Fréttablaðið - 07.06.2014, Qupperneq 45
| ATVINNA |
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Elísabet Sverrisdóttir
elisabet@hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og
með 22. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is ásamt upplýsingum
um starfsheiti, menntun og
fyrri störf.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar
SJÁLFSTÆÐI - FÆRNI - FRAMFARIR
Starfssvið
Skólameistari veitir framhaldsskólanum
forstöðu. Hann stjórnar daglegum
rekstri og starfi skólans og gætir þess
að skólastarfið sé í samræmi við lög,
reglugerðir, aðalnámskrá og önnur
gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann
ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og
að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að
gerð skólanámskrár og umbótastarfi
innan skólans.
Laust er til umsóknar embætti skólameistara við Menntaskóla Borgarfjarðar í
Borgarnesi. Skólinn býður upp á þriggja ára nám og fjórar námsleiðir: Opna braut,
félagsfræðibraut, náttúrufræðibraut og starfsbraut.
Menntunar- og hæfniskröfur
Skólameistari skal uppfylla skilyrði laga um
hæfi, nr. 87/2008. Skólameistari þarf m.a. að
hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.
Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunar- og
rekstrarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni,
reynslu af stefnumótunarvinnu og hæfileika
til nýsköpunar. Ný lög um framhaldsskóla nr.
92/2008 fela framhaldsskólum aukna ábyrgð á
skilgreiningu námsbrauta, þróun námsframboðs
á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu til 18
ára aldurs. Skólameistari gegnir því mikilvægu
hlutverki í mótun skólastarfs.
Ráðning og kjör
Stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar
ræður skólameistara. Æskilegt væri
að skólameistari hæfi störf í síðasta
lagi 1. ágúst 2014 og kæmi að
undirbúningi skólastarfs fyrir skólaárið
2014-2015. Laun skólameistara eru
samningsatriði. Skólameistari skal
búa í Borgarbyggð.
Upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 16. júní.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Þjónustustjóri
Um er að ræða nýja stöðu sem heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Við leitum að öflugum einstaklingum til þess að takast á við krefjandi verkefni sem
framundan eru. Við bjóðum upp á spennandi starfsvettvang í vaxandi alþjóðlegu
umhverfi, góða starfsaðstöðu og árangurstengd launakjör.
VAKI er framsækið og leiðandi fyrirtæki með áherslu á vöruþróun og sölu á
hátæknibúnaði fyrir fiskeldi. Vörur VAKA eru þróaðar og framleiddar á Íslandi
og seldar í yfir 50 löndum. Starfsmenn eru 28 talsins á Íslandi og 16 starfsmenn
starfa í dótturfyrirtækjum VAKA í Chile og Noregi. Sjá nánar á www.vaki.is
Helstu verkefni
• Umsjón með framkvæmd þjónustusamninga
• Samþætting þjónustuaðila erlendis
• Uppbygging á þjónustuveri
• Umsjón með ferli viðgerða
Menntun og hæfniskröfur
• Haldgóð tæknimenntun sem nýtist í starfinu
• Reynsla af sambærilegu starfi er mikill kostur
• Tungumál: Enska og norska (skandinavískt mál)
• Jákvæðni og rík þjónustulund nauðsynleg
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar
Verkfræðingur/ Tæknifræðingur
Starfið er hluti af þróunarteymi Vaka.
Helstu verkefni
• Þróun á tæknibúnaði sem m.a. byggir á tölvusjón
• Úrvinnsla gagna frá mælitækjum
• Þátttaka í þróunarverkefnum
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólapróf í verkfræði eða tæknifræði
• Tungumál: Enska skilyrði og norska kostur
• Tölvukunnátta: Reynsla af forritun
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar
Hugbúnaðarsérfræðingur
Starfið felst í að gera umbætur á núverandi hugbúnaði ásamt því að þróa nýjar lausnir á sviði gagnabirtingar og úrvinnslu.
Helstu verkefni
• Hönnun, útfærsla og rekstur á hugbúnaðarkerfi
fyrir framleiðslustýringu í fiskeldi
• Umsýsla gagnagrunna og þróun hugbúnaðar
til greiningar gagna
• Þróun á vefsíðu og skýrslugerð
• Þátttaka í þróunarverkefnum
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólapróf í tölvunarfræði eða verkfræði
• Þekking á C#, ASP.NET, SQL
• Reynsla af hugbúnaðargerð er mikill kostur
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar
LAUGARDAGUR 7. júní 2014 5