Fréttablaðið - 07.06.2014, Side 16

Fréttablaðið - 07.06.2014, Side 16
7. júní 2014 LAUGARDAGUR | HELGIN | 16 Í ÚTILEGU. Veðurspáin fyrir helgina er sérstaklega góð, en veðrið verður best í uppsveit- um á Suður- og Vesturlandi og allt að 22 stiga hiti. Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is HELGIN 7. júní 2014 LAUGARDAGUR FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU … Á ON THE ROAD AGAIN í flutningi Willie Nelson, til að koma þér í gott skap á leiðinni í útilegu. ÖNGSTRÆTI , eftir Louise Doughty í þýðingu Bjarna Jónssonar, á meðan þú baðar þig í sólinni og bíður eftir að grillið hitni. Á FORMÚLUNA í beinni út- sendingu frá kappakstrinum í Kanada á Stöð 2 Sport klukkan 17.30– ef þú fórst ekki í útileguna eftir allt saman! Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður Sleikir sólina „Ég ætla að njóta þess að vera í fríi og ætla að sleikja sólina. Ég ætla einnig að sinna prívat- málum og svo er ég á fullu við að undirbúa hina ýmsu tónleika sem fram undan eru, eins og til dæmis á 17. júní.“ Helga Braga Jónsdóttir, leikkona og flugfreyja Brúðkaup og fl ugferð „Ég fer í brúðkaup hjá frænku minni í dag. Á morgun flýg ég til London með WOW air en annars stefnir þetta í huggulega helgi hjá mér.“ Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður Skellir sér í bústað „Ég ætla upp í sumarbústað í dagsferð en kem aftur í bæinn til að fara í þrítugsaf- mæli í Kaplakrika. Svo liggur leiðin aftur upp í sumar- bústað og þar verð ég fram á mánudag. Þar á aldeilis að njóta sumarblíðunnar.“ Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona Bröns í garðinum „Í kvöld ætlum við í brúð- kaup hjá nágrönnum okkar og á morgun verður græjað- ur bröns með góðum vinum úti í garði. Svo er aldrei að vita nema við skreppum upp í sumarbústað. Það verður að njóta veðursins.“ Jógaæfingar hjálpa börnum að tengja við líkama sinn, styrkja hann og liðka ásamt því að æfa jafnvægi og samhæfingu. Þau hafa gaman af að spreyta sig á hinum ýmsu jógastöðum sem líkja oft eftir dýrum, náttúru- fyrirbærum eða hlutum. Í jóga er lögð áhersla á að hafa gaman og gefa börnum tækifæri til að hreyfa sig án þess að vera í samkeppni hvert við annað. Hægt er að fræðast meira um Jógahjartað og starfsemi þess á vefsíðunni jogahjartad.wix.com/jogahjartad. Skemmta sér án samkeppni Það er eitthvað við það að fara yfir sjóinn og horfa á borgina frá nýju sjón-arhorni og stunda saman jóga úti í náttúrunni,“ segir Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir jógakennari, sem stendur fyrir Fjölskyldujóga í Viðey í dag milli kl. 13 og 14.30. Styrktarfélagið Jógahjartað stend- ur fyrir viðburðinum þar sem á dagskránni eru jógaæfingar, leikir, öndun í sjávarloftinu og hugleiðsla. „Við slökum á og njótum heilandi tóna gongsins sem er alveg magnað úti í guðsgrænni náttúrunni. Fjöl- skyldan hefur gott af því að kom- ast burt frá hversdagsleikanum en þetta er náttúrufegurð sem er bara í fimm mínútna siglingarfjarlægð.“ Þetta er í annað sinn sem Fjöl- skyldujóga fer fram í Viðey og er Arnbjörg spennt fyrir deginum enda veðurspáin fyrir daginn eins og best verður á kosið. „Það var æðislegur dagur hjá okkur í fyrra enda er yndislegt að vera í eyjunni. Nú verðum við hjá Friðarsúlunni sem mér þykir vel við hæfi,“ segir Arnbjörg sem hvetur alla til að mæta og eiga endurnærandi stund í eyjunni í faðmi fjölskyldunnar. Hún bendir gestum á að taka ferj- una yfir sundið sem fer kl. 12.15. Jógahjartað er styrktarfélag sem hefur þann tilgang að bjóða aðstoð við kennslu á jóga, hug- leiðslu og slökun í grunnskólum. Jógahjartað miðlar einnig þekk- ingu til grunnskólakennara og foreldra sem vilja vita meira um jóga. Meðlimir Jógahjartans eru átta mæður og jógakennarar sem hafa áhuga á velferð barna almennt og trúa því að jóga og hugleiðsla gefi ungu fólki betri tengingu við sjálft sig á leið sinni í gegnum menntakerfið. Hvað? Fjölskyldujóga Jógahjartans í Viðey. Hvenær? Í dag kl. 13-14.30. Hversu mikið? 500 kr. á mann en frítt er fyrir þriggja ára og yngri. Slaka á og njóta heillandi tóna gongsins í náttúrunni Styrktarfélagið Jógahjartað stendur fyrir viðburðinum Fjölskyldujóga í Viðey í dag. Sex kennarar taka höndum saman og leiða fj ölskyldur í gegnum jógaæfi ngar, leiki, öndun í sjávarloft inu og hugleiðslu. ENDURNÆRANDI Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir ásamt upprennandi litlum jóga sem heitir Hrafn Styrkár Svavarsson á fjölskyldujógadeginum í Viðey í fyrrasumar. Smoothie 1 msk. skyr 2 gulrætur 1 lúka frosið mangó 1 frosinn banani 1 lúka frosin bláber ¼ lárpera 1 tsk. hnetusmjör Lúka frosin vatnsmelóna (sker niður og frysti í pokum) Sítrónusafi (ferskur) Engifer (eftir smekk) Vatn eftir smekk. Ofan á þrjár pekanhnetur og nokkrir dropar hunang. Kjúklingaréttur með fetaosti og furuhnetum Fyrir 4 5 Rose-kjúklingabringur 1 poki ferskt spínat 1 rauð paprika ¼ smátt skorið rautt chili 2 vorlaukar ½ ferskt mangó 3 msk. fetaostur í bláu krukk- unum 1/2 lítill poki ristaðar furu- hnetur Kjúklingakrydd frá Potta- göldrum 6 msk. kotasæla Chili Falk-salt og nýmalaður pipar Aðferð Bringurnar settar í eldfast mót og kryddaðar. Mótið sett inn í ofn. Í skál er fetaosti og kota- sælu blandað saman. Grænmetið og mangóið skorið smátt. Öllu hrært saman við ost- inn ásamt furuhnetunum. Þegar bringurnar eru búnar að malla í 15 mínútur má setja allt yfir bringurnar og baka í ofni í um 45 mínútur við 200-220 gráður. Gott er að setja álpappír yfir. Eggaldin Eggaldin skorin niður og lögð á bökunarpappír á ofnplötu. Bakið eftir smekk. Gott að krydda með salti og chili-pipar. Heimild: Heilsutorg.is Sumarlegur matur sem hentar vel í hita og sól Fréttablaðið tók saman nokkrar einfaldar og skemmtilegar uppskrift ir sem henta vel á þessum tíma árs.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.