Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 26

Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 26
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 1. Allt svo grand Hafnarsvæðið í Reykjavík er suðu- pottur með sælkeraveitingastaði eins og Hamborgarabúlluna, Höfn- ina, Víkina, Kol og salt, Café Retró, Kaffi Haítí og hinn klassíska Kaffivagn. Þar eru Sögusafnið og Sjóminjasafnið og í gömlu verbúð- unum eru vinnustofur listamanna og hönnuða, Valdís og Búrið osta- búð. Gamlar gersemar fást svo í Húsi fiðrildanna á Hólmaslóð. Þar sem Daníelsslippurinn var er búið að útbúa skemmtilegan leikvöll í anda sjómennskunnar. 2. Um sundin blá Elding og Sérferðir – Special Tours – halda úti ævintýraferðum á sjó frá Reykjavíkurhöfn. Í boði eru hvalaskoðun þar sem skimað er eftir hrefnum, hnúfubökum og höfrungum, lundaskoðun í Akur- ey með leiðsögumanni, sjóstanga- veiði, kvöldverðarsiglingar og aðrar skemmtireisur. 3. Útivistarperla Heiðmörkin er bakgarður Reykjavíkur, Kópavogs og Garðabæjar. Einn af heillandi göngustígum hennar liggur í hring um Vífilsstaðahlíð, Svína- og Urriðakotshraun og við hann eru hellar og forn fjárbyrgi. Aðkoma að hringnum er um Flóttamannaveg úr Hafnarfirði, um Vífilsstaðaveg úr Garðabæ og um Elliðavatnsveg úr Kópa- vogi og Reykjavík. 4. Upp í mót Esjan er höfuðprýði svæðisins enda afar vinsæl til uppgöngu. Enn auðveldara er að sigra lægri fell eins og Vífilsfell ofan Sand- skeiðs, sem heitir eftir þræli Ing- ólfs, og Helgafell í Hafnarfirði en við rætur þess er hin rómantíska vin, Valaból. Lyklafell, skammt frá Litlu kaffistofunni, er gamall áningarstaður. Þar eru klettar sem krakkar geta klifrað í. 5. Gott útsýni Í Smalaholti á Rjúpnahæð, á bæj- armörkum Kópavogs og Garða- bæjar, hefur nýlega verið sett upp hringsjá. Jakob Hálfdánarson útbjó skífuna með aðstoð annarra örnefnafróðra manna. Auðvelt er að komast að hringsjánni úr Austurkór í Kópavogi og þaðan er víðsýnt til allra átta. 6. Fuglaskoðun Fjörlegt fuglalíf er á Kasthúsa- tjörn við enda Norðurnesvegar á Álftanesi og samkvæmt fræðslu- skilti á bakkanum sjást þar oft sjaldgæfar tegundir. Þaðan ligg- ur göngustígur til norðurs með- fram ströndinni að litlum varð- turni frá hernámsárunum. Á miðri leið er bekkur sem býður upp á nestisstopp. Svo er upplagt að skella sér í Álftaneslaugina. 7. Hott hott á hesti Víkingahraðferð heitir ein hesta- ferðin af mörgum hjá Íshestum í Hafnarfirði. Hún tekur um þrjá tíma og er sögð tilvalin fyrir fólk sem hefur reynslu af útreiðum og vill spretta dálítið úr spori. Lagt er upp klukkan 13 daglega og leiðsögumaður er með í för. Býður upp á friðsæld og fjör Íslendingum er tamara að hugsa til landsbyggðarinnar í sumarfríinu en borgarinnar og nágrennis hennar. Þó felur höfuðborgarsvæðið í sér fjölmargt áhugavert bæði fyrir heimafólk og gesti á öllum aldri, svo sem afbragðs gönguleiðir, siglingar, útreiðartúra, sundstaði með ævintýralegum rennibrautum, söfn af ýmsu tagi, götumarkaði og gallerí. 8. Að Hraðastöðum í Mosfellsdal er húsdýragarður sem gaman er að heimsækja. Yrðlingurinn Móey og hvolpurinn Snotra eru bestu vinir sem veltast um og slást en leggja svo kinn við kinn þegar þeir lepja mjólk úr sama ílátinu. Linda og Sara Bjarnadætur reka garðinn sem er við Helga- dalsveg og er opinn frá 11 til 17 alla daga. SKYLDI HANN VERÐA SJÓMAÐUR? Á leikvellinum við gamla Daníelsslippinn. Neytum og njótum 11. Bragðlaukarnir kitlaðir Ekki er nauðsynlegt að ferðast til fjarlægra heimsálfa til að upp- lifa framandi matarmenningu. Veitingastaðurinn Bangkok á Skemmuvegi 11 í Kópavogi hefur á borðum hina ýmsu rétti sem ilma og bragðast nákvæmlega eins og þeir væru búnir til í Taíl- andi – og eru tælandi. 12. Eitthvað fyrir alla Útipallurinn á Kexi hosteli við Skúlagötu er sólarmegin og í góðu skjóli fyrir norðanáttinni. Kex býður upp á léttar veitingar og bruggar meðal annars sinn eigin bjór. Gott aðgengi er fyrir barnavagna á pallinn og stundum er lifandi tónlist á staðnum. 13. Sumar sumar Café Flóra í Grasagarðinum í Reykjavík er eitt allra sumar- legasta veitingahúsið í þessum heimshluta þegar sólin skín. Þá er setið um allar stéttir innan um blómstrandi gróðurinn, með heitt súkkulaði, kaffi eða bjór og við- eigandi meðlæti. 9. Úr sveitinni Verslunin Frú Lauga við Laugalæk í Reykja- vík er sveitamark- aður í borg. Mest ber á fersku grænmeti og kryddjurtum en frosið kjöt, egg úr frjálsum land- námshænum sem njóta útivistar, flatkökur frá hinu húnvetnska Sveitabakaríi og fleira góðmeti fæst þar líka. 10. Frú forseti Sýningin Ertu tilbúin frú forseti, með fatn- aði Vigdísar Finnboga- dóttur frá forsetatíð hennar, er í Hönnunarsafni Íslands á Garða- torgi í Garðabæ í allt sumar og fram til 5. október. Fleira for- vitnilegt er til sýnis á safninu sem er opið frá 12-17 alla daga nema mánudaga. FJÖLSKYLDAN 1 4 9 10 13 Ekki þarf að fara langt því ævintýrin bíða allt í kringum okkur HÖFUÐBORGAR- SVÆÐIÐ Útivist og afþreying
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.