Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 32

Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 32
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Sunnudagurinn 16. júlí árið 1950. Það sem átti ekki að geta gerst gerðist. Úrúgvæ er heimsmeistari, ekki Brasilía. Meðan nýkrýndu heimsmeistararnir fagna tínast áhorfendur af Maracanã- vellinum í Ríó de Janeiro, stein- runnir, eins og þeir hafi séð draug. Í sumar á brasilíska landsliðið loks möguleika á að kveða niður þenn- an draug sem hefur ásótt Brasilíu í 64 ár. Framan af gekk allt svo vel. Brasilía byrjaði HM 1950 á því að vinna Mexíkó 4-0, gerði svo 2-2 jafntefli gegn Sviss og tryggði sér svo þátttökurétt í úrslitariðlinum með 2-0 sigri á Júgóslavíu. Þegar þangað var komið settu Brasilíu- menn í annan gír. Liðið valtaði yfir Svíþjóð 7-1 og Spán 6-1. Framherja- tríóið frábæra, Zizinho, Jair og Ademir, var óstöðvandi, líkt og það hafði verið ári fyrr þegar Brasilía vann Suður-Ameríkukeppnina, þar sem liðið skoraði 46 mörk í átta leikjum á leið sinni að titlinum. Brasilíu dugði jafntefli gegn Úrúgvæ í lokaleik úrslitariðilsins til að verða heimsmeistari í fyrsta sinn. Það gerðu allir ráð fyrir sigri Brasilíu og leikurinn við Úrúgvæ átti að vera lítið annað en forms- atriði. Á forsíðu morgunútgáfu dagblaðsins O Mundo mátti finna mynd af brasilíska liðinu undir fyrirsögninni „Þetta eru heims- meistararnir“. Eftir að hafa rekið augun í blaðið að morgni leikdags keypti fyrirliði Úrúgvæja, Obdulio Varela, eins mörg eintök af því og hann gat, breiddi úr þeim á baðher- bergisgólf og fyrirskipaði svo sam- herjum sínum að míga á blöðin. Borgarstjórinn í Ríó de Janeiro, Angelo Mendes de Moraes, sat held- ur ekki á sér í ræðu fyrir leikinn. „Þið eigið ykkur enga jafnoka á jörðinni,“ sagði Moraes við mann- fjöldann sem var saman kominn á Maracanã. „Ekkert lið kemst með tærnar þar sem þið hafið hælana. Ég hylli ykkur þegar sem heims- meistara.“ Og þegar 24 mínútur voru til leiksloka benti fátt til annars en að sú yrði raunin. Heimamenn leiddu 1-0 með marki Friaça og allt var á áætlun. En þá fór lestin út af spor- inu. Maracanazo Juan Alberto Schiaffino jafnaði leikinn á 66. mínútu eftir send- ingu frá kantmanninum Alcides Ghiggia. Það sló þögn á Marac- anã. Samkvæmt opinberum tölum voru 173.850 áhorfendur á vellinum þennan dag, en þeir voru að öllum líkindum rúmlega 200.000. Ghiggia, eini eftirlifandi leik- maðurinn frá leiknum 1950, var svo aftur á ferðinni 13 mínútum seinna. Hann skiptist á sending- um við Julio Pérez á hægri kantin- um og lék áfram. Markvörðurinn Moacir Barbosa bjóst við fyrirgjöf og skildi eftir svæði á nærstöng- inni sem Ghiggia nýtti sér og skor- aði sigurmarkið. Úrúgvæ hafði tek- ist hið ómögulega, að tryggja sér heimsmeistaratitilinn á kostnað heimamanna. Tapið hafði djúpstæð áhrif á brasilísku þjóðarsálina og margir líta á það sem stærsta áfall, ekki bara í sögu knattspyrnulandsliðs- ins, heldur einnig í sögu Brasilíu. Ósigurinn gegn Úrúgvæ 1950 var meiriháttar skellur fyrir land sem var á uppleið. Efnahagurinn var betri, lýðræðisumbótum hafði verið komið á og Brasilía var smám saman að nútímavæðast. Og eins og fram kemur í bók Jons Spurling, Death or Glory: The Dark History of the World Cup, var Maracanã eins konar tákn fyrir hina nýju Brasilíu. Tapinu fyrir Úrúgvæ hefur, heldur ósmekklega, verið líkt við morðið á John F. Kennedy, árásina á Hiroshima og einn viðmælandi Spurlings í Death or Glory, Carlos að nafni, líkir tapinu við Titanic- slysið: „Það eru margir samnefnar- ar með þessu tvennu,“ segir Carlos. „Eftirvæntingin í loftinu, ofmatið, og tilfinningin fyrir því að vera ósigrandi. Svo dundi hið óvænta áfall yfir og því fylgdu ásakanir, leit að sökudólgum, deilur og ótal bækur og kvikmyndir þar sem atburðurinn var skoðaður frá ólík- um hliðum. Maracanazo [eins og tapið gegn Úrúgvæ er jafnan kall- að] var okkar Titanic.“ Markvörðurinn grætti heila þjóð Eftir leikinn beindust spjótin aðal- lega að varnarmönnunum Bigode og Juvenal og markverðinum Barbosa – einu blökkumönnunum í liði Brasi- líu – en sá síðastnefndi var öðrum fremur gerður að blóraböggli fyrir tapinu. Hann átti sér aldrei við- reisnar von eftir leikinn. Hvert sem Barb osa fór var hann með einum eða öðrum hætti minntur á mistök- in sem kostuðu Brasilíu heimsmeist- aratitilinn. Eitt atvik, sem átti sér stað 20 árum eftir Maracanazo, sat leng- ur í markverðinum en önnur. Barb- osa var þá staddur í verslun þegar hann heyrði konu segja við ungan son sinn: „Sjáðu! Þarna er maðurinn sem fékk alla Brasilíu til að bresta í grát.“ Það var einnig litið á Barbosa sem eins konar óheillakráku, en árið 1993 var honum meinaður aðgang- ur að æfingu brasilíska landsliðsins því hann þótti boða ógæfu. Barbosa lést í fátækt (eins og svo margir þeirra sem tóku þátt í umræddum leik) árið 2000, saddur lífdaga. „Í Brasilíu er hámarksrefs- ingin 30 ár,“ sagði Barbosa í síðasta sinn sem hann talaði á opinberum vettvangi. „En síðustu fimmtíu ár hef ég tekið út refsingu fyrir glæp sem ég framdi ekki.“ Í hlutverki draugabana Pelé var níu ára þegar leikurinn örlagaríki gegn Úrúgvæ fór fram. Eftir leikinn sá Pelé föður sinn fella tár í fyrsta sinn og lofaði að einn daginn myndi hann vinna HM fyrir hann. Framherjinn stóð við loforðið og gott betur. En þrátt fyrir að Brasilía hafi unnið þrjá heimsmeistaratitla með Pelé innanborðs og tvo til viðbótar hefur það ekki dugað til að græða sárin frá 1950 að fullu. Nú er hins vegar möguleiki. Eins og rithöfund- urinn Alex Bellos hefur bent á er aðeins ein leið í boði fyrir Brasilíu til að kveða drauginn frá 1950 niður: að vinna úrslitaleik HM þann 13. júlí 2014, á Maracanã, þar sem stór- slysið átti sér stað fyrir 64 árum. Draugurinn kveðinn niður? Þó svo að Brasilía hafi orðið heimsmeistari í knattspyrnu oftar en allar aðrar þjóðir á þjóðin sárar minningar frá síðustu heimsmeistarakeppni sem haldin var þar í landi. Nú fyrst fær landslið Brasilíu tækifæri til að kveða niður draug HM 1950. Ingvi Þór Sæmundsson sport@frettabladid.is SLÓ ÞÖGN Á MARACANÃ Juan Schiaffino skorar hér fyrra mark Úrúgvæ gegn Brasilíu í leiknum fræga á Maracana-leikvanginum árið 1950. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Í FÓTBOLTA BRASILÍU HM © GRAPHIC NEWS 1970: Eitt besta lið sögunnar, með Pelé, Tostao, Jairzinho, Carlos Alberto og Rivelino. Brasilía vinnur þriðja titilinn og Jules Rimet-bikarinn til eignar. 1966: ni.Fellur úr leik í riðlakeppnin 1962: Pelé er meiddur en í fjarveru hans fer Garrincha fyrir Brasilíu sem verður fyrst landa til að verja titilinn. 1958: Fyrsti HM-titillinn vinnst í Svíþjóð þar sem hinn 17 ára Pele er í stóru hlutverki. 1954: Fellur úr leik í 8-liða úr- slitum eftir frægan slagsmálaleik gegn Ungverjalandi. 1950: HM fer fram í Brasilíu. Úrslitin ráðast í tveimur riðlakeppnum en tvö efstu liðin í úrslitariðlinum mætast í loka- leik keppninnar. Úrúgvæ vinnur heimamenn, 2-1. 1938: Brasilía endar í þriðja sæti og Leonidas er markakóngur keppninnar. 1934: Fellur úr leik í fyrstu umferð. 1994: Kemst í úrslitaleikinn í fyrsta sinn í 24 ár og er fyrsta liðið til að vinna titilinn eftir vítaspyrnukeppni. 1990: Brasilía er með slakt lið og tapar fyrir Argentínu í 16-liða úrslitum . 2002: Ronaldo, Rivaldo og Ronaldinho fara fyrir töfrandi liði Brasilíu sem vinnur titilinn í fimmta sinn. r Ronaldo vinnu gullskóinn og skorar bæði mörkin í 2-0 sigri á Þýskalandi í úrslitum. 1998: Sigurstranglegir en tapa fyrir Frökkum í úrslita- leiknum þar sem veikindi Ronaldos reynast örlagavaldur. 2006: Fellur úr leik í 8-liða úrslitum. 2010: Fellur aftur úr leik í 8-liða úrslitum. Heimild: FIFA Myndir A: P, Getty Images 1930: Keppir á HM í fyrsta sinn. Preguinho skorar fyrsta HM-mark Brasilíu sem tapaði þó fyrir Júgóslavíu. 2014: Þrátt fyrir erfiðan undirbúning mótsins á heimavelli freistar Brasilía þess að vinna sjötta titilinn á heimavelli. Pelé: Af mörgum talinn besti leikmaður allra tíma – sá eini sem vann HM þrisvar. Neymar: Ný tjs arna sem fær tækifæri til að láta ljós sitt s kína á heimavelli. Cafu: Sá landsliðsmaður Brasilíu sem hefur leikið flesta l eiki frá upphafi lyftir bikarnum árið 2 002. Brasilía: Ástríða fyrir fótbolta 1986: Socrates brennir af í vítaspyrnukeppni og Brasilía tapar fyrir Frakklandi í 8-liða úrslitum. 1978: Rétt missir af úrslita- leiknum vegna markatölu. Endar í þriðja sæti en Argentína verður meistari. 1974: Fjórða sæti eftir að hafa tapað fyrir Hollandi í undan úrslitum. 1982: Ítalía hefnir fyrir tapið 1970 í úrslitaleik þar sem liðs- skipulag hefur betur gegn brasilískum sambabolta. Markahæstir HM-goðsagnir Flestir leikir Ronaldo Pelé Vava, Jairzinho Ademir, Leonidas, Rivaldo Careca 15 12 9 8 7 Cafu Ronaldo Dunga, Taffarel Lucio, Roberto Carlos Gilberto Silva, Jairzinho 20 19 18 17 16
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.