Fréttablaðið - 07.06.2014, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 07.06.2014, Blaðsíða 39
 | FÓLK | 5HELGIN|F LK Björk Erlingsdóttir segir að hún hefði ekki trúað því að Femarelle virkaði svona vel nema prófa það sjálf. „Ég var aðeins rétt um 40 ára þegar einkenni breytingaskeiðs- ins hófust hjá mér. Ótrúlegt að vera svo ung og upplifa einkenni sem 50 ára konur eru að upplifa. Vinnufélagar mínir fengu helst að finna fyrir því að ég var alltaf í hitakófi og opnaði alla glugga upp á gátt þegar ég var á skrifstofunni,“ segir hún. „Ég hef alltaf verið skapgóð og kát þannig að breytinga- skeiðið var ekki alveg týpískt hjá mér. Helst voru það svefn- truflanir og hitakófin sem voru að angra mig, ég var alltaf kaf- rjóð í framan, sveitt og að kafna úr hita. Þegar mér bauðst að prófa Femarelle í mánuð trúði ég ekki á að það myndi hjálpa mér. Ég byrjaði, hætti, byrjaði aftur, fann góðan mun, og svo þegar ég byrjaði aftur á þriðja pakkanum á nokkurra mánaða tímabili fann ég það fyrir alvöru hve vel Femarelle virkaði á mig. Ég vildi bara ekki trúa því fyrst. Ég fann líka mikinn mun á því hvað ég náði að sofa betur, þar sem ég átti ekki Femarelle í nokkra daga, þá gat ég merkt muninn. En núna finn ég hvað það gerir mér gott og ætla því að halda áfram,“ segir Björk. DÁSAMLEGT UNDRAEFNI „Ég ákvað að prófa Femarelle síðasta vetur eftir að hafa lesið frásögn konu í blaði þar sem hún lýsti ánægju sinni með vöruna,“ segir Soffía Káradóttir sem á þeim tíma var að byrja á breytingaskeiðinu en vildi ekki nota hormóna. „Ég fann fyrir hitakófum, fótaóeirð, skapsveiflum, líkamlegri van- líðan og vaknaði oft upp á nótt- unni.“ Eftir að Soffía hafði tekið Femarelle inn í aðeins tíu daga hurfu öll einkenni breytinga- skeiðsins. „Nú fæ ég samfelldan svefn, finn ekki lengur fyrir hita- kófum eða fótaóeirð og líður mun betur á allan hátt og er í góðu jafnvægi.“ Soffía mælir hiklaust með Femarelle við vinkonur sínar. „Ein þeirra hætti á hormónum og notar Femarelle í dag. Ég mæli með því að allar konur á breytingaaldrinum prófi Femarelle og get ekki ímyndað mér hvernig mér liði í dag ef ég hefði ekki kynnst þessu dásam- lega undraefni.“ Virkni Femarelle hefur verið staðfest með fjölda rannsókna á undanförnum 13 árum. MJÖG ÁNÆGÐ MEÐ FEMARELLE „Ég frétti af Femarelle hjá syst- ur minni sem hefur notað vör- una með góðum árangri. Ég ákvað að prófa þar sem ég var byrjuð að finna fyrir nokkrum einkennum sem voru lýsandi fyrir breytinga- skeiðið en samt er ég bara 42 ára,“ segir Selma Björk Grétarsdóttir. „Ég fann fyrir svefntruflunum, verkjum um líkamann og skap- sveiflum. Það var alveg ótrúlega fljótt sem ég fann góð áhrif af Femarelle, því að eftir aðeins tvo daga var ég farin að sofa betur. Ég er mjög ánægð með áhrifin af Femarelle, því að skapið hefur lagast og verkirnir minnkað. Mér líður mun betur og er sáttari með sjálfa mig.“ LOKSINS VERKJALAUS „Mig langar að deila með ykkur reynslu minni af notkun Fem- arelle,“ segir Eva Ólöf Hjaltadóttir. „Mér hafði ekki liðið nógu vel í svolítinn tíma, ég er á lyfjum við sykursýki og vegna veikinda í skjaldkirtli. Ég hafði þyngst vegna lyfjanna og hef ég einnig verið með gigt og haft verki vegna þess. Mér fannst óþægilegt að vera of mikið innan um fólk, var orðin svolítið þunglynd af vanlíðan. Mér fannst ekki gott að vera innan um hávaða og var því mjög mikið að einangrast frá félagslífi. Vegna sykursýkinnar og skjaldkirtilssjúk- dómsins hef ég svitnað mjög mikið þótt ég hafi ekki verið í áreynslu. Það var þannig að ég þurfti að skipta um bol þrisvar á dag. Ég er 71 árs og var ekki sátt við hvernig mér leið, vildi geta tekið meiri þátt í lífinu. Ég las umfjöllun um Femarelle og leist vel á að prófa náttúrulega og hormónalausa meðferð, sér- staklega þar sem ég sá að hún gæti linað verki. Ég hef núna notað Femarelle undanfarna mánuði og hef endurheimt mitt fyrra líf. Mér líður svo vel að nú get ég farið daglega út að ganga með hundinn, fer einnig í sund á hverj- um degi, sæki félagsvist og fer í bingó vikulega,“ segir Eva. „Mig er hætt að verkja um allan líkamann og ég nota Femarelle sem náttúrulega verkjameðferð því að ef ég er með verk tek ég aukalega af því. Eftir að ég hafði verið á Femarelle í um það bil sex mánuði fann ég að ég var hætt að svitna eins og ég gerði daglega og get núna verið í sama bolnum allan daginn. Mjög mikill léttir fyrir mig. Svo er það besta við þetta að núna segja börnin mín og tengda- börn að ég sé orðin miklu líflegri og hressari. Mér finnst meira gaman að hitta barnabörnin mín því ég get veitt þeim meiri athygli. Ég hef að auki misst 11 kíló án þess að reyna það vegna þess að mér líður betur og ég get hreyft mig óhindrað.“ FEMARELLE ER FRÁBÆR LAUSN ICECARE KYNNIR Loksins er komin á markaðinn náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri. Femarelle er gert úr jurtaefnum og rannsóknir sýna að það slær á einkenni tíðahvarfa. Konur finna mikinn mun á sér þegar þær taka inn Femarelle. VIRKAR VEL Björk Erlingsdóttir segir að hún sofi miklu betur eftir að hún fór að taka inn Femarelle. MYND/STEFÁNSOFFÍA KÁRADÓTTIR SELMA BJÖRK GRÉTARSDÓTTIR EVA ÓLÖF HJALTADÓTTIR ● Femarelle er öruggur kostur fyrir konur ● Slær á óþægindi eins og höfuð- verk, svefntruflanir, nætursvita, skapsveiflur, óþægindi í liðum og vöðvum ● Þéttir beinin ● Hefur ekki áhrif á móðurlíf eða brjóstavef ● Náttúruleg lausn, inniheldur Tofu exctract og Flaxceed duft. ● Inniheldur engin hormón eða ísó- flavóníða ● Staðfest með rannsóknum síðustu 13 ár FEMARELLE Femarelle er náttúrulegt jurtaSERMi (Selective Estrogen Receptor Modulator) gert úr jurtaefnum. Innihald hylkjanna er: 322 mg DT56a (tofu extract) og 108 mg hörfræjaduft. FEMARELLE ER EKKI HORMÓN OG INNIHELDUR EKKI ÍSÓFLAVÓNÍÐA Fæst í öllum apótekum, heilsu- vöruverslunum og í heilsuhillum stórmarkaða. UPPLÝSINGAR www.icecare.is og Femarelle á Facebook.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.