Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 48
| ATVINNA |
Starf forstöðumanns tæknideildar
Snæfellsbæjar er laust til umsóknar
Hlutverk og ábyrgðarsvið:
Forstöðumaður tæknideildar Snæfellsbæjar hefur
yfirumsjón með skipulags- og byggingarmálum og öllum
verklegum framkvæmdum og viðhaldi á vegum
sveitarfélagsins. Forstöðumaðurinn hefur forystu um
faglegan undirbúning við mótun stefnu sveitarfélagsins
á sviði skipulags- og byggingamála á hverjum tíma og er
skipulags og byggingarnefndum, bæjarstjóra og bæjarstjórn
til ráðgjafar á því sviði og sér um að lögum um mannvirki
nr. 160/2010, skipulagslögum nr. 123/2010 og öðrum lögum
og reglugerðum varðandi byggingarmál í sveitarfélaginu
sé framfylgt. Hann ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja,
eftirliti með viðhaldi, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga,
gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um
mannvirki til íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði skipulags- og byggingarmála
sbr. 8 gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010 er skilyrði.
• Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum,
byggingarreglugerð er æskileg.
• Reynsla af stjórnun er æskileg.
• Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu
er æskileg.
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, framsýni og
skipulagshæfni.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
og þjónustulund.
• Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi
fagfélags og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní nk.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn til Kristins
Jónassonar, bæjarstjóra, á netfangið kristinn@snb.is
Umsókninni þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf
þar sem umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir hæfni til
starfans út frá ofangreindum hæfnikröfum. Umsækjendur
eru beðnir um að tilgreina a.m.k. 2 umsagnaraðila í umsókn
sinni.
Öllum umsóknum verður svarað
Innanríkisráðherra auglýsir embætti forstjóra
Samgöngustofu laust til umsóknar.
Samgöngustofa tók til starfa þann 1. júlí 2013
við færslu á stjórnsýslu- og eftirlitsverkefnum
Flugmálastjórnar, Siglingastofnunar, Umferðar-
stofu og Vegagerðar yfir í nýja stofnun sem fer
með stjórnsýslu samgöngumála og annast eftir-
lit með samgöngugreinum.
Forstjóri Samgöngustofu stýrir stofnuninni og
ber ábyrgð á rekstri hennar, þjónustu og árangri.
Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist
í starfi, búa yfir góðri reynslu af stjórnun og
rekstri og hafa góða samskiptafærni. Reynsla af
alþjóðasamstarfi er kostur, sem og reynsla af
sameiningum fyrirtækja eða stofnana. Leitað er
eftir einstaklingi sem hefur leiðtogahæfileika,
er framsýnn í hugsun, hefur góða þekkingu
eða reynslu af stefnumótun, hefur sýnt hæfni í
samskiptum og samvinnu og hefur metnað til að
ná árangri í þágu almennings og atvinnulífs.
Hugmyndir umsækjanda um framtíðarsýn fyrir
Samgöngustofu skulu fylgja umsókn.
Hæfni umsækjanda verður metin af þriggja
manna nefnd sem innanríkisráðherra skipar.
FORSTJÓRI
SAMGÖNGUSTOFU
Innanríkisráðherra skipar
forstjóra Samgöngustofu
til fimm ára. Um laun og önnur
starfskjör fer eftir ákvörðun
kjararáðs.
Konur jafnt sem karlar eru hvött
til að sækja um auglýst starf.
Upplýsingar um embættið veitir
Ragnhildur Hjaltadóttir,
ráðuneytisstjóri
innanríkisráðuneytis
í síma 545 9000.
Umsóknum skal skila rafrænt á
postur@irr.is eða til
innanríkisráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 22. júní nk.
Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun liggur fyrir.
Save Water, Drink Beer
VAKTSTJÓRI
ÓSKAST!
KREFJANDI STARF!
English Pub Austurstræti
óskar eftir að ráða vaktstjóra
til starfa á líflegum og
skemmtilegum stað.
Umsækjendur verða að hafa
reynslu af því að starfa á bar,
metnað í starfi og verða að
vera eldri en 20 ára.
Nánari upplýsingar fást
í síma 697 9003.
Umsækjendur sendi umsókn
ásamt ferilskrá og mynd á
tölvupóstfangið
enskibarinn@enskibarinn.is
7. júní 2014 LAUGARDAGUR8