Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 40
FÓLK|HELGIN
Á Hraðastöðum í Mosfellsdal hefur verið rekinn húsdýra-garður í um það bil eitt ár.
Rekstrarstjórar garðsins eru fjór-
tán og ellefu ára heimasæturnar á
bænum, Linda og Sara Bjarnadæt-
ur. „Mamma og pabbi hafa tekið
á móti leikskólabörnum í sveita-
ferðum á vorin í mörg ár og okkur
systurnar langaði að gera meira úr
þessu og hafa opið fyrir fólk allt
sumarið. Við systurnar sjáum alveg
um þetta og það er ekkert mál,“
segir Linda.
ALLIR FÁ AÐ HALDA Á DÝRUM
„Við erum með hesta, geitur, eitt
svín, ref, naggrísi, kanínur, hvolp,
kálf, kettlinga, hænur og kindur.
Svo eigum við von á tvíburakálfum
í húsdýragarðinn sem nágranni
okkar ætlar að lána okkur. Við
erum líka með traktor sem hægt
er að leika sér á og fleira dót. Hjá
okkur getur fólk fengið að halda á
dýrunum og klappa þeim, okkur
finnst það svo æðislegt.“ Hún segir
að þrátt fyrir að einhverjir krakkar
séu hræddir við dýrin í byrjun þá
endi flestir á því að halda á þeim
og klappa þeim, enda kenna þær
systur öllum réttu handtökin.
BARA VENJULEG SVEITASTÖRF
Foreldrar Lindu og Söru hjálpa
þeim við rekstur húsdýragarðsins
en Bjarni Bjarnason, pabbi þeirra,
segist bara vera vinnumaður hjá
þeim. Systurnar hafa búið alla sína
tíð á bænum og segir Linda það
vera alvanalegt fyrir þær að vera
í kringum dýrin. „Við lítum ekki á
þetta sem eitthvert fyrirtæki. Við
hugsum um dýrin, mokum undan
þeim, gefum þeim og pössum að
þeim líði vel og að það sé snyrti-
legt í kringum þau. Þetta eru bara
venjuleg störf fyrir okkur, það er
bara fólkið sem kemur að skoða
dýrin sem bætist við. Við höfum
reyndar fjölgað litlu dýrunum hjá
okkur eftir að við opnuðum hús-
dýragarðinn en við erum aðallega
með kindur sem pabbi sér um.“
ÓVENJULEGT HÚSDÝR
Refurinn Móey er einn íbúa Hús-
dýragarðsins á Hraðastöðum. „Það
var maður sem var að vinna uppi
á Mosfellsheiði í fyrrasumar sem
kom með hann til okkar. Refurinn
kom bara út úr greninu og vildi
leika við hann, maðurinn tók hann
með sér og spurði hvort við vildum
ekki hafa hann í garðinum. Refur-
inn er búinn að vera hjá okkur í
næstum ár og það er mjög gaman
að hafa hann, hann er óvenjulegt
gæludýr,“ segir Linda.
MIKIÐ LÍF Á HRAÐASTÖÐUM
Þær systur eru í Varmárskóla í
Mosfellsbæ og fara með skólabíl
í skólann. „Ég er ein í bekknum
sem bý hér í sveitinni en í árgang-
inum hennar Söru systur eru fleiri
krakkar úr dalnum. Það er alltaf
fullt af krökkum hér á Hraðastöð-
um og mikið líf. Hér hafa líka oft
verið teknar upp auglýsingar og
hljómsveitin Retro Stefson tók upp
tónlistarmyndband í hlöðunni hjá
okkur.“ Hún segist þó ekki vita af
hverju þeirra bær hafi orðið fyrir
valinu en finnst líklegt að það hafi
verið af því að svæðið er gamal-
dags.
Nánari upplýsingar um Húsdýra-
garðinn á Hraðastöðum má finna á
Facebook.
■ liljabjork@365.is
PABBI ER BARA VINNUMAÐUR
HÚSDÝR Rekstrarstjórar Húsdýragarðsins á Hraðastöðum í Mosfellsdal eru ellefu og fjórtán ára systur. Garðurinn fagnar ársafmæli.
REKSTRAR-
STJÓRAR
Systurnar Sara
og Linda reka
Húsdýragarðinn
á Hraðastöðum.
Þær búa á bæn-
um ásamt for-
eldrum sínum.
MYND/GVA
LÍF Á BÆNUM Kristrún Bender og Brynja Bjarna-
dóttir knúsa kanínu og kött sem eiga heima í hús-
dýragarðinum.
VINNUMAÐURINN
Pabbi systranna sér um
kindurnar en dæturnar reka
Húsdýragarðinn á Hraða-
stöðum.
Cinnabon er klassísk amerísk
uppskrift að mjúkum kanil-
snúðum sem bakaðir eru nokkrir
saman í eldföstu móti og mynda
nokkurs konar köku. Yndislegt
kaffibrauð á fallegum sumardegi.
DEIG
1 bolli mjólk
2 egg
1⁄3 bolli olía
4½ bolli hveiti
1 tsk. salt
½ bolli sykur
2½ tsk. þurrger
Fylling
1 bolli púðursykur
2½ msk. kanill
1⁄3 bolli mjúkt smjör
KREM
1 dl rjómaostur
¼ bolli mjúkt smjör
1½ bolli flórsykur
½ tsk. vanilludropar
Öllum þurrefnum í deigið er
blandað vel saman. Vökva er
bætt út í og hnoðað. Deigið látið
hefast þar til það hefur tvöfald-
ast.
Útbúið fyllingu með því að
hræra saman öllu innihaldinu.
Deigið er flatt út og smurt
með fyllingunni. Rúllið deiginu
upp og skerið rúlluna í hæfilega
marga snúða. Þeim er síðan rað-
að í eldfast mót og látnir hefast í
um hálftíma.
Snúðarnir eiga að bakast við
170 gráður í um fimmtán mín-
útur. Meðan snúðarnir bakast er
kremið útbúið. Það er sett ofan á
snúðana um leið og þeir koma út
úr ofninum.
AMERÍSKIR
KANILSNÚÐAR
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI
Í ÖLLUM
HERBERGJUM
Hvað er SONOS?
Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna
tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá
hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. Spilaðu það sem þú vilt hvar sem er á
heimilinu í gegnum Sonos kerfið sem er mjög einfallt í uppsetningu.