Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 22
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
Bandaríska hljómsveitin Pixies er á leiðinni til Íslands í annað sinn í næstu viku. Tónleikarnir verða í Laugar-dalshöllinni á miðvikudagskvöld en áratugur er lið-inn síðan rokkararnir spiluðu á tvennum tónleikum í Kaplakrika.Trommarinn David Lovering er einkar hress í sím-
anum og byrjar á því að segja frá kynnum sínum af Íslandi vorið
2004, þegar hljómsveitin hafði nýlega byrjað að spila saman
eftir ellefu ára hlé. „Ég man að við vorum spennt fyrir ferða-
laginu vegna þess að þetta er svo framandi staður og við höfðum
aldrei komið þangað áður. Ég hef mikinn áhuga á jarðfræði og
það var frábært að sjá steinana og landslagið. Auðvitað fórum
við líka í Bláa lónið sem var gaman en þar fyrir utan var yndis-
legt fólk þarna og ég borðaði góðan mat,“ segir trommarinn og
byrjar að telja upp hvað hann lét ofan í sig: „Ég borðaði mat sem
ég hafði aldrei prófað áður, eins og lunda, hval og hákarl og ég
held ég fái hrossakjöt næst þegar ég kem þangað. Það er gaman
að prófa allt sem er „lókal“. Þetta var yndislegur tími og ég get
ekki beðið eftir því að koma aftur.“
Sættir sig við meira kjaftæði
Næst liggur beinast við að spyrja hvort hljómsveitin hafi eitt-
hvað breyst frá því hún spilaði síðast hér á landi, fyrir utan
það að Paz Lenchantin plokkar núna bassann á tónleikum í stað
stofnmeðlimsins Kim Deal sem ákvað að segja skilið við Pixies
í fyrra. „Nei, veistu, við höfum alltaf verið eins. Við erum sömu
manneskjurnar. Maður heldur að maður verði eldri og vitrari
með árunum en ég held að það sé ekki satt. Ég held að maður
verði bara eldri. En að verða vitrari þýðir bara að maður sættir
sig við meira kjaftæði,“ segir Lovering og hlær. „Núna er Paz
að spila á bassann og ég get fullvissað þig um að hún er mjög
góður bassaleikari. Áhorfendurnir fíla hana og hún fær mig til
að spila betur.“
Indie Cindy þurfti að vera góð
Þegar Pixies lagði upp laupana á sínum tíma hafði hún gefið
út fjórar breiðskífur sem gagnrýnendur hrifust mjög af, sér-
staklega þeim tveimur fyrstu, Surfer Rosa og Doolittle. Eftir
að bandið hætti störfum var forsprakk-
inn Black Francis iðulega spurður að
því hvort Pixies myndi snúa aftur en
hann neitaði því ávallt. Því kom það
mjög á óvart þegar hljómsveitin til-
kynnti um endurkomu sína.
Þegar orðrómurinn um nýju
plötuna, Indie Cindy, fór af stað
voru margir aðdáendur með efa-
semdir um hvort rétt væri hjá
hinni goðsagnakenndu Pixies að
gefa út nýtt efni. Lovering er sam-
mála því að væntingarn-
ar hafi verið miklar.
Eldri en síðast en ekkert vitrari
Hljómsveitin Pixies spilar í Laugardalshöll næstkomandi miðvikudag. Áratugur er liðinn síðan hún kom
síðast hingað til lands og spilaði í Kaplakrika. Trommuleikarinn David Lovering segir að erfitt hafi verið
að standast væntingar við gerð nýju plötunnar Indie Cindy.
1986 Joey Santiago og Black Francis stofna
hljómsveit sem síðar fær nafnið Pixies.
1987 Átta laga stuttskífan Come on Pilgrim
kemur út á vegum útgáfunnar 4AD.
1988 Fyrsta breiðskífan, Surfer Rosa, kemur
út en kemst hvergi inn á vinsældarlista.
Melody Maker velur hana plötu ársins.
1989 Önnur breiðskífan, Doolittle, kemur
út. Hún nær óvænt áttunda sæti á breska
listanum.
1990 Þriðja breiðskífan, Bossanova, kemur
út og nær þriðja sæti á breska listanum
en aðeins 70. á þeim bandaríska.
1991 Fjórða breiðskífan, Trompe le Monde,
kemur út og nær 7. sæti á breska listanum.
1992 Pixies hitar upp fyrir U2 á tónleika-
ferðinni Zoo TV.
1993 Black Francis tilkynnir í útvarpsvið-
tali að Pixies sé hætt störfum, án þess að
hafa talað fyrst við hina í sveitinni.
1993 Black Francis breytir sviðsnafninu
sínu í Frank Black og gefur út fyrstu
sólóplötuna sína.
1993 Hljómsveit Kim Deal, The
Breeders, slær í gegn með laginu
Cannonball.
2004 Pixies tilkynnir óvænt um
endurkomu sína og leggur af stað í
tónleikaferð um heiminn.
2004 Sveitin gefur út nýtt lag eftir Kim
Deal, Bam Thwok, sem nær efsta
sæti niðurhalslista iTunes í Bret-
landi.
2007 Black Francis segir að Pixies
muni ekki gefa út nýja plötu
vegna þess að Deal hafi ekki
áhuga á því.
2013 Kim Deal hættir í hljóm-
sveitinni. Fyrsta lagið í níu ár,
Bagboy, kemur út án aðkomu
Deal.
2014 Fyrsta Pixies-platan í
þrettán ár og sú fyrsta án Deal,
Indie Cindy, kemur út.
Spurður um trommustíl sinn segir Lovering hann vera ósköp
venjulegan og alls ekkert sérstakan. „Ég er ekki góður tromm-
ari, ég henta bara hljómsveitinni vel, það er allt og sumt,“ segir
trommari þessarar frægu sveitar og virðist meina hvert einasta
orð.
Hann bætir við að hann hafi breytt spilamennsku sinni eftir
að Indy Cindy kom út. „Ég held öðruvísi á trommukjuðunum
og nota hefðbundna gripið, eins og gömlu djasstónlistarmenn-
irnir gerðu. Þannig lærði ég að spila á trommur
þegar ég var lítill. En þegar ég byrjaði í Pixies
breytti ég gripinu því við vorum að spila mikið af
pönklögum og ég gat ekki spilað þau með djass-
gripinu,“ segir hann. „Ástæðan fyrir því að ég nefni
þetta er að síðan í september í fyrra höfum við
verið að spila mikið af lögunum af Indie Cindy og ég
hef notað þessa nýju tækni. Mér hefur aldrei verið
hrósað á ævinni en núna er mér stanslaust hrósað.
Eina ástæðan fyrir því er hvernig ég lít út á trommun-
um, ekki vegna þess að ég er að spila betur. Fólk hugsar
með sér: „Vá, þessi gaur lítur út fyrir að kunna að spila á
trommur, sjáðu hvernig hann heldur á kjuðunum“,“ segir
Lovering og hlær. „Ég þigg samt alveg hrósið, ekkert mál.“
Ég bjóst
aldrei við
því að við
myndum
byrja aftur
að spila.
Bara að
koma aftur
saman árið
2004 var
eitthvað sem
ég hafði
aldrei látið
mig dreyma
um að gæti
gerst.
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is
„Þegar við vorum að semja lögin hafði fólk sagt
okkur að við þyrftum að viðhalda þessari goðsagn-
arkenndu stöðu. Við vissum líka að gæði laganna
þyrftu að vera til staðar og þess vegna var þetta
dálítið erfitt. En eina leiðin til að takast á við þetta
var að vera mjög ánægðir með lögin sem við sömd-
um. Þetta ferli tók um þrjú ár. Á þeim tíma varð
mikið af lögum til og við hentum mörgum lögum
sem okkur fannst ekki nógu góð. En á endanum
vorum við mjög ánægðir útkomuna.“
Bjóst aldrei við endurkomu
Þú hefur væntanlega ekki búist við að Pixies
myndi nokkurn tímann gera nýja plötu? „Ég bjóst
aldrei við því að við myndum byrja aftur að spila.
Bara að koma aftur saman árið 2004 var eitthvað
sem ég hafði aldrei látið mig dreyma um að gæti
gerst. Þá vorum við ekki að spá í að taka upp ný
lög. Það voru stanslausar tónleikaferðir vegna
þess að fólk hafði svo mikinn áhuga á að sjá okkur.
Það var ekki fyrr en eftir sjö ár sem við áttuðum
við okkur á því að við höfðum verið á tónleikaferð
lengur en við vorum starfandi á sínum tíma. Þá
fórum við að hugsa um að búa til eitthvað nýtt.“
Kláraði rafmagnsverkfræðina
Lovering byrjaði í Pixies þegar hann var í háskóla.
Black Francis og gítarleikarinn Joey Santiago
voru að leita að trommuleikara, en áður höfðu
þeir ráðið Kim Deal í bandið. „Ég var hættur að
spila á trommur þegar eiginmaður Kim Deal hafði
samband við mig og sagði að hún hefði hitt tvo
náunga sem voru að leita að trommara. Ég ákvað
að slá til því mig hafði alltaf langað til að vera í
hljómsveit. Ég hitti þá og þeir spiluðu nokkur lög
og ég hugsaði með mér: „Þetta er málið“,“
segir Lovering. „Ég gekk til liðs við
bandið og við byrjuðum að spila í
Boston. Mér fannst lögin virkilega góð og ég var
mjög áhugasamur. Við fórum að spila á hverjum
tónleikunum á fætur öðrum og á endanum gerð-
um við plötusamning við 4AD,“ bætir hann við.
„Þarna á níunda áratugnum voru foreldrar mínir
ekki ánægðir með að ég væri kominn í hljómsveit.
Ég var að læra rafmagnsverkfræði og þau vildu
frekar að ég einbeitti mér að henni. Ég kláraði
reyndar námið og mamma er ánægð núna.“
Surfer Rosa í uppáhaldi
Spurður út í gerð fyrstu breiðskífunnar Surfer
Rosa, uppáhalds Pixies-plötu Lovering, segir hann
að 4AD hafi stungið upp á því að Steve Albini yrði
upptökustjóri. „Við höfðum verið að spila lögin á
klúbbum í Boston, þannig að það var mjög auðvelt
að fara inn í hljóðverið og spila þau. Það var ekki
verið að spá of mikið í hlutina. Albini notaði her-
bergishljóðnema og við notuðum málmgítarneglur.
Þetta var hljómurinn sem kom út úr því og varð
að Surfer Rosa.“
Hélt töfrasýningu í Reykjavík
Hvað ætli hafi tekið við hjá Lovering þegar Pixies
hætti 1993? „Ég hélt áfram að spila á trommur í
einhver ár en hætti svo að spila. Ég missti áhugann
á að spila með hljómsveitunum sem ég var í vegna
þess að ég elskaði að spila með Pixies og það var
bara ekki hægt að líkja þessu saman. Á þeim tíma-
punkti fékk ég áhuga á töfrum og ákvað að gerast
atvinnutöframaður. Ég starfaði við það í mörg ár
og geri það meira að segja enn.“
Eftir að Pixies sneri aftur byrjaði hann aftur
að spila en hélt samt áfram að töfra. „Ég man að
þegar ég var í Reykjavík 2004 endaði ég á bar eitt
kvöldið og hélt stóra töfrasýningu. Það var gaman
og ég held að allir hafi skemmt sér vel. Næst mun
ég örugglega halda nákvæmlega eins sýningu.“
Pixies er eitt áhrifamesta rokkband sög-
unnar. Heyra má áhrifin víða, eins og
hjá Nirvana og The Strokes. Hvernig
ætli Lovering geti útskýrt þær vin-
sældir og þá virðingu sem Pixies
hefur öðlast? „Lögin eru góð,
svo einfalt er það. Þetta eru þrír
náungar og stelpa. Við höldum
tónleika, tölum ekki neitt heldur
spilum bara lögin. Við erum heið-
virt og alvöru rokkband.“
PIXIES Hljómsveitin Pixies.
Frá vinstri: Francis, Santiago,
Lenchantin og Lovering.
NORDICPHOTOS/GETTY
Stiklað á stóru á ferli Pixies Segist ekki vera góður trommari