Fréttablaðið - 07.06.2014, Side 39
| FÓLK | 5HELGIN|F LK
Björk Erlingsdóttir segir að hún hefði ekki trúað því að Femarelle virkaði
svona vel nema prófa það sjálf.
„Ég var aðeins rétt um 40 ára
þegar einkenni breytingaskeiðs-
ins hófust hjá mér. Ótrúlegt
að vera svo ung og upplifa
einkenni sem 50 ára konur eru
að upplifa. Vinnufélagar mínir
fengu helst að finna fyrir því að
ég var alltaf í hitakófi og opnaði
alla glugga upp á gátt þegar ég
var á skrifstofunni,“ segir hún.
„Ég hef alltaf verið skapgóð
og kát þannig að breytinga-
skeiðið var ekki alveg týpískt
hjá mér. Helst voru það svefn-
truflanir og hitakófin sem voru
að angra mig, ég var alltaf kaf-
rjóð í framan, sveitt og að kafna
úr hita. Þegar mér bauðst að
prófa Femarelle í mánuð trúði
ég ekki á að það myndi hjálpa
mér. Ég byrjaði, hætti, byrjaði
aftur, fann góðan mun, og svo
þegar ég byrjaði aftur á þriðja
pakkanum á nokkurra mánaða
tímabili fann ég það fyrir alvöru
hve vel Femarelle virkaði á
mig. Ég vildi bara ekki trúa því
fyrst. Ég fann líka mikinn mun á
því hvað ég náði að sofa betur,
þar sem ég átti ekki Femarelle
í nokkra daga, þá gat ég merkt
muninn. En núna finn ég hvað
það gerir mér gott og ætla því
að halda áfram,“ segir Björk.
DÁSAMLEGT UNDRAEFNI
„Ég ákvað að prófa Femarelle
síðasta vetur eftir að hafa lesið
frásögn konu í blaði þar sem
hún lýsti ánægju sinni með
vöruna,“ segir Soffía Káradóttir
sem á þeim tíma var að byrja
á breytingaskeiðinu en vildi
ekki nota hormóna. „Ég fann
fyrir hitakófum, fótaóeirð,
skapsveiflum, líkamlegri van-
líðan og vaknaði oft upp á nótt-
unni.“
Eftir að Soffía hafði tekið
Femarelle inn í aðeins tíu daga
hurfu öll einkenni breytinga-
skeiðsins. „Nú fæ ég samfelldan
svefn, finn ekki lengur fyrir hita-
kófum eða fótaóeirð og líður
mun betur á allan hátt og er í
góðu jafnvægi.“
Soffía mælir hiklaust með
Femarelle við vinkonur sínar.
„Ein þeirra hætti á hormónum
og notar Femarelle í dag. Ég
mæli með því að allar konur
á breytingaaldrinum prófi
Femarelle og get ekki ímyndað
mér hvernig mér liði í dag ef ég
hefði ekki kynnst þessu dásam-
lega undraefni.“
Virkni Femarelle hefur verið
staðfest með fjölda rannsókna á
undanförnum 13 árum.
MJÖG ÁNÆGÐ MEÐ FEMARELLE
„Ég frétti af Femarelle hjá syst-
ur minni sem hefur notað vör-
una með góðum árangri. Ég ákvað
að prófa þar sem ég var byrjuð að
finna fyrir nokkrum einkennum
sem voru lýsandi fyrir breytinga-
skeiðið en samt er ég bara 42 ára,“
segir Selma Björk Grétarsdóttir.
„Ég fann fyrir svefntruflunum,
verkjum um líkamann og skap-
sveiflum. Það var alveg ótrúlega
fljótt sem ég fann góð áhrif af
Femarelle, því að eftir aðeins tvo
daga var ég farin að sofa betur.
Ég er mjög ánægð með áhrifin af
Femarelle, því að skapið hefur
lagast og verkirnir minnkað. Mér
líður mun betur og er sáttari með
sjálfa mig.“
LOKSINS VERKJALAUS
„Mig langar að deila með ykkur
reynslu minni af notkun Fem-
arelle,“ segir Eva Ólöf Hjaltadóttir.
„Mér hafði ekki liðið nógu vel í
svolítinn tíma, ég er á lyfjum við
sykursýki og vegna veikinda í
skjaldkirtli. Ég hafði þyngst vegna
lyfjanna og hef ég einnig verið
með gigt og haft verki vegna þess.
Mér fannst óþægilegt að vera of
mikið innan um fólk, var orðin
svolítið þunglynd af vanlíðan. Mér
fannst ekki gott að vera innan um
hávaða og var því mjög mikið að
einangrast frá félagslífi. Vegna
sykursýkinnar og skjaldkirtilssjúk-
dómsins hef ég svitnað mjög mikið
þótt ég hafi ekki
verið í áreynslu.
Það var þannig að
ég þurfti að skipta
um bol þrisvar á
dag.
Ég er 71 árs og
var ekki sátt við
hvernig mér leið,
vildi geta tekið
meiri þátt í lífinu.
Ég las umfjöllun
um Femarelle og
leist vel á að prófa
náttúrulega og
hormónalausa
meðferð, sér-
staklega þar sem
ég sá að hún gæti
linað verki. Ég hef
núna notað Femarelle undanfarna
mánuði og hef endurheimt mitt
fyrra líf.
Mér líður svo vel að nú get ég
farið daglega út að ganga með
hundinn, fer einnig í sund á hverj-
um degi, sæki félagsvist og fer í
bingó vikulega,“ segir Eva.
„Mig er hætt að verkja um allan
líkamann og ég nota Femarelle
sem náttúrulega verkjameðferð
því að ef ég er með verk tek ég
aukalega af því. Eftir að ég hafði
verið á Femarelle í um það bil sex
mánuði fann ég að ég var hætt að
svitna eins og ég gerði daglega
og get núna verið í sama bolnum
allan daginn. Mjög mikill léttir fyrir
mig. Svo er það besta við þetta að
núna segja börnin mín og tengda-
börn að ég sé orðin miklu líflegri
og hressari. Mér finnst meira
gaman að hitta barnabörnin mín
því ég get veitt þeim meiri athygli.
Ég hef að auki misst 11 kíló án
þess að reyna það vegna þess að
mér líður betur og ég get hreyft
mig óhindrað.“
FEMARELLE ER FRÁBÆR LAUSN
ICECARE KYNNIR Loksins er komin á markaðinn náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri. Femarelle er gert úr jurtaefnum og
rannsóknir sýna að það slær á einkenni tíðahvarfa. Konur finna mikinn mun á sér þegar þær taka inn Femarelle.
VIRKAR VEL Björk Erlingsdóttir segir að hún sofi miklu betur eftir að hún fór að taka inn Femarelle.
MYND/STEFÁNSOFFÍA KÁRADÓTTIR
SELMA BJÖRK GRÉTARSDÓTTIR
EVA ÓLÖF HJALTADÓTTIR
● Femarelle er öruggur kostur fyrir
konur
● Slær á óþægindi eins og höfuð-
verk, svefntruflanir, nætursvita,
skapsveiflur, óþægindi í liðum og
vöðvum
● Þéttir beinin
● Hefur ekki áhrif á móðurlíf eða
brjóstavef
● Náttúruleg lausn, inniheldur Tofu
exctract og Flaxceed duft.
● Inniheldur engin hormón eða ísó-
flavóníða
● Staðfest með rannsóknum síðustu
13 ár
FEMARELLE
Femarelle er náttúrulegt jurtaSERMi
(Selective Estrogen Receptor Modulator) gert úr
jurtaefnum. Innihald hylkjanna er: 322 mg DT56a
(tofu extract) og 108 mg hörfræjaduft.
FEMARELLE ER EKKI HORMÓN OG INNIHELDUR EKKI
ÍSÓFLAVÓNÍÐA
Fæst í öllum apótekum, heilsu-
vöruverslunum og í heilsuhillum stórmarkaða.
UPPLÝSINGAR
www.icecare.is og Femarelle á Facebook.