkun. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL NORSKI FÁNINN Noregur er sjötta efsta landið á lista yfir ríki sem falla vel að gildum íslam. MENNING Nýtt verk eftir Ragn- heiði Hörpu Leifsdóttur með þátt- töku listflugmannanna Sigurðar Ásgeirssonar, Björns Thors og Kristjáns Þórs Kristjánssonar, auk kórsins Kötlu, var flutt yfir Kolla- firði seinnipartinn í gær. Um var að ræða lokaverk Listahátíðar í Reykjavík 2014. Björn Thors og Kristján Þór flugu listflugvélunum er teiknuðu form í háloftunum sem kórinn Katla túlkaði í söng. Verkið tók átta mínútur í flutningi. - fb Nýtt verk eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur var flutt yfir Kollafirði í gær: Listflug í lokaverki Listahátíðar FLUG VIÐ HÖRPU Flugvél- arnar tvær á flugi fyrir ofan Hörpu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ EGILL
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.