Fréttablaðið - 07.06.2014, Side 58
| ATVINNA |
Námsstyrkir
Bandalag kvenna í Reykjavík auglýsir
eftir umsóknum um styrki til Starfs-
menntunarsjóðs ungra kvenna fyrir
skólaárið 2014-2015.
Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja við bakið
á ungum konum í Reykjavík, sem ekki eiga kost á
námslánum, til að afla sér aukinnar menntunar.
Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og allar
nánari upplýsingar má nálgast á vef Bandalags
kvenna í Reykjavík, www.bkr.is
Umsóknir um styrki skal senda til Bandalags kven-
na í Reykjavík, Túngötu 14, 101 Reykjavík, merktar
„Námsstyrkir”. Umsóknarfrestur er til 19. júní.
Kirkjugarður Hafnarfjarðar
-Tilflutningur jarðvegs
Hafnarfjarðarbær auglýsir útboð vegna jarðvinnu við
Kirkjugarð Hafnarfjarðar. Útboðið felur í sér tilfærslu á
jarðvegi við Kirkjugarð Hafnarfjarðar. Heildarmagn efnis er
áætlað um 15.000m³.
Útboðsgögn verða seld hjá Umhverfi og Framkvæmdum,
Norðurhellu 2 og kosta 3.000 kr.
Tilboð verða opnuð þann 18. júní 2014 kl 10:00 á sama stað.
ÚTBOÐ
OFANFLÓÐAVARNIR Á ESKIFIRÐI
BLEIKSÁ - VARNARVIRKI
ÚTBOÐ NR. 15652
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Fjarðabyggðar og
Ofanflóðasjóðs óskar eftir tilboðum í verkið Ofanflóðavarnir
á Eskifirði - Bleiksá, varnarvirki.
Verkið felst í að reisa varnarvirki í og við Bleiksá fyrir ofan
kirkjumiðstöðina á Eskifirði.
Leiðigarður verður byggður á flöt ofan við kirkjuna og
vestan við Bleiksá í 10-15 m hæð yfir sjó. Garðurinn er V
laga, 150 m langur, um 3 m hár og byggður að mestu úr
skriðuefni og grjóti. Garðurinn verður brattur flóðmegin
1:0,25 og byggður með stálgrindum til styrkingar. Landmegin
er hallinn um 1:3. Setja skal upp heitgalvanhúðaða
öryggisgirðingu meðfram brún leiðigarðs.
Land neðan leiðigarðs verður mótað með sléttri flöt og halla
að kirkjumiðstöð.
Farvegur Bleiksár verður sprengdur niður í skurð og
bakkarnir mótaðir með grjóthleðslum. Landmótun og
yfirborðsfrágangur felst í mótun varnargarðs og brekku að
kirkjumiðstöð ásamt gerð grasflatar og göngustíga.
Helstu magntölur eru:
• Losun á klöpp 1.130 m3
• Grjóthleðsla 345 m3
• Fyllingarefni 2.100 m3
• Styrkingakerfi – uppsetning 460 m2
• Hellulögn 240 m²
• Þökulagning 1.050 m2
• Sáning og áburðargjöf 2.700 m²
Verkinu skal vera að fullu lokið 15. ágúst 2015. Útboðsgögn
verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum,
Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 10.
júní 2014. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, 1. júlí 2014
kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Innkaupadeild
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Metanbifreið, pallbifreið að 3,5 t, útboð nr. 13265.
• Hagaskóli, viðgerðir og endurbætur á þökum
og gluggum 2014, úboð nr. 13270.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Styrkir vegna útgáfu myndríkra
bóka um sögu Reykjavíkur
Útgefendur myndríkra bóka sem tengjast sögu og menningu
Reykjavíkurborgar geta nú sótt um styrk til niðurgreiðslu á
kostnaði vegna kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljós-
myndasafni Reykjavíkur. Styrkirnir eru veittir vegna útgáfu
bóka sem áætlað er að komi út á árinu 2014 eða í ársbyrjun
2015. Styrkirnir eru liður í nýsamþykktri menningarstefnu
Reykjavíkurborgar sem miðar m.a. að því að hlúa að varð-
veislu menningararfleifðar og hvetja til miðlunar hennar.
Þriggja manna dómnefnd skipuð tveimur starfsmönnum
Borgarsögusafns Reykjavíkur og skrifstofustjóra menn-
ingarmála Reykjavíkur metur umsóknirnar.
Frestur til að skila umsóknum er 23. júní 2014.
Í umsókn skulu koma fram nauðsynlegar upplýsingar um
umsækjanda ásamt góðri lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu.
Auk þess skal þar koma fram áætlaður kostnaður vegna
afgreiðslu og myndbirtinga á ljósmyndum frá Ljósmynda-
safni Reykjavíkur.
Utanáskrift umsóknar: ,,Myndrík bók um sögu Reykjavíkur“
b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra menningarmála,
Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar,
Vesturgötu 1, 3. hæð, 101 Reykjavík.
Útboð
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í verkið:
Grundaskóli – Stækkun matsalar
Verkið felst í stækkun matsalar nemenda um 38 m2
með fjarlægingu súlna, steyptri botnplötu, lokun milli
súlna með gluggum, ásamt tilheyrandi frágangi inni
og úti. Verklok eru 12.september 2014.
Útboðsgögn eru seld frá 11.júní 2014 í þjónustuveri
Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18, á kr. 3.000.
Tilboð eru opnuð hjá Mannvit, Garðabraut 2A,
Akranesi, föstudaginn 27.júní 2014 kl. 11:00.
Rekstur líkamsræktar
í sundmiðstöð
Grindavíkur
Grindavíkurbær óskar eftir samstarfi við áhugasama
aðila um rekstur líkamsræktar í Sundmiðstöð Grinda-
víkur frá 1. desember 2014. Líkamsræktaraðstaðan
verður í um 400 m2 rými þar sem núverandi búnings-
klefar og líkamsrækt eru í sundmiðstöðinni. Áætlað er
að aðstaðan verði laus til framkvæmda 1. desember
2014. Miðað er við að líkamsræktarstöðin opni í janúar
2015.
Í íþróttamiðstöðina koma á ári hverju 60 til 70 þúsund
gestir og þar af eru um 25 þúsund sundlaugargestir á
almenningstímum.
Unnið er að byggingu nýrrar aðstöðu við íþrótta- og
sundmiðstöð Grindavíkur og er ný og stærri líkams-
ræktarstöð hluti af því. Í Grindavík er öflugt og fjöl-
breytt íþróttastarf og íbúar um 2900.
Skriflegum tilboðum skal skila á bæjarskrifstofu
Grindavíkurbæjar, eða á netfangið grindavik@grinda-
vik.is merkt Líkamsrækt fyrir 27. júní næstkomandi.
Tilboðsgjafar eru hvattir til að kynna sér aðstöðuna
áður. Þeir sem vilja kynna sér starfsemi íþróttamið-
stöðvar Grindavíkur og skoða verðandi húsnæði lík-
amsræktarstöðvar eru vinsamlega beðnir að hafa
samband við Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóra frí-
stunda- og menningarsviðs, í síma 6969234 eða á
netfangið thorsteinng@grindavik.is
Nánari lýsing
Meðal markmiða Sundmiðstöðvar Grindavíkur er að
efla almenningsíþróttir og fjölga sundlaugargestum.
Í ljósi þess er skilyrt að tilboðsgjafi greiði aðgang í
sundlaug fyrir viðskiptavini sína. Sett verður upp sér-
stök gjaldskrá vegna magnkaupa á árskortum í sund-
laug. Sundmiðstöðin leggur til þjónustu í afgreiðslu
og ræstingu.
Í tilboði skal koma fram áætlað verð á líkamsræktar-
kortum til notenda og tilboð til Sundmiðstöðvar
Grindavíkur um leigu fyrir aðstöðuna. Jafnframt skal
koma fram lýsing á þeirri þjónustu sem boðið verður
upp á, svo sem í tækjasal og opnum leikfimitímum.
Gerð er krafa um að í húsnæðinu verði aðstaða fyrir
sjúkraþjálfun, sem leigutaki framleigir.
Tilboðsgjafi skal leggja til allan tækjabúnað líkams-
ræktarsalarins. Aðeins tæki og búnaður frá viður-
kenndum framleiðendum líkamsræktartækja koma til
greina. Við mat á tilboðum verður meðal annars litið
til lýsingar rekstraraðila á fjölda tækja, gerð þeirra og
gæða.
Tilboðsgjafi skal greiða allan kostnað vegna markaðs-
mála líkamsræktarinnar svo sem auglýsingar, kost-
unarsamninga og fleira.
Tilboðsgjafi skal tryggja að allir sem kaupa kort í lík-
amsrækt fái vandaða leiðsögn og undirbúning um
notkun tækja og þjálfun áður en þjálfun hefst og
bjóða upp á reglulega aðstoð fyrir viðskiptavini. Í til-
boði skal koma fram lágmarksviðvera starfsmanna á
viku.
Sundmiðstöð Grindavíkur leggur til húsnæði undir
starfsemina í núverandi mynd. Breytingar á húsnæð-
inu eru á kostnað leigutaka. Gert er ráð fyrir leigu-
samningi til 5 ára.
Við mat á tilboðum verður horft til verðs á líkamsrækt-
arkortum til notenda, endurgjalds fyrir aðstöðuna og
fyrirkomulag þjónustu.
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóra frístunda- og
menningarsviðs, í síma 6969234 eða á netfangið
thorsteinng@grindavik.is
sími: 511 1144
7. júní 2014 LAUGARDAGUR18